Ægir - 01.06.2012, Qupperneq 12
12
veruleg ótíðindi fyrir okkar
fyrirtæki og byggðarlagið í
heild. Það stendur enginn
undir ofurskattlagningu af
þessu tagi.“
Stefán segir alvarlegustu
ógnina af þessari ofurskatt-
lagningu þá, að til lengri tíma
muni sjávarútvegurinn ekki
verða samkeppnisfær. „End-
urnýjun skipa og búnaðar
mun sitja á hakanum vegna
þess að útgerðin mun ekki
hafa getu til þess að fjárfesta.
Fjárfestingar eru einmitt
grundvöllur undir aukna
verðmætasköpun og meiri
arðsemi fyrirtækja og þar
með af þeim auðlindum sem
þau nýta. Það er þess vegna
afar mikilvægt að greinin búi
við góð og stöðug rekstrar-
skilyrði þar sem byggt er á
langtímasjónarmiðum en ekki
á skammtímasjónarmiðum
misviturra stjórnmálamanna.“
Allir tapa á endanum
Halldór segir jafnframt að
veiðigjaldafrumvarpið sem
varð að lögum sýni hversu
langt, ráðherrar og margir
stjórnarliðar, ásamt öðrum
þingmönnum, séu frá raun-
veruleikanum. Hann segir að
á endanum muni allir tapa á
þessum breytingum, ekki
bara útgerðin heldur allur al-
menningur.
„Ég er ekki með neina há-
skólagráðu, hvað þá að ég
hafi komið nálægt hagfræði,
en ég geri mér þó fulla grein
fyrir því að það munu allir
tapa á þessu. Þeir sem ætla
að taka við rekstrinum af
þeim sem fara á hausinn
hljóta að þurfa að leysa hann
til sín og það þarf fjármagn til
þess og þá væntanlega lán.
En það gengur bara ekki upp
að taka lán eða fara í nýfjár-
festingu miðað við forsendur
frumvarpsins.“
Stefán tekur undir þau orð
Halldórs að allir muni á end-
anum tapa á ofurskattlagn-
ingu. „Ég tel að aukin skatt-
lagning eins og fram kemur í
lögunum um veiðigjöld sé
bæði vond og ranglát. Það
verður að vera fyrir hendi
hvati til þess að reka félögin
vel áfram,“ segir hann.
Hærri skattar – minni
þjónusta
Sigurður tekur í sama streng:
„Ofurskattar í hverju sem þeir
eru fólgnir munu draga úr
vilja manna til að áhætta fjár-
munum, atvinnu og framtíð
og enn er verið að höggva í
sama knérunn með skattlagn-
ingu á landsbyggðina og á
sama tíma er dregið verulega
úr opinberri þjónustu. Flutn-
ingur fjármuna af efna-
minnstu svæðum landsins til
efnaðasta svæðis landsins er
óþolandi. Það er undravert
að alþingismenn okkar skulu
láta „isma“ ráða för frekar en
hagsmuni umbjóðenda sinna
og íbúa dreifbýlisins.“
H Æ K K U N V E I Ð I G J A L D A
www.isfell.is
Handfæravörur
Ísfell býður fjölbreytt úrval gæðavöru fyrir handfæraveiðarnar:
Demparar, girni, gúmmí, nælur með sigurnagla, krókar,
sigurnaglar, sökkur og statíf
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda á Pat-
reksfirði. „Ofurskattar í hverju sem þeir eru fólgnir
munu draga úr vilja manna til að hætta fjármunum,
atvinnu og framtíð og enn er verið að höggva í sama
knérunn með skattlagningu á landsbyggðina.“
Halldór Ármannsson rær á Guðrúnu Petrínu GK-107.
Hann og Ármann Halldórsson, faðir hans, reka fyrir-
tæki saman. Þeir feðgar eru hér kampakátir á
Hólmavík en Halldóri er ekki hlátur í hug yfir þreföld-
un veiðigjaldsins. Ljósmynd: Jón Halldórsson, Hólmavík
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins í
Vestmannaeyjum. „Ég geri ráð fyrir að Ísfélagið þurfi
að greiða allt að 900 milljónir á næsta fiskveiðiári í
veiðigjöld. Veiðigjöldin munu auðvitað hafa mikil
áhrif á félagið.“