Fjarðarpósturinn - 30.04.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Með einu pennastriki hefur
menntamálaráðherra ákveðið að
einkavæða Iðnskólann í Hafnar
firði og segja upp öllu starfsfólki
hans. Í nafni hagræðingar á að
leggja skólann undir Tækni
skólann ehf. Starfsemi á áfram
að vera í Hafnarfirði en sjálfstæðið er tekið burt og
fátt bendir til annars en að hægt og rólega hjaðni
undan iðnmenntun í Hafnarfirði. Kusum við þetta
yfir okkur?
Markaðshyggja í skólastarfi er að verða landlæg og
í stað þess að hugsa til lengri tíma er hugsað til
skamms tíma í senn og hagræðingar sem alls ekki
þurfa að skila ábata þegar til lengri tíma er litið.
Iðnmenntun hefur átt undir högg að sækja þrátt fyrir
að þörfin á vel menntuðu iðnaðarfólki aukist jafnt og
þétt. Í stað þess að skoða hvað gera þurfi til að bæta
iðnmenntunina, auka möguleika á framhaldsmenntun
í iðninni í stað þess að hvetja gott iðnaðarfólk út úr
henni og að hvetja til iðnmenntunar, er hugsað um
hvernig spara megi peninga. Þó ég vilji kaupa
sláttuvél með nágrannakonunni, þarf ég ekki að
giftast henni til þess! Á sama hátt hefði mátt auka
samstarf skólanna án þess að þeir þyrftu að ganga í
eina sæng. Iðnmenntun á Íslandi verður ekki betri við
það að einkavæða Iðnskólann í Hafnarfirði, það er
deginum ljósara.
Enn verri er aðferðafræðin þar sem ekkert samráð
er haft við Hafnarfjarðarbæ, engin almenn umræða
um málið og engin fagleg rök kynnt áður en
ákvörðunin er tekin. Fækkun nemenda frá 2008 hefur
verið miklu meiri í Tækniskólanum en í Iðnskólanum
þar sem nemendur er aftur farið að fjölga. Í úttekt um
sameininguna er sagt að bóknámið kalli frekar á unga
fólkið og geri það enn meir við styttingu á námi til
stúdentsprófs. Engar lausnir eða tillögur eru um
iðnnámið í hvítbók menntamálaráðherra! Fullyrt er
að áfram muni fækka í skólunum báðum. Framlög til
skóla byggjast á fjölda nemenda sem taka próf.
Ekkert fæst því fyrir þá sem falla út fyrir próf. Af
hverju? Með fjárhagslegum ávinningi er sagt að
gjaldtaka af nemendum verði með sama hætti og
almennt í framhaldsskólum! Hvað er verið að boða?
Tækniskólinn er í dag í raun 11 skólar með 11
skólastjórum auk yfirstjórnar. Tólfti skólinn verður í
Hafnarfirði, a.m.k. á meðan ekki er hægt að losna út
úr leigusamningi sem rennur út árið 2024, nema
húsnæðið verði notað undir annað. Ráðherra sýndi
Hafnfirðingum og bæjarstjórn Hafnarfjarðar lítils
virðingu með þessum vinnubrögðum.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagur 3. maí
Messa kl. 11
Félagar úr Barbörukórnum syngja,
organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
50, 60 og 70 ára afmælisárgangar
fermingarbarna sækja kirkjuna og borða saman
léttan hádegisverð í Hásölum Strandbergs
safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju eftir messu.
Veislustjóri verður úr hópi 50 ára fermingarbarna.
Björn Pálsson ljósmyndari tekur hópmyndir.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 3. maí
Fjölskylduhátíð
í Kaldárseli kl. 11
Boðið er upp á létta og skemmtilega
dagskrá fyrir alla fjölskylduna og
hljómsveitin heldur uppi fjörinu.
Börnin fá grillaðar pylsur og hinir eldri
setjast að veisluborði í sumarbúðunum og
þar er tekið við frjálsum framlögum fyrir
veitingarnar.
Sjáumst í Kaldárseli!
Þriðjudagurinn 12. maí
Aðalfundur kl. 20
Aðalfundur safnaðarins kl. 20 í safnaðar
heim ilinu. Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarstjórn.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 3. maí
Sunnudagaskóli kl. 11
Þema: Allir litir vorsins.
Krakkar komi í litskrúðugum fötum eða
hafi með sér eitthvað litríkt.
Gospelmessa kl. 20
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar.
Sr. Kjartan leiðir stundina.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 3. maí
Guðsþjónusta kl. 11
Hulda Hrönn Helgadóttir þjónar.
Tónlist: félagar úr kór Víðistaðakirkju
undir stjórn Helgu Þórdísar.
Kaffi eftir guðsþjónustuna.
www.vidistadakirkja.is
Frjálsíþróttafólk í
samstarf um aðstöðu
Fyrir skömmu var undirritaður samstarfssamningur
milli SamVest, héraðssamböndin á Vesturlandi og
Vestfjörðum; UDN, USK, HSH, UMSB, UMFK, HSS,
HFF og Frjálsíþróttadeildar FH. Samningurinn felur í
sér m.a. að SamVest býðst að koma á æfingar á
æfingatíma frjálsíþróttadeildar FH undir stjórn 23
þjálfara FHinga 34 sinnum á ári. Eins býðst iðkendum
SamVest sem stunda framhalds skólanám á höfuð
borgarsvæðinu að stunda æfingar hjá FH og grunnskóla
nemendum að koma á einstaka æfingar hjá FH. Á móti
býðst iðkendum og þjálfurum frj.deildar FH til boða að
nýta sér aðstöðu á starfssvæði SamVest og að mæta á
einstaka æfingar hjá aðildarfélögum SamVest.
Þetta er tímamótasamningur í samstarfi milli lands
hluta eins og framkvæmdastjóri Frjálsíþrótta sam
bandsins komst að orði við undirritunina.
Björg Ágústsdóttir f.h. SamVest og Súsanna Helga
dóttir f.h. Frjálsíþróttadeildar FH við undirritunina.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Litli könnuðurinn. Potað í linsu ljósmyndarans.