Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Leikskólamál eru alltaf hitamál. Í
Hafnarfirði geta börn hafið leik
skóla göngu á árinu sem þau verða
tveggja ára. Það má a.m.k. lesa á
heimasíðu bæjarins. Hafa ýmsir
foreldrar lýst óánægju sinni með
það að börn sem fædd séu snemma
á árinu njóti ekki sömu réttinda og önnur börn þar sem að
jafnaði er ekki tekið inn í leikskóla nema á haustin. Það er
eðlilegt að svigrúm fáist á haustin þegar börn hætta til að
fara í grunnskóla. Hins vegar er það líka óeðlilegt að börn
komist ekki inn í leikskóla á öðrum tíma, jafnvel þó laust
pláss sé í leikskólum bæjarins. Nú hefur fækkað í
leikskólum Hafnarfjarðar og útlit er fyrir enn frekari fækk
un. Það sparar Hafnarfjarðarbæ 73 milljónir kr. því þeir
geta fækkað leikskóladeildum. Ennþá sitja þá mörg börn
og foreldrar með sárt ennið og fá ekki pláss nægilega
snemma fyrir börn sín. Á sama tíma er erfitt að fá pláss hjá
dagforeldrum og fólki er jafnvel vísað í önnur sveitarfélög.
Hér hlýtur eitthvað að vera að í kerfinu.
Hins vegar kemur uppsögn á samningi við lítinn
einkarekinn ungbarnaleikskóla ekkert sérstaklega á óvart
ef rétt er að hann var bænum mjög dýr. Þeir sem kvarta yfir
að rekstri skóla sé úthýst til einkaaðila ættu að minnsta
kosti að fagna þeirri ákvörðun. Samingur um rekstur
Bjarma er sagður mjög umdeilanlegur og því getur vart
talist mjög óeðlilegt að samningi sé sagt upp með
lögformlegum hætti, með 6 mánaða fyrirvara eins og
samningurinn kvað á um.
Sem betur fer er að verða viðhorfsbreyting í Hafnarfirði.
Bæjarbúar eru búnir að fá sig fullsadda af neikvæðri
umræðu og vilja horfa fram á veginn af bjartsýni. Það kom
því ekkert á óvart að í könnun sem gerð var fyrir
sveitarfélögin að íbúar í Hafnafirði eru ánægðari með þá
þjónustu sem sveitarfélagið er að veita í heild en árið 2013.
Heldur minnkar þó ánægja með sveitarfélagið sem stað til
að búa á úr 4,4 í 4,3 af 5 mögulegum. Skorar Hafnarfjörður
sama og Kópavogur en mun hærra en Reykjavík en lægra
en Garðabær sem trónir á toppnum af þeim sveitarfélögum
sem voru með í könnuninni.
Helst er óánægja með skipulagsmál og skólamál koma
ekkert sérstaklega vel út. Reyndar hefur sést í þessum
könnunum að það skiptir máli hvernig samheldnin og
bæjarbragurinn er og sambærileg þjónustu getur fengið
mismunandi mat í sveitarfélögum sem veita eins þjónustu.
Það kemur hins vegar mjög á óvart að þegar íbúar eru
spurðir hversu líklegt eða ólíklegt er að fólk mælti með
þjónustu sveitarfélagsins við vini og ættingja þá kemur í
ljós að letjendur eru miklu fleiri en hvetjendur! Benda má
á að Reykjavík kemur miklu verr út þegar þetta er skoðað.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 1. febrúar
Messa kl. 11
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Sunnudagaskóli kl. 11
í Hásölum Strandbergs safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju. Leiðtogi er Anna Elísa
Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar eru
Margrét Heba og Ingeborg.
Kaffi, kex og djús í Ljósbroti Strandbergs
eftir messu og sunnudagaskóla.
Messa kl. 17
Biskup Íslands frú Agnes M.
Sigurðardóttir setur nýskipaðan
prófast Kjalarnessprófastsdæmis
sr. Þórhildi Ólafs inn í embætti.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Veitingar í Hásölum Strandbergs eftir messu.
Sóknarbörn fjölmennið.
Miðvikudagur 4. febrúar
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 1. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Gospelmessa kl. 20
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Sérstakir gestir Thelma Hrönn
Sigurdórsdóttir söngkona og
Jón Björgvinsson trommuleikari.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 1. febrúar
Fjölskyldustund kl. 11
Ólafur Stefánsson
handboltahetja
kemur í heimsókn
og spjallar um
„leikinn“
Kaffi og djús á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudaginn 1. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Stoppleikhópurinn sýnir
leikritið um Hans klaufa.
Gospelmessa kl. 20
í Haukaheimilinu
Kórar Ástjarnarkirkju og Lindakirkju syngja
undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar og
Óskars Einarssonar.
Undirleikur: Friðrik Karlsson, Þorbergur Ólafsson,
Óskar Einarsson og Matthías V. Baldursson.
Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina.
www.astjarnarkirkja.is
Sr. Þórhildur sett í
embætti á sunnudag
Nýr prófastur í Kjalarnessprófastsdæmi
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir mun á
sunnudag kl. 17 setja nýskipaðan prófast Kjalarness
prófastsdæmis, sr. Þórhildi Ólafs, prest í Hafnar
fjarðarkirkju, í embætti í Hafnarfjarðarkirkju.
Er Þórhildur annar hafnfirski presturinn sem gegnir
þessu embætti. Prestar og sóknarnefndarformenn í
Kjalarnessprófastsdæmi tilnefna í embættið en það er
biskups að velja þann sem fær embættið.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n