Fjarðarpósturinn - 30.04.2015, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Sennilega hefur mikilvægi jafn
aða stefnunnar aldrei verið meira í
íslensku samfélagi en einmitt
núna þegar ójöfnuður er að aukast
og verða skýrari.
Ljóst er að stjórnvöld
gera ekkert til þess að
sporna við þeirri þró
un sem á sér stað,
þvert á móti virðist
það vera á stefnuskrá
núverandi ríkis stjórn
ar að tryggja þeim
efnameiri enn stærri
sneið af kökunni og
láta þá efnaminni
borga brúsann.
Stöðugleikinn ekki einkamál
launafólks
Það er stefna núverandi stjórn
valda að láta þá sem lægstar hafa
tekjurnar viðhalda efnahagslegum
stöðugleika í samfélaginu. Að
þeirra mati þolir íslenska krónan
ekki sveiflur og því þarf launafólk
að borga á meðan stórfyrirtæki
hafa stórhagnast á gengishruni.
Samfylkingin styður kröfur
launa fólks um hækkun lág marks
launa í 300 þúsund og teljum við
það jafnframt fráleita kröfu að
ætlast til þess að þeir sem verst
hafa kjörin eigi að standa straum
af stöðugleika í íslensku sam
félagi.
Sveitarfélögin og lífskjörin
Þjónusta sveitarfélaga og
verðlagning hennar hefur mikil
áhrif á lífskjör íbúanna og mögu
leika þeirra til að láta enda ná
sam an og lifa með reisn. Við
verðum að horfast í
augu við það að gjöld
á barnafólk eru meiri
hér á landi en í þeim
löndum sem við
venjulega viljum bera
okkur saman við.
Fæðingarorlof er
sömuleiðis styttra og
húsnæðis stuðningur
er minni. Ekkert bólar
á húsnæðisfrumvarpi
velferða ráðherra á þeim tveimur
árum sem hún hefur unnið að
málinu. Það skýrir þá forgangs
röð un sem unnið er eftir, en
umbætur í húsnæðismálum eru
einmitt eitt brýnasta velferðarmál
samtímans.
Mannréttindi alla ævi
Ríkið hefur hingað til þráast við
að gefa sveitarfélögunum tækifæri
til að samþætta og efla þannig
heimaþjónustu, heimahjúkrun og
aðra mikilvæga stoðþjónustu sem
veitt getur fólki grundvöll til að
búa á eigin heimili lengur og við
eðlileg og ásættanleg lífsskilyrði.
Ef ætlunin er að tryggja borgurum
þessa lands viðunandi lífskjör
verður þetta að breytast. Stjórn
völd og samfélagið allt þarf að
viðurkenna rétt fólks til fullra
mannréttinga alla ævi og haga
þjónustunni þannig að fólki á efri
árum sé ekki svipt sjálfs ákvörð
unarrétti sínum, rétti til einkalífs
og eðlilegra lífsskilyrða.
Sérhagsmunir víki
Við þurfum að stokka upp í
íslensku samfélagi og tryggja að
almenningur fái sanngjarna hlut
deild í sameiginlegri verð mæta
sköpun þjóðarbúsins. Að launa
fólk njóti afrakstur vinnu sinnar
og nýtingu þeirra auðlinda sem
við eigum öll saman. Við þurfum
leikreglur sem tryggja að
al manna hagsmunir ríki en sér
hagsmunir víki. Við viljum sam
félag sem virðir og fagnar fjöl
Jöfnum leikinn
Adda María
Jóhannsdóttir
Gunnar Axel
Axelsson
Ófeigur
Friðriksson
Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf
í spennandi umhverfi flugheimsins.
IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg
og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu.
Um er að ræða störf í cateringu, hlaðdeild og flugvélaræstingu.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum,
reglusemi, stundvísi, sveigjanleika og árvekni. Unnið er á vöktum.
Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur:
CATERING
Starfið felst m.a. í útkeyrslu og
annarri tengdri þjónustu sem
fer um borð í flugvélar.
Aldurstakmark 20 ár, almenn öku-
réttindi, vinnuvélaréttindi æskileg,
íslensku- og/eða enskukunátta.
HLAÐDEILD
Lágmarksaldur 19 ár, almenn
ökuréttindi, vinnuvélaréttindi
æskileg, íslenska og/ eða
enskukunnátta.
RÆSTING FLUGVÉLA
Lágmarksaldur 18 ár, almenn öku-
réttindi, íslensku og/eða
enskukunnátta.
STÖRF HJÁ IGS 2015
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS
sjá www.igs.is fyrir 15. maí 2015.
breyti leika mannskyns og gefur
öllum jöfn tækifæri.
Í tilefni af alþjóðlegum baráttu
degi launafólks sendum við okkar
baráttukveðjur!
Höfundar eru bæjarfulltrúar
Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði.
Handbolti:
6. maí kl. 19.30, Mosfellsbær
Afturelding Haukar
úrvalsdeild karla úrslit
Knattspyrna:
4. maí kl. 19.15, KRvöllur
KR FH
úrvalsdeild karla
Handbolti úrslit:
Karlar:
Valur Haukar: 2229
Körfubolti úrslit:
Karlar:
Haukar Tindastóll: 6269
Íþróttir
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja söluhús á
17. júní geta sótt um söluleyfi til skrifstofu tóm
stunda mála, netfang: ith@hafnarfjordur.is eða í
þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötur 6
merktar 17. júní.
Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en
fimmtudaginn 20. maí kl. 15:00, en þá verður
dregið um staðsetningu söluaðila og er aðilum
boðið að vera viðstaddir.
Þjóðhátíðarnefnd
SÖLUTJÖLD/HÚS 17. JÚNÍ