Fjarðarpósturinn - 27.08.2015, Síða 3
www.fjardarposturinn.is 3FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
Í vikunni voru undirritaðir
samningar við starfsfólk í
leikskólum bæjarins sem fær
námsstyrk frá Hafnarfjarðarbæ
til að stunda nám í leikskóla
kennara fræðum. Markmiðið
með námsstuðningi við starfs
fólk leikskólanna er að fá fleiri
leikskólakennara til starfa.
23 starfsmenn leikskólanna
hafa fengið námsstyrk til að
stunda nám í leikskólafræðum,
ýmist til grunnnáms eða meist
aranáms. Þeir fá stuðning til
þess að sækja kennslu á dag
vinnutíma og fá þannig leyfi frá
störfum í leikskólunum á
fullum launum.
Fjölskyldutilboð
4 ostborgarar
m/ frönskum og
kokteilsósu
4.250,-
Bílaborgarinn
m/ frönskum og
kokteilsósu
og 0,5 l Coke
1.790,-
Flatahrauni 5a • sími 555 7030
www.burgerinn.is
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
15
08
Alls eru um 5.000 félagslegar
íbúðir á landinu í eigu sveitar
félaga. Alls hefur Hafnarfjarðar
bær yfir að ráða 247 íbúðum og
hafði þeim fjölgað um 19 á árun
um 20132014. 21 íbúð leigir
Hafnarfjarðarbær af lögaðilum
og félagasamtökum en aðrar eru
í eigu bæjarins. Aðeins Reykja
vík, Kópavogur og Akureyri
hafa fleiri félagslegar íbúðir og
aðeins í Reykjavík og í Vest
manna eyjum fjölgaði þeim
meira en í Hafnarfirði á þessu
tímabili.
Þrátt fyrir að Hafnarfjarðarbær
telji að skortur sé á félagslegum
íbúðum í bænum og að í gildi sé
í gildi húsnæðisáætlun og gerð
hafi verið áætlun um húsnæðis
þörf, verðu félagslegum íbúðum
ekki fjölgað 20152016. Í Kópa
vogi er áætlað að fjölga leigu
íbúðum um 25 á þessu tímabili.
Hlutfall félagslegra íbúa í
Hafnarfirði er 0,89 íbúð á hverja
100 íbúa en til samanburðar má
nefna að þær eru 1,84 í Reykja
vík, 0,19 í Garðabæ, 1,27 í
Kópavogi og 1,58 á Akureyri.
Alls sóttu 74 fjölskyldur eða
einstakl ingar um félagslegt
leiguhúsnæði hjá Hafnar fjarðar
bæ árið 2014 og voru allar
um sóknir samþykktar. í árslok
2014 var 321 umsækjandi á bið
lista eftir félagslegu leigu
húsnæði, þar af 25 innflytjendur,
167 einstaklingar, 132 einstakl
ingar með börn og 22 fjölskyldur.
Alls staðar er áberandi lægst
hluti þeirra sem eru á biðlista eft
ir leiguhúsnæði fjölskyldur, þ.e.
hjón eða sambúðarfólk.
Hafnarfjarðarbær greiddi á
árinu 2014 sérstakar húsaleigu
bætur vegna 522 heimila.
Þessar upplýsingar koma fram
í skýrslu Varasjóðs húsnæðismála
lét gera.
247 félagslegar leiguíbúðir í Hafnarfirði
Skortur á félagslegum leiguíbúðum en ekki á að fjölga
Ertu gamall skáti?
Eða hefur þig langað
að verða skáti?
Skátafélagið Hraunbúar • Hjallabraut 51, Hafnarfirði
www.hraunbuar.is • www.facebook.com/hraunbuar • 565 0900
Hraunbúar leita að foringja
fyrir drekaskáta - stelpur í vetur
Að vera í skátunum
er bæði gefandi og spennandi!
Upplýsingar gefur Sigríður
í síma 696 1762 eða sigridur@hraunbuar.is
23 leikskólastarfsmenn fá námsstyrkStarfsfólk óskast
Óskum eftir duglegum, jakvæðum og hressum
einstaklingum í fullt starf og í starf vaktstjóra
á virkum dögum á nýjan veitingastað að
Reykjavíkurvegi 62.
Upplýsingar í síma 771 1516 og í netfanginu
thorbergur@localsalad.is