Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.2012, Side 22

Ægir - 01.06.2012, Side 22
22 Í ástandsskýrslu stofnunarinnar segir m.a. um lækkaða veiðidánartölu þorsks og lækkað veiðihlutfall: „Þessi þróun hefur haft í för með sér að árgangar end- ast betur í stofninum og hann fer nú vaxandi. Bæði viðmiðunarstofn og hrygningarstofn þorsks hafa vaxið hratt á undanförnum árum og er hrygningar- stofninn nú meira en tvöfalt stærri en hann var lengst af síðustu áratugina og hefur ekki verið stærri síðan á fyrri hluta sjöunda áratugs síðustu aldar. Hlutdeild eldri fisks í afla hefur aukist þrátt fyrir að frekar lélegir árgangar séu uppistaða veiðistofns nú. Áhrif þessa gætir í veru- lega auknum afla á sóknareiningu og meiri hagkvæmni við að ná í úthlutaðar aflaheimildir. Segja má að þetta séu dæmigerð einkenni þess að stjórn veið- anna og ástand stofnsins séu að færast í gott horf.“ Jóhann Sigurjónsson er forstjóri Haf- rannsóknastofnunarinnar. Hann var í upphafi Ægisviðtalsins spurður að því hvort ekki væri of varlega farið í ráðgjöf- inni um veiðar á þorski á komandi fisk- veiðiári í ljósi góðs ástands stofnsins. Ekki of varlega farið „Alls ekki,“ svarar Jóhann spurningunni og leggur þunga áherslu á orð sín. „Reynslan sýnir okkur að mat á hverjum tíma er töluverðri óvissu háð og við verðum að gæta þess að óvissan getur bæði leitt til vanmats og ofmats á stofn- inum. Við verðum líka að hafa hugfast í þessu samhengi að í gildi er aflaregla í þorski, yfirlýst nýtingaráætlun stjórn- valda. Sú krafa er orðin grundvallaratriði á alþjóðavettvangi, að fylgt sé langtíma nýtingaráætlunum fyrir alla megin fiski- stofna. Þessari reglu var upphaflega komið á með þrennt að leiðarljósi; að tryggja langtíma afrakstur af þorskstofn- inum, stuðla að sem jöfnustum afla og að halda jafnframt í lágmarki líkunum á því að stofninn færi niður fyrir skilgreind hættumörk. Reglan var sérstaklega próf- uð af Alþjóðahafrannsóknaráðinu árið 2009 með tilliti til þessara þátta og form- lega staðfest að sé henni beitt árlega standist hún alþjóðleg viðmið um lang- tíma hámarks afrakstur og alþjóðlegar samþykktir um varúðarnálgun við stjórn fiskveiða. Gert var ráð fyrir að reglan gilti a.m.k. í fimm ár en yrði endurskoð- uð með vísan til árangurs að þeim tíma liðnum.“ – Núverandi aflaregla gerir ráð fyrir því að veiðar séu heimilaðar á 20% af veiðistofni hverju sinni. Er þetta ekki of lágt hlutfall? Hefði einhver hætta verið í því fólgin að halda sig við fara með hlut- fallið í 22% úr 25% eins og það var fyrir breytinguna? „Þeir útreikningar sem gerðir voru í tengslum við ákvörðun um breytingu á aflareglunni á sínum tíma sýndu – og það kom m.a. fram í skýrslu starfshóps á vegum sjávarútvegsráðherra árið 2004 – að hagkvæmasta veiðihlutfallið væri á bilinu 18-23%, nærri lægri mörkum þessa bils þegar hrygningarstofn og ný- liðun er léleg eins og þá var. Ákveðið var 2009 að fara nær lægri mörkunum en þeim efri, m.a. með vísan til þess að við höfðum ofmetið þorskstofninn nokk- ur ár í röð og því ástæða til varfærni.“ – Er ástæða til að endurskoða afla- regluna? „Vitaskuld myndi stofninum ekki stafa hætta af smávægilegri hækkun veiðihlut- falls. En það er samt ekki skynsamlegt að breyta aflareglu sem er hugsuð til langs tíma þó svo að allt bendi til þess að árangur sé að nást, að stofninn sé á réttri leið. Þvert á móti ætti það að telja í okkur kjark til að standa fast í lappirnar og fylgja þessari skynsamlegu stefnu eft- ir. Þorskur er langlíf skepna og hófleg sókn skilar sér fyrr en síðar. Það er því klárlega það eina rétta í stöðunni að fylgja núgildandi aflareglu en ljúka svo á næstu tveimur árum skoðun á skynsemi þess að breyta henni, t.d. að ákveða hækkun veiðihlutfalls.“ Alþjóðleg viðurkenning tímabær – Þáverandi sjávarútvegsráðherra sendi einmitt bréf til ICES, Alþjóðahafrann- sóknaráðsins, árið 2009 þar sem því var lýst yfir að aflareglunni yrði fylgt til næstu fimm ára. Var það e.t.v. frum- hlaup í ljósi þess að stofninn virðist nú enn sterkari en vísbendingar gáfu þá til kynna? „Nei, það var afar mikilvæg ákvörðun að gefa út þessa yfirlýsingu. Það var orð- ið löngu tímabært fyrir okkur að fá al- þjóðlega viðurkenningu á því að stjórn okkar á þorskveiðum stæðist ítrustu kröfur. Aðalatriðið var þó alvarleg staða þorskstofnsins og nauðsyn þess að grípa inn í svo viðsnúningur næðist. Sem bet- ur fer erum við að sjá árangur af þessu inngripi. Jafnvel þótt stofninn þyldi meiri veiði nú er ávinningurinn ótvíræður af Hafró hefur nýverið lokið fundaröð um landið. „Spurningin hvort nægilega sé tekið tillit til „fiskifræði sjómannsins“ kemur oft upp þó ég telji að almenn sátt sé um að vís- indaleg nálgun sé farsælust við stjórn fiskveiðanna,” segir forstjórinn. Æ G I S V I Ð T A L I Ð

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.