Fjarðarpósturinn - 27.08.2015, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
KvennaKór Hafnarfjarðar
getur bætt við sig konum sem hafa
áhuga á að syngja í skemmtilegum félagsskap.
Raddprófun fer fram í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
fimmtudaginn 3. september kl. 19:30.
Ýmislegt skemmtilegt verður á döfinni í vetur.
Fyrsta æfing kórsins verður mánudaginn 7. september.
Stjórnandi kórsins er Erna Guðmundsdóttir.
NáNaRi upplÝSiNGaR GEFa:
Fjóla Kristjánsdóttir s. 695-1868
Elísabet Sverrisdóttir s. 899-6802
kvennakor.hafnarfjardar@gmail.com
NÁMSKEIÐ
á vegum
Félags eldri borgara Hafnarfirði
Ef næg þátttaka fæst, verður boðið upp
á eftirtalin námskeið:
1. Tölvunámskeið fyrir byrjendur
2. Notkun spjaldtölvu (iPad)
3. Enska, talmál
4. Tálgun
5. Fluguhnýtingar
6. Bridge
Áhugsamir skrái sig á lista í Hraunseli
fyrir 15. september.
Stjórn Félags eldri borgara Hafnarfirði.
Kolbeinn Höður Gunnarsson,
einn efnilegasti spretthlaupari
landsins er genginn í raðir frjáls
íþróttadeildar FH.
Kolbeinn, sem er tvítugur að
aldri, hefur td. hlaupið 100 metra
á 10,65 sekúndum sem er besti
tími Íslendings í ár, 200 metra á
21,37 sekúndum og 400 metra á
47,28 sekúndum. Þá á hann
Íslandsmet í 200 metra hlaupi í
fyrsta senn sem keppt var í nýju
frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika
og 400 metra hlaupi innanhúss.
Með æfingum starfar Kolbeinn
sem skólaliði í Lækjarskóla.
Kolbeinn hefur æft og keppt fyrir
Ungmennafélag Akureyrar þar
til hann nú flutti suður.
Einn efnilegasti sprett
hlaupari landsins til FH
Frjálsíþróttahöllin réði mestu
Kolbeinn Höður við undirskrift samnings við FH sl. mánudag
ásamt Súsönnu Helgadóttur stjórnarmanni og Sigurði
Haraldssyni formanni frjálsíþróttadeildar FH.
Mikið verður um dýrðir í
græna húsinu á Tjarnarvöllum á
laugardaginn þegar opnuð verð
ur ný Reebok Fitness líkams
ræktarstöð – í sama húsi og
Hótel Vellir. Þegar blaðamann
bara að garði var verið að bera
inn glæný tæki en Guðríður Erla
Torfadóttir, framkvæmdastjóri
Reebok Fitnes segir öll tæki í
stöðinni vera ný og af full komn
ustu gerð. Húsnæðið er rúmgott
og margir salir. Aðal tækjasalur
inn er bjartur og stór en auk hans
er sérstakur hjólasalur með full
komnustu hjólum á landinu að
sögn Gurrýar. Þá er stór almennur
æfingasalur og hot yogasalur en
auk þess er heitur pottur og kald
ur pottur, gufubað og sauna auk
búningsklefa. Verður þetta best
búna Reebok Fitness stöðin en
fyrir eru stöð í Holtagörðum sem
opnaði 2011 og stöð i Urðarhvarfi
sem var opnuð í janúar sl.
Gurrý segir að einkenni stöðv
arinnar sé gott verð og að hægt
Guðríður Erla Torfadóttir, framkvæmdastjóri Reebok Fitness í nýju stöðunni að Tjarnarvöllum 3.
Enn bætir í líkamsræktarflóruna
Reebok Fitness opnar á Tjarnarvöllum á laugardag
sé að skrá sig í áskrift án bindi
tíma. Boðið verður upp á fjöl
breytta hóptíma sem eru inni
faldir í mánaðarverðinu og má
þar m.a. nefna mömmutíma með
börnunum. Að auki verði boðið
upp á einkaþjálfun og sér nám
skeið. Öll sala fer fram á
heimasíðunni reebokfitness.is en
þar má sjá hvaða tíma í boði.
Á laugardaginn verður opnun
ar hátíð sem hefst kl. 11 og þar
verður í boði ýmsar mælingar,
blóðþrýstingarmæling, þrekpróf
og fl. og kynning á starfseminni.
Segir Gurrý að á laugardaginn
verði opnunartilboð í gangi en til
að mæta eftirspurn verður líka
boðið upp á 12 mánaða áskrift
sem er ódýrasti kosturinn. Ljós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n