Fjarðarpósturinn - 29.01.2015, Page 12
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2015
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund Stofnuð 1983
EIGN VIKUNNAR
Mánastígur 6. Glæsilegt
einbýli á besta stað í Hfj.
Verð: 79 millj. kr.
Samningi
um
reksturs
leikskóla
sagt upp
Hafnarfjarðarbær hefur sagt
upp samningi við Bjargir ehf.
um rekstur ungbarnaleik skól
ans Bjarma með 6 mánaða
fyrirvara. Í tillögu sem lögð
var fram í fræðsluráði á mánu
daginn segir að við þessa
ákvörð un sé litið til hag
kvæmni rekstrar eininga í
leikskólum í bæjar félaginu,
en dvalargildið á Bjarma sé
1723% dýrara en á öðrum
þjónustureknum leik skólum
bæjarins.
Ekki hefur heldur alltaf
verið hægt að fylla í pláss
leikskólans þótt bærinn þurfi,
samkvæmt þjónustusamningi,
að greiða fyrir allt að 24 börn
í átta tíma á dag. Uppsögnin
mun ekki hafa nein áhrif á þau
börn sem nú eru í Bjarma því
þau munu öll fara í aðra
leikskóla næsta haust eins og
til stóð vegna aldurs þeirra.
Rósa Guðbjartsdóttir, for
maður fræðsluráðs, segir að í
fjárhagsáætlun sé gert ráð
fyrir lokun deilda og eftir
skoðun hafi þetta verið eðli
legasti kosturinn. Alls ekki sé
verið að skerða þjónustu við
íbúa enda færist þjónustan á
aðra leikskóla bæjarins sem,
vegna fækkunar barna, hafa
möguleika á að taka við
yngstu börnunum.
Fulltrúar Samfylkingar og
VG greiddu atkvæði gegn
tillögunni og ítrekuðu fyrri
bókanir sínar í þessu máli.
Það svigrúm sem skapist við
fækkun leik skólabarna á
tilteknum aldri hefðu þeir
viljað nýta til að efla leik
skólastigið með því að stíga
fyrstu skrefin í því að lækka
inntökualdur á leikskóla til
frambúðar.
Hún vakti athygli bókun
áheyrnarfulltrúa foreldraráðs
leikskóla og grunnskóla sem
lýstu áhyggjum á vinnu
brögðum við uppsögn samn
ingsins og þeim fyrirvara sem
stjórnendur leikskólans fengu.
Eins og áður hefur komið
fram gerðu stjórnendur skól
ans samning með 6 mánaða
uppsagnarfresti.