Ægir - 01.06.2012, Page 27
27
V E I Ð I R Á Ð G J Ö F
Hafrannsóknastofnunin til-
kynnti fyrir skömmu ráðgjöf
sína fyrir komandi fiskveiðiár.
Þótt fátt hafi komið á óvart í
ráðgjöfinni voru gleðitíðindin
óneitanlega að þessu sinni
áframhaldandi vöxtur þorsk-
stofnsins með tilheyrandi ráð-
gjöf um aflaaukningu. Rætt er
ítarlega við Jóhann Sigurjóns-
son, forstjóra Hafrannsókna-
stofnunarinnar, um þorsk-
stofninn og fjölmörg önnur at-
riði hér framar í blaðinu.
Á sama hátt og tíðindin af
þorskinum eru gleðileg er
lakara ástand ýsustofnsins til-
efni vonbrigða. Síðustu ár-
gangar hafa verið mjög litlir
eftir góða nýliðun áranna
1998-2003 og meðalárganga á
árunum þar á eftir. Hér á eftir
fer stutt samantekt úr veiði-
ráðgjöf Hafrannsóknastofnun-
arinnar en sjávarútvegsráð-
herra tilkynnir aflamark kom-
andi fiskveiðiárs fyrri hluta
júlímánaðar ef horft er til
reynslu síðustu ára. Sú
reynsla sýnir jafnframt að ráð-
herra hverju sinni fer að
mestu eftir ráðgjöf vísinda-
manna en alltaf eru einhver
dæmi um frávik frá henni og
þá yfirleitt til aukningar.
Þorskur
Í skýrslu Hafrannsóknastofn-
unarinnar um nytjastofna
sjávar 2011-2012 og aflahorf-
ur fyrir fiskveiðiárið 2012-
2013 segir orðrétt: „Þar sem
nýliðun á undangengnum
áratug hefur verið slök þá er
stækkun stofnsins á undan-
förnum árum afleiðing af
minni sókn. Samkvæmt afla-
reglu sem er í gildi verður
aflamark fiskveiðiárið
2012/2013 196 þús. tonn og
ef aflareglunni er fylgt eru
líkur á að afli vaxi í 250 þús.
tonn á komandi árum. Meiri
afla er ekki hægt að búast við
nema nýliðun verði betri en á
undanförnum árum.“
Ýsa
Um ýsustofninn segir Hafró:
„Framreikningar sýna að ýsu-
stofninn mun halda áfram að
minnka á komandi árum þeg-
ar litlu árgangarnir frá 2008-
2011 koma inn í hrygningar-
stofninn og líkur á að hann
verði nálægt sögulegu lág-
marki árin 2014–2015. Til að
hættan á slíku verði lítil legg-
ur Hafrannsóknastofnunin til
að hámarksaflamark ýsu fisk-
veiðiárið 2012/2013 verði 32
þús. tonn, sem er í samræmi
við fyrirliggjandi tillögu að
aflareglu.“
Ufsi
„Á síðustu tveimur árum hef-
ur farið fram greining á hugs-
Ekki er á vísan að róa í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir komandi fiskveiðiár:
Þorskur upp, ýsa niður
og ufsaaflinn svipaður
Stærð hrygningar- og viðmiðunarstofns þorsks frá árinu 1975 ásamt framreikningum til ársins 2016, miðað við að afli verði
samkvæmt aflareglu.
Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi
Sími 580 5800 • www.landvelar.is
Bosch Rexroth þjónusta
Sérhæft verkstæði fyrir vökvadælur og mótora
Sala, varahlutir og viðgerðir