Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Það urðu mikil tímamót hjá
vinunum hafnfirsku, Guðjóni
Geir Geirssyni (20) og Róbert Ó.
Elmarssyni (21) er þeir stofnuðu
fyrirtækið Inklaw í október
2013. Guðjón Geir hannar og
saumar föt fyrir stráka á aldrinum
1330 ára og Róbert sér um
sölumálin. Þeir hafa komið sér
fyrir í litlu húsnæði að Skúta
hrauni 2, húsi sem verktaka
fyrirtækið Hagvirki hafði
höfuðstöðvar sínar á sínum tíma.
Guðjón segist leita hugljóm
unar m.a. í bandaríska tónlistar
heiminn. Hann hlusti mikið á
hiphop tónlist og íhugi bæði
tónlist og texta. Fötin sem þeir
framleiða er seld undir vöru
merkinu Inklaw Clothing og
hafa þeir fengið einkarétt á vöru
merkinu um allan heim. Guðjón
segir að búið sé að gera allt í
stelputískunni en mun minna í
strákatískunni. Hann segist
sækja hugmyndir þaðan en um
þessar mundir sé töluvert að
gerast í strákatískunni. Segir
hann gaman til þess að vita að
nokkuð af stelpum sé að kaupa
vörur þeirra til að klæðast sjálfar.
Öll sala á netinu.
Öll sala fer fram á netinu ef
undanskilin er sala í tveimur
verslunum í Austurríki og í
Englandi. Róbert segir að þeir
hafi selt vörur til um 50 landa og
að erlendir umboðsmenn séu
farnir að sýna þeim mikinn
áhuga. Þeir muni að öllum lík
ind um semja við einn á næstunni
og þá þurfi þeir að fara að setja
allt á fullan snúning og fara að
framleiða á lager. Hingað til hafa
þeir aðeins framleitt upp í pant
anir en þeir leggi mikla áherslu á
gæði og sauma allt sjálfir á
Skútahrauninu. Efni kaupi þeir
af heildsala sem flytji inn eftir
þeirra óskum. Sölusíðan er á
www.inklaw.com en þá er einnig
að finna á Facebook og á Twitter.
Ný vörulína væntanleg
Ný vörulína er væntanleg hjá
þeim og er hún mjög stílhrein að
sögn þeirra félaga. Hún á að vera
nokkuð tímalaus og einkennandi
fyrir þeirra framleiðslu – nokkurs
konar yfirlýsing af þeirra hálfu.
Hún á að endast í um 2 ár. Þá er
önnur vörulína í undirbúningi til
viðbótar við hana en þeir reikna
með að láta eftirspurnina ráða
nokkuð framleiðslunni en þeir
þurfi stöðugt að hanna og þróa
nýjar vörur. Meðal þess sem er
væntanlegt eru handsaumaðar
gallabuxur! Það er mikið lagt í
þær og eiga örugglega eftir að
njóta vinsælda.
Án stuðnings
Aðspurðir segjast þeir félagar
ekki hafi fengið neinn fjárhags
legan stuðning og reyndar hafi
þeir ekki leitað eftir honum. Þeir
hafi byrjað með því sem næst
tvær hendur tómar og hægt og
rólega náð að byggja fyrirtækið
upp. Þeir fái því einnig að ráða
þróuninni alveg sjálfir. Þeir hafa
tekið þátt í Gullegginu og Startup
Reykjavík en annars hefur allur
tíminn farið í að byggja upp
fyrirtækið.
Guðjón og Róbert eru báðir
Flensborgarar en nýja fyrirtækið
tók það mikinn tíma að þeir
Fjarðargötu 19
(við hliðina á Subway)
Aðeins 3 verð
í búðinni!
2.000,- 4.000,- 6.000,-
Svart og hvítt er áberandi í hönnun Inklaw.
Guðjón hannar og selur en Róbert sér um markaðsmálin.
Guðjón Geir Geirsson og Róbert Ó. Elmarsson.
Inklaw Clothing selt til um 50 landa
Tveir ungir Hafnfirðingar láta drauminn rætast
Lögð hefur verið áhersla á að kynna vörurnar á líflegan og skemmtilegan hátt.
Mikil áhersla er lögð á gæði.
Úrvalið er ótrúlega mikið hjá
þessu litla fyrirtæki.
hættu áður en þeir kláruðu
stúdentsprófið. Þeir eiga mis
mikið eftir og segjast ekki ólík
legt að þeir ljúki því við fyrsta
hentugleika.
Framtíðardraumar
Þeir félagar segja að draum
urinn sé að Inklaw verði virt
vörumerki á heimsvísu en þeir
segjast vera meðvitaðir um að öll
uppbygging þurfi að vera mark
viss og þeir ætli t.d. ekki að
fjárfesta í stórum lager. Fyrst um
sinn verður bætt við fólki í
saumaskap til að anna eftir
spurninni og til að byggja upp
lágmarks lager fyrir helstu vör
urnar.
Þeir búast við að sprengja utan
af sér húsnæðið fljótlega og að
þeir þurfi að fara að skoða stærra
húsnæði í Hafnarfirði. Þeir vilji
þó frekar búa þröngt í góðu hús
næði en að fara í of stórt húsnæði
sem þeim líður ekki vel í.
Það er greinilegt að nóg er að
gera hjá þessum hressu strákum
sem gaman verður að fylgjast
með í framtíðinni.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n