Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 11

Ægir - 01.06.2012, Blaðsíða 11
11 „Þegar við höfum greitt laun og rekstrarkostnað eigum við 38% eftir af tekjunum. Það er þessi fræga EBITDA, þ.e. hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir, sem stjórnarþing- menn hafa séð ofsjónum yfir. Ef tekið er 40% veiðigjald af EBITDA-upphæðinni, hvað þá heldur 70% eins og stefnt er að, gefur auga leið að við eig- um ekki einu sinni fyrir af- borgunum af lánum, sem hafa verið 36-38% af tekjum árs- ins. Eigum við þá að fá lán til þess að geta greitt veiðigjöld- in?“ spyr Halldór Ármannsson smábátasjómaður í Reykja- nesbæ. Hann heldur áfram brúna- þungur: „Það segir sig því sjálft að breytingin á rekstri okkar fyrirtækis verður bara neikvæð eftir nokkur ár, þrátt fyrir þær breytingar sem gerðar voru með afslætti vegna lána. Það er bara verið að láta menn dingla aðeins lengur í snörunni áður en hlerinn fellur. Frumvarpið tekur að fullu gildi eftir fimm ár, nema að einhverjir þokka- lega viti bornir menn og kon- ur komi til með að breyta þeim ólögum sem er búið að samþykkja á Alþingi.“ 900 milljónir á Ísfélagið Óhætt er að segja að sam- þykkt frumvarps ríkisstjórnar- innar um stórhækkun veiði- gjalds mælist illa fyrir á meðal útgerðarmanna hvarvetna um land. Undrun, vonbrigði og jafnvel reiði eru orð sem lýsa viðbrögðunum. Einu gildir hvort um er að ræða stórar útgerðir eða smáar, þreföldun veiðigjalds frá því sem er í gildi á yfirstandandi fiskveiði- ári kemur til með að leggjast þungt á útgerðir, einkum þær sem eru skuldsettar t.d. eftir kvótakaup. En hvernig kemur þetta við stærri fyrirtæki? Stefán Friðriksson er framkvæmda- stjóri Ísfélagsins í Vestmanna- eyjum. „Ég geri ráð fyrir að Ísfélagið þurfi að greiða allt að 900 milljónir á næsta fisk- veiðiári í veiðigjöld. Veiði- gjöldin munu auðvitað hafa mikil áhrif á félagið. Við munum fara mjög vel yfir stöðuna og vega og meta til hvaða ráða eigi að grípa en á þessari stundu liggur engin ákvörðun fyrir í þeim efn- um,“ segir Stefán. Ofurskattlagning Sigurður Viggósson, fram- kvæmdastjóri Odda hf. á Pat- reksfirði tekur í sama streng og kollegi hans í Eyjum. „Við gróft mat mun þessi lands- byggðarskattur koma illa nið- ur á fjárhag fyrirtækisins og framtíð rekstrar er sett í óvissu. Við munum tvímæla- laust grípa til aðgerða til að lækka kostnað til að komast af og reyna um leið að skoða alla tekjumöguleika.“ Sigurður vekur einnig at- hygli á öðru og segir: „Við rekum ekki bara sjávarút- vegsfyrirtæki heldur erum lykilfyrirtæki á staðnum í út- gerð, fiskvinnslu, sölu og markaðssetningu. Okkar að- gerðir munu því miðast að því að lágmarka skaðann af þessum lögum. En þetta eru Undrun og vonbrigði meðal útgerða vegna þreföldunar veiðigjalds á næsta fiskveiðiári: „Láta menn dingla aðeins lengur í snörunni áður en hlerinn fellur“ – segir Halldór Ármannsson smábátasjómaður í Reykjanesbæ H Æ K K U N V E I Ð I G J A L D A

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.