Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1939, Page 17
ástæða til aS geta um í aðalyfirlitinu, en fróðlegt er fyrir les- endur að vita nokkur deili á. Aðalsjónarmiðinu i þessari bók er þegar lýst hér að framan. Eg gæti um það að miklu leyti tekið undir orð ameriska rit- höfundarins, James Harvey Robinsons: „Eg hef lengi verið þeirr- ar skoðunar, að hinn eini verulegi skerfur, sem sagnfræðing- arnir geta lagt til framfara vits og skilnings, sé að kynna sér fortíðina með sífellt vakandi auga á samtiðinni.“ Þó að það sé ekki tilgangur minn í þessu riti að prédika mínar skoð- anir um það, hvernig leysa megi ýmis vandamál nútímans (það má vera, að eg geri það seinna meir á öðrum vettvangi), þá ættu sum af þessum vandamálum að skýrast við það, að rætur þeirra eru raktar aflur í tímann. Einstök dæmi þessa má nefna. Þó að miklar ytri hyltingar hafi átt sér stað í trúarsetning- um og lífsskoðun íslendinga, svo sem kristnitakan árið 1000, viðgangur liins kaþólska kirkjuvalds á miðöldum, siðaskiptin á 10. öld, hinn strangi rélttrúnaður á 17. öld, skynsemishyggja nútímans, — þá er samt órofið samhand milli lífsskoðana þeirra nú á dögum og á elztu tímum, landnámsöldinni. Eitt af því. sem jafnan hefur ráðið miklu í sálarlífi íslendinga og afstöðu þeirra gagnvart öðrum þjóðum, er togstreita milli vanmeta og ofmeta. Enn i dag eiga þeir bágt með að líta rólega og hrein- skilnislega á aðstæður sinar, hvað þeir eru, geta og eiga og hvað þá skortir, hvað þeim er um megn. Þeim hættir annars vegar við sjálfbirgingsskap, hins vegar við furðulegu dómgreindar- leysi á tízku og nýjungar. Þennan þátt i fari þjóðarinnar má rekja mjög langt aftur i tímann, og í sambandi við liann standa bæði sum merkustu afrek hennar og mestu skyssur. • Það má telja höfuðnauðsyn fyrir fslendinga, bæði vegna andlegr- ar heilhrigði þjóðlífs og einstaklinga og vegna skynsamlegrar afstöðu til ýmissa menningarmála og þjóðmála, að stefna að meiri einlægni og bersýni i dómum uin sjálfa sig, en hvorugt fæst án meiri þekkingar. Hinn sögulegi arfur þeirra er bland- inn, sagan hefur ekki einungis skilið þeim eftir afrek, fyrir- myndir og verðmæti, lieldur ýmiss konar mein og viti, sem siður er haldið á loft og sízt með skilningi á uppruna þeirra. Ef ])etta rit um íslenzka menningu, sem höfundur hefur hug á að rita af sem mestri hreinskilni, gæti vakið greinda lesend- ur til þess að liugsa betur en áður um það, hver vandi og veg- semd »r í því fólgin, að vera fslendingur nú á dögum, væri aðaltilgangi þess náð. 55

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.