Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 10

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 10
10 H R O G N K E L S A V E I Ð A R Milljarðar í húfi Á aðeins þremur árum breytt- ist mat Hafró á ástandi grá- sleppunnar frá því að virðast ganga ágætlega yfir í allt að því neyðarástand. Í skýrslunni fyrir 2009/- 2010 (sem á við grásleppuver- tíðina 2010) er allt í stakasta lagi og náttúran fór sínu fram. Grásleppuvertíðin 2010 gaf um 18 þúsund tunnur á 62 veiðidögum. Þessi vertíð var því ein sú albesta frá upphafi og sé verðið til veiðimanna tekið með í reikninginn, sú albesta. Í skýrslunni lagði Hafró ekki fram tillögur um há- marksafla/kvóta. Ef hún hefði gert það með þeirri aðferða- fræði sem nú hefur verið kynnt til sögunnar hefði ráð- gjöfin hljóðað uppá u.þ.b. 8 þúsund tunnur. Verðmæti 10 þúsund tunna var þá um 2 milljarðar, sem hreinlega hefðu glatast. Í skýrslunni fyrir fiskveiði- árið 2010/2011 er vart að sjá að stofnunin sé þjökuð af áhyggjum vegna ástands grá- sleppustofnsins. Þó er bent með réttu á aukna sókn, en ekkert tal um heildarafla. Ver- tíðin 2011 var engu að síður stytt í 50 daga, eða um hátt í 20%, að ósk veiðimanna. Veður voru og mun vályndari en metárið 2010. Heildarveið- in varð engu að síður hátt í 11 þúsund tunnur, eða rétt undir 10 ára meðaltali. Mun- urinn á ráðgjöfinni og veið- inni var um 3000 tunnur, þá að verðmæti milli 500-600 milljónir. Það er svo í skýrslunni fyr- ir 2011/2012 að Hafró leggur í fyrsta skipti til hámarksafla við grásleppuveiðar, uppá 7700 tunnur. Ráðgjöfina sagð- ist stofnunin byggja á stofn- vísitölu grásleppu 2011 (tog- ararall) en þessi ráðgjöf birtist ekki fyrr en grásleppuvertíðin var hafin. Stjórnvöld ákváðu að láta kyrrt liggja. Hafró slær í klárinn Hvorugt framangreint virðist hafa haft mikil áhrif á nálgun Hafró. Í skýrslu stofnunarinn- ar sem kom út fyrir skömmu, fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 (vertíðina 2013) er slegið rækilega í klárinn. Nú er að auki komin inn hugmynd um „upphafskvóta“. Orðrétt: „Með hliðsjón af framan- greindu leggur Hafrannsókna- stofnunin til að upphafsafla- mark grásleppu fiskveiðiárið 2012/2013 verði ekki hærra en sem nemur um 1700 tonn- um sem samsvarar um 3500 tunnum af söltuðum hrogn- um, byggt á grásleppuvísitölu úr SMB 2012 (togararalli í mars). Hafrannsóknastofnun mun að lokinni stofnmælingu í mars 2013 veita ráðgjöf um heildaraflamark fiskveiðiárs- ins.“ Fyrsta spurningin sem kviknar við að grúska í þess- um gögnum Hafró er þessi: Hvað hefur stofnstærð tiltekið ár að gera með ráðgjöf Hafró um heildarafla á sama ári? Fyrir liggur að hún hrygnir nánast öll bara einu sinni og sé gengið út frá því að veiðin, sem alltaf hefur verið undir sóknartakmörkunum, endur- spegli nokkuð vel stofnstærð- ina ætti að vera nokkuð auð- velt að sjá samhengi milli hrygningarstofns og veiði- stofns 4 - 5 árum síðar, en tal- ið er að það sé aldur hennar við hrygningu. Meðfylgjandi tafla ber þess tæpast merki að slíkt samhengi sé þar að finna. Það er óhætt að fullyrða, að tillögur Hafró ná langt með að gera út um grá- sleppuveiðar hérlendis, fari stjórnvöld eftir þeim. Fyrir það fyrsta þarf að kvótasetja grásleppuna og fróðlegt verð- ur að vita hvernig sú aðgerð ætti að fara fram. Allir sem þekkja til grásleppuveiða vita að þær eru að mörgu leyti flóknari en annar veiðiskapur. Í þessu sambandi er íhugun- arefni að eina landið sem not- ar kvóta við grásleppuveiðar er Noregur. Þar hefur áhuginn stöðugt dvínað, kvótarnir eru litlir, þá má ekki sameina og „uppbyggingarstarfið“ lætur ekkert á sér kræla. Vissulega byggja allar veið- ar á bjartsýni og von veiði- mannanna, en ætli vonin sé nokkursstaðar sterkari við fiskveiðar á Íslandi, en einmitt í eltingarleiknum við þá gráu. Sú von yrði að engu á svip- stundu. Heildarafli grásleppu (þús. tonna) árin 1997-2011 og sókn 1980-2011. Fornubúðir 3 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555 6677 - oli@umb.is Project1 3/31/07 12:20 PM Page 1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.