Ægir - 01.01.2008, Blaðsíða 36
36
Skömmu fyrir jól kom Dala
Rafn VE 508 til heimahafnar í
Vestmannaeyjum, en skipið,
sem er systurskip tveggja
nýrra skipa Bergs-Hugins,
Vestmannaeyjar og Bergeyjar,
og Varðar EA, er í eigu
hjónanna Þórðar Rafns Sig-
urðssonar og Ingu Eymunds-
dóttur.
Dala-Rafn kemur frá Nor-
ship skipasmíðastöðinni í
Gdynia í Póllandi, en
skrokkur skipsins var þó
smíðaður í Crist Spolka í
Gdansk í Póllandi.
Skipið, sem er tveggja
þilfara skuttogari, er 28,95
metrar á lengd og 10,40
metrar á breidd. Í lest er rými
fyrir 165 660 lítra ker eða um
75 tonn af fiski.
Aðalvél skipsins er Yanmar
6N21A-EV 514 kW. Frá Me-
kanord kemur niðurfærslugír
af gerðinni 450HS og skrúfu-
búnaður frá Helset, allt frá
Marási ehf.
Hliðarskrúfa skipsins kem-
ur frá Aflhlutum ehf. Ljósavél
er Mitsubishi S6B3 MPTA
með Stamford rafal. Flapsas-
týri er frá Rolls Royce Marine
og stýrisvél frá Tenfjord,
hvorutveggja frá Héðni hf.
Kælikerfi í lest er frá Frost-
marki og dælur eru af gerðin-
ni Azcue frá Atlasi hf. Þilfars-
krani er frá Sormec Marine.
N Ý T T S K I P
Sjötta skipið til Eyja á einu ári!
Dala Rafn VE 508 er hið glæsilegasta skip – systurskip Vestmannaeyjar og Bergeyjar VE og Varðar EA.
Eyþór Þórðarson, skipstjóri á Dala Rafni.