Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Enn tafir á
að Löður fái
að opna
Það ætlar að vera mikil
þrauta ganga að fá að opna bíla
þvottastöð á atvinnulóð að
Reykjavíkurvegi 54 – í iðnað ar
hverfi. Íbúar í nágrenni hafa
mótmælt og framkvæmdaaðilar
hafa komið á móts við kvartanir,
fyrst með því að loka þeirri hlið
sem snýr að íbúðarblokkunum
og síðan með því að þvotta
stöðin verði alveg lokuð.
Skipulags og byggingarfulltrúi
samþykkti byggingaráform á
fundi 10.12.14 að fenginni
umsögn skipulags og bygg
ingar ráðs.
Nú hefur komið í ljós að
deiliskipulag fyrir svæðið frá
2002 hlaut aldrei lögformlega
staðfestingu, og þarf því að
grenndarkynna erindið skv. 44.
grein skipulagslaga.
Til að erindið verði grenndar
kynnt óskar skipulags og
bygg ingarráð nú eftir skriflegri
staðfestingu á því að þvotta
rýmin séu lokuð eins og upp
drættir sýni! Þá er einnig óskað
eftir að gerð verði grein fyrir
loftræstingu úr rýmunum áður
en erindið verði grenndarkynnt.
Á svæðinu eru tvær bensín
stöðvar, dekkjaverkstæði,
smur stöð og veitingasala.
Helgi Vilhjálmsson, kenndur
við Góu, hefur lengi sóst eftir
að fá að breyta deiliskipulagi á
lóð sem hann hefur að Tjarnar
völlum 13 þar sem hann hugðist
opna nýjan KFC veitingastað.
Á þriðjudag var á ný tekið
fyrir erindi Helga um að deili
skipulagi verði breytt þannig að
leyft verði að byggja fjöl hæða
hús með atvinnustarfsemi á
jarð hæð og litlum íbúðum á efri
hæðum. Skipulags og bygging
ar ráð tók neikvætt í erindi
Helga og vísaði í fyrri bókun
frá 18. september 2012.
Reyndar tók skipulags og
byggingarráð þá jákvætt í að
fyrirspyrjandi vinni breytingu
að deiliskipulagi í samræmi við
tillögu B í fyrirspurn inni en í
þeirri fundargerð var alls enga
til lögu B að finna! Þar sótti
hann um að byggja fjölhæðahús
með at vinnu starfsemi á jarðhæð
og litlum íbúðum eða hótel
íbúðum á efri hæðum.
Ekki er að finna neina sér
staka bókun á fundi ráðsins 18.
september 2012.
Lóð Helga er á milli húsnæðis
sem m.a. Apótek Hafnarfjarðar
er til húsa.
Hlaupasería FH og Atlantsolíu eru þrjú hlaup
sem hlaupin eru í janúar, febrúar og mars
Hlaupalengd er 5 km
Hlaupið af stað kl. 19 á
göngustígunum gegnt
Íþróttahúsinu v/ Strandgötu
í Hafnarfirði eftirfarandi daga:
1. fimmtudaginn 29. janúar
2. fimmtudaginn 26. febrúar
3. fimmtudaginn 26. mars.
Hlauparöð FH
og Atlantsolíu 20
15
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. 2
01
5
Skráning:
Skráning klukkutíma fyrir hlaup
í Íþróttahúsinu á Strandgötu
Verð aðeins 500 krónur
Sjá nánar á
www.hhfh.is
Frítt í Suðurbæjarlaug
eftir hlaup
Frábær golfnámskeið fyrir
krakka á aldrinum 4-10 ára
Nú ætlum við í Keili að bjóða upp á SNAG-golfæfingar (golfþrautabraut)
fyrir krakka 4-10 ára á laugardögum í Hraunkoti, æfingasvæði Keilis í vetur.
Æfingar verða á laugardögum, 18 vikur frá 22. nóvember.
Þátttökugjald fyrir 4-5 ára er 7.000 kr. (ekki niðurgreitt af Hafnarfjarðarbæ).
Fyrir 6-10 ára kostar 12.000 kr. (full niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ).
Kylfur á staðnum fyrir alla.
Þátttakandi þarf að vera í
fylgd með fullorðnum.
Aldurskipting og mæting:
4-7 ára kl. 09:15 – 10:00
8-10 ára kl. 10:00 – 10:45
Skráning fer fram á heimasíðu Hafnarfjarðar
www.hafnarfjordur.is/minar-sidur/
Upplýsingar í Hraunkoti síma 565 3361 eða bjorgvin@keilir.is
Endilega kom
ið og prófið
prufutíma fyri
r skráningu!
Dýra vernd
unar félag
Hafn firð inga
Dýraverndunarfélag Hafn
firðinga er eins og nafnið ber
með sér, félag sem hefur velferð
og verndun dýra að leiðarljósi.
Félagið var stofnað 1. maí
1928 og er því 75 ára gamalt
félag. Á seinni árum hefur starf
félagsins þó legið niðri.
Nú hefur verið ákveðið að
láta reyna á hvort áhugi er á með
al Hafnfirðinga að endur vekja
félagið og gera það að þeim
öfluga málsvara um dýravernd
eins og það var um árabil.
Hefur því verið ákveðið að
boða til aðalfundar félagsins
laugar daginn 7. febrúar nk.
Fundurinn verður haldinn í
Safnaðarheimili Hafnarfjarðar
kirkju og hefst kl. 15. Áhugafólk
um velferð dýra er hvatt til að
koma á fundinn og leggja góðu
málefni lið.
Fær ekki að byggja litlar íbúðir
Söngkeppni
félags
miðstöðva
Telma Kolbrún Elmarsdóttir
og Inga Steinunn Henningsdóttir
úr félagsmiðstöðinni Ásnum og
Eyþór Eysteinsson úr Mosanum
sigruðu í söngkeppni félagsmið
stöðvanna í Hafnarfirði sem
haldin var 21. janúar sl. í Víði
staðaskóla en keppnin mun
hafa verið mjög hörð í ár.
Í öðru sæti var Sara Renee
Griffin, félagsmiðstöðinni
Hraun inu og í þriðja sæti voru
Márus Björgvin Gunnarsson og
Fanný Lísa Hevesi úr félags
miðstöðinni Vitanum
Keppnin er undankeppni
Söng keppni Samfés sem haldin
verður í Laugardalshöll 14.
mars.