Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu
565 5900
midi.is
“hló eins og brjálæðingur”
Frosti í Harmageddon
föstudagur
30. janúar kl 20.00
UPPSELT
mmtudagur
5.febrúar kl 20.00
örfáir miðar
“Konubörn sló í gegn”
Fjarðarpósturinn
Næstu sýningar
Kristinn Ólafsson sá torkenni
leg spor fyrir utan sumarbústaðinn
sinn efst í Sléttuhlíðinni. Hann
tók mynd af þeim sem sjá má hér
til hliðar. Segist hann vera búinn
að rekast á þessi för í vetur og
hafi verið alveg með það á hreinu
að þetta væri ekki eftir hund.
Jón Sigursson tófubani frá
Vopnafirði sagði eftir að hafa
skoðað myndina að þetta væri
eftir tófu.
Uppland Hafnarfjarðar iðar
greinilega af lífi en minnkur er
t.d. ekki sjaldséður gestur þar.
Rjúpan gerir sig líka kærkomna
víða í bæjarlandinu og er það
sem hún viti að ekki má skjóta
fugla í bæjarlandinu. Tófan er
talið eina upprunalega land
spendýrið á Íslandi og á séu ýmis
nöfn eins og refur, melrakki,
fjallarefur, gráfóta, skolli og
mörg önnur.
Tófa í Sléttuhlíðinni
Upplandið iðar af lífi
„Þú leitar líka að mér“
Hafnfirskur texti og bassaleikur
Sameining St. Jósefsspítala
og Landspítala gerræði
Sjúkrahúsið St. Jósefsspítali
hafði verið starfandi í 85 ár þegar
fyrrum velferðarráðherra, Guð
bjartur Hannesson, lagði starf
semina niður. Og það þrátt fyrir
að 70% íbúa Hafnar
fjarðar höfðu mótmælt
breytingum á starfsemi
St.Jósefsspítala. Íbúar
Hafnarfjarðar eiga nú
15% í eigninni og
lands menn 85%, þar af
leið andi bætist 10% í
viðbót við hlut Hafn
firð inga.
Þegar ríkið keypti
85% af spítalanum af
St. Jósefssystrum og bæjarstjórn
Hafn firðinga 15%, var sjúkra
húsið í fullum rekstri.
Ríkisvaldið tók svo einhliða
ákvörðun um niðurlagningu
sjúkra hússins og hirti alla innviði
þess, allar gjafir gefnar af líknar
félögum í Hafnarfirði og síðan
hefur húsið legið undir skemmd
um. Nú á að selja sjúkrahúsið
hæstbjóðanda.
Hafnfirðingar vilja sjúkrahúsið
sitt aftur, uppgert og afhent með
þeim búnaði sem fyrir var í
sjúkra húsinu.
St. Jósefsspítali var sérgreina
sjúkrahús, sem sinnti að hluta til
öllu landinu. Þar voru sérfræð
ingar sem ekki voru annarsstaðar
og gerðu um 4000 aðgerðir á ári.
Sumir þessara sérfræð inga hættu
eftir að sjúkra húsinu var lokað og
aðgerðirnar lögðust af eftir sam
einingu við LSH. Af
leið ingin er lengri bið
listi með verri lífs gæð
um þurfandi sjúkl inga.
Á St. Jósefsspítala
var rekin meltingardeild
á landsvísu og forvarnir
unnar varðandi ristil
krabbamein. Þessi deild
var í fararbroddi á
Ís landi og horft til
starfs ins er lendis frá.
Þetta starf var eyðilagt, þrátt fyrir
loforð um að starfseminni skyldi
haldið áfram eftir sameiningu.
Ekkert hefur staðist í því máli.
Legurými á lyflækningadeild á
St. Jósefsspítala var um 50 rúm,
einmitt það sem upp á vantar í
dag samkvæmt skýrslu land
læknis. Lyflækningadeildin átti
að halda áfram störfum sem og
stoðdeildir hennar eftir sam ein
inguna, það loforð var líka svikið.
En með því að leggja niður
lyflækningadeild St. Jósefsspítala
fór legunýting Landspítalans úr
85% nýtingu í yfir 100% sem
þýðir sjúklingalegur á göngum
og baðherbergjum með tilheyr
andi hraðútskriftum.
Augnsteinaaðgerðir voru hátt í
1000 árlega á St.Jósefsspítala og
voru þær margfalt ódýrari en
samskonar aðgerðir á LSH. Í dag
hafa biðlistar eftir þessum
aðgerðum margfaldast.
Loks ber að nefna kostnað
skattgreiðenda vegna ákvörðunar
fyrrum stjórnenda heilbrigðismála
um sameiningu sjúkrahúsanna.
Frá því að sjúkrahúsið var keypt
af St. Jósefssystrum 1987 á 130
milljónir hafa skattgreiðendur
greitt til LSH árin 20122014
vegna þessarar sameiningar um
þrjá milljarða, án þess þó að fá
þjónustuna sem áður var veitt á
St.Jósefsspítala. Sameiningin var
því í raun ekki flutningur á
þjónustu heldur hún hreinlega
aflögð.
Að framansögðu er augljóst að
ákvörðunin um að loka St.
Jósefsspítala var RÖNG og færa
má góð rök fyrir því að hún
standist ekki lög. Þessi ákvörðun
var ekki tekin með hagsmuni
sjúklinga að leiðarljósi og
einungis ein leið til úrbóta: Að
snúa við þessari sameiningu og
koma aftur á heilbrigðisstarfsemi
í St. Jósefsspítala.
Steinunn
Guðnadóttir
Hljómsveitin Hinemoa tekur
þátt í Söngvakeppni Sjónvarps
ins 2015 með lagið „Þú leitar
líka að mér“. Tveir ungir Hafn
firðingar koma að þessu lagi en
það eru þau Sindri Magnússon
(24), bassaleikari hljómsveit
arinn ar og Bergrún Íris
Sævars dóttir (29), texta
höfundur, en hún samdi
líka textann við lagið
„Eftir eitt lag“ sem vakti
mikla athygli í
Söngvakeppninni 2014.
Hljómsveitin hefur
starf að í núverandi mynd
frá því í ágúst 2014 og hefur
verið mjög dug leg við að spila
og taka upp síðan þá. Hinemoa
hefur komið reglu lega fram, þar
á meðal 12 sinnum á Airwaves
hátíðinni sl. nóvember.
Sindri lærði á kontra bassa í
Tónlistarskóla Hafn ar
fjarðar og er í námi við
Tónlistarskóla FÍH.
Bergrún Íris spilaði á
saxó fón í mörg ár í
Skóla hljóm sveit Kópa
vogs en semur nú einn og
einn laga texta.
Bergrún Íris
Sindri
Af plötuumslagi Hinemoa
REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562
SENDUM
FRÍTT HEIM
í Hafnarfjörð, Garðabæ og á Álftanes
Pantaðu á www.osushi.is
..og fáðu afslátt!netinu
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n