Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Námskeið fyrir hjón/pör
hefst fimmtudaginn 5. feb. kl. 19
Það er hugsað fyrir hjón/pör sem vilja
gera gott samband betra.
Kennt er sjö fimmtudagskvöld kl. 19-21.45.
Aðeins er greitt 1.500 kr. fyrir námshefti og
1.000 kr. fyrir hvern kvöldverð á mann, en
hver samvera hefst með mat.
Námskeiðið hefur verið kennt í fleiri
söfnuðum og orðið mörgum til góðs.
Skráning og nánari upplýsingar eru á
www.astjarnarkirkja.is.
Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
Alls höfðu 160 umsóknir
borist slökkviliðinu þegar
umsóknarfrestur um störf
slökkvi liðs og sjúkraflutninga
manna rann út þann 19. janúar sl.
Nú stendur yfir strangt inn
töku ferli þar sem umsækjendur
þurfa m.a. að standast próf í
hlaupi, lofthræðslu, innilokunar
kennd, þreki og styrk, sundi og
akstri.
Að því loknu taka þeir skriflegt
próf og fara síðan í læknisskoðun
og viðtal.
Fjarðarpósturinn leit við við í
Kaplakrika sl. laugardag en þar
þurftu umsækjendur að hlaupa 3
km vegalengd á innan við 13
mínútum á nýju hlaupabrautinni
í frjálsíþróttahöllinni.
Ekki komu allir ánægðir út úr
þessu prófi en sumir voru
staðráðnir í að prófa aftur að ári
liðnu. Það er ekki fyrir neina
aukvisa að komast í slökkviliðið
og menn verða að vera í mjög
góðu líkamlegu ástandi. Fjöl
margir stóðust með glans og
héldu áfram í næsta áfanga.
Hlaupa þarf þessa 3 km á innan
við 11:30 mínútum til að fá 10 á
próf inu.
Ekki fyrir lofthrædda
Fyrir utan Kaplakrika var
körfu og stigabíll Slökkviliðsins.
Reynd ar var hann merktur
Slökkviliði Reykjavíkur og vakti
það margar spurningar vegfar
enda, enda var það lið lagt niður
fyrir löngu er Slökkvilið höfuð
borgarsvæðisins var stofnað. Þar
hafði stiginn verið reistur beint
upp í loftið upp í um 20 m hæð.
Það var napurt þennan dag og
það reyndi blaðamaður Fjarðar
póstsins sem fékk að vera uppi í
körfunni þegar nokkrir um
sækjendur komu upp snarbrattan
stigann. Var reynt að fiska eftir
því hvort þeir væru hræddir með
ýmsum spurningum og að
sjálfsögðu að horfa á þá. Allir
virtust hæstánægðir en nokkuð
móðir er þeir komu upp á meðan
blaðamaður dvaldi þar uppi.
Fjölþætt inntökupróf
Inntökupróf felast í hlaupa
prófi, könnun á lofthræðslu og
inni lokunarkennd, skriflegu
prófi, þrek og styrktarprófi,
göngu prófi, sundprófi, aksturs
prófi, læknisskoðun og viðtali.
Ef sótt er um sumarstarf er bara
lagt fyrir þrek og styrktarpróf,
göngupróf, aksturspróf, læknis
skoðun og viðtal.
Þrekprófin fóru líka fram í
Hafnarfirði, í slökkvistöðinni við
Skútahraun.
Einn hópurinn undirbúinn fyrir 3 km hlaupið í Kaplakrika.
160 vilja vinna hjá Slökkviliðinu
Hlaupapróf og lofthræðslupróf geta fækkað umsækjendum
Stiginn er snarbrattur en allir eru tryggði í línu.
Ekki amalegt að vera kominn upp – og með þetta útsýni!
Mennirnir virðast sem lítið peð þegar litið er niður úr körfunni sem er í um 20 m hæð.
Glaðbeittur og léttur á fæti
síðustu metrana. Náði!
Einbeittur vilji til að klára.
Engin lofthræðsla þarna.
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n