Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.2012, Qupperneq 17

Ægir - 01.06.2012, Qupperneq 17
17 H A F N I R Hjá höfnum Fjarðabyggðar hefur á síðustu tveimur árum verið landað vel á sjötta hundrað þúsund tonnum af fiski. Hafnirnar sjö sem telj- ast til hafna Fjarðabyggðar taka tóku þannig á móti fjórð- ungi alls fiskafla á þessum árum og ber landshlutinn höf- uð og herðar yfir aðra hvað varðar landanir uppsjávarafla. Undir samheitið Fjarða- byggðarhafnir falla hafnirnar á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Mjóafirði, Fá- skrúðsfirði og Stöðvarfirði auk hafnarinnar við álver Al- coa Fjarðaáls. Mikilvægi hafnanna Steinþór Pétursson hafnar- stjóri segir að mikilvægi hafn- anna og starfsemi í kringum þær sé mikið fyrir byggðar- lögin í sveitarfélaginu. Sjávar- útvegur og sjóflutningar og alhliða þjónusta við starfsemi tengda sjónum er lífibrauð stórs hluta íbúa sveitarfélags- ins. Hann bendir á að eðli starfseminnar breytist stöðugt í samræmi við aðra þróun á svæðinu. Ekki aðeins hafi til- koma álversins haft í för með sér stóraukið umfang flutn- inga heldur hafi einnig orðið mikil breyting á allri umsýslu með fiskafla. Aukin sérhæfing fyrirtækja og einstakra vinnslustöðva þýði einfald- lega að aðlaga þurfi framboð þjónustunnar til samræmis. „Hvernig starfsemi Fjarða- byggðahafna verður eftir tíu ár er engin leið að segja fyrir um. Ég hef fylgst grannt með byggðaþróun hér eystra í 20 ár og veit að hlutirnir geta breyst hratt. Það er auðvitað alltaf erfitt að spá um framtíð- ina en ég tel að við höfum ástæðu til að vera bjartsýn,“ segir Steinþór. Hálf milljón tonna á tveimur árum Horft yfir höfnina á Eskifirði.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.