Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Síða 4

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Síða 4
Rit urn íbúðir og hýbýlaprýði. Samningu þessa rits er ekki að fullu lokiS, svo að prentun getur ekki byrjað fyrri en i .ágúst. Við getum þvi ekki enn gefið félagsmönnum neina glögga hugmynd um, hvernig ritið verður, en eitt höfum við séð, að allir aðilar leggja sig fram um að gera það sem bezt úr garði. Rauðir pennar, V. bindi, eru einnig í undirbúningi og verður reynt að vanda til þeirra sem allra bezt. Við vonumst til að geta komið öllum bókunum út i september, október og nóvember. Mannkynssagan. Eins og við höfum áður tilkynnt, er farið að undirbúa útgáfu mannkynssögunnar. Við gerum ráð fyrir henni i 6 bindum, um 25 arkir eða m. k. 350 blaðsiður hvert bindi, í sama broti og Rauðir pennar. Tilætlunin er, að það komi eitt bindi á ári og þá í stað tveggja bóka, þannig að útgáfa félagsins verði 5 bæk- ur árlega þau ár, sem mannkynssagan kemur út. Við liöfum leit- að til nokkurra sagnfræðinga um samningu á verkinu. Ásgeir Hjartarson, ungur sagnfræðingur, hefur tekið að sér undirbúning fyrsta bindisins, en við getum varla gert ráð fyrir, að útgáfan hefjist fyrr en 1941. Áætlun fyrir næsta ár er ekki nema að litlu leyti ákveðin ennþá og nógur tími að skýra frá henni. Við sjáum ekki fyrr en síðar i haust, livorl möguleikar verða til að koma út fyrsta bindi mannkynssögunnar strax að ári. Eftir því verður útgáfa annarra bóka að fara. Mun ég svo ekki tefja lengur tímann frá því stórmáli, sem flutt er hér á eftir. Þar er um fyrirætlun að ræða, sem hefja mun allt starf Máls og menningar i nýtt veldi, gefur félaginu stór- fenglegt hlutverk að leysa af liendi, sem er ekki einungis tengt við félagið sjálft, heldur alla þjóðina. Kr. E. A. 42

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.