Fjarðarpósturinn - 27.08.2015, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
YOGAHÚSIÐ
Kundalini jóga Hugleiðsla
Gong slökun Djúpslökun
Orkustöðvanámskeið Mjúkt jóga
Yogahusid.is
Byrjendanámskeið hefst 1. september
Orkustöðvanámskeið hefst 8. september
Mjúkt jóga hefst 21. september
Skráning á yogahúsið@gmail.com
Yogahusið Trönuhrauni 6 Hafnarfirði Simi 8683508
Það eru engir draumar heldur
raunveruleiki útgáfa á geisladiski
með harmónikuleik þeirra Hildar
Petru Friðriksdóttur og Vígdísar
Jónsdóttur. Diskurinn heitir
„Hildur Petra og Vigdís – Drag
spilsdraumar“ og inniheldur 15
lög, bæði danslög fyrir harmón
ikur og einnig falleg dægurlög
útsett fyrir harmónikur. Hildur
Petra og Vigdís hafa hvor um sig
samið eitt lag á diskinum. Þær
notast ýmist við þekktar útsetn
ingar eða útsetja lögin sjálfar
fyrir tvær harmónikur.
Hildur Petra og Vigdís hafa
spilað saman á harmóniku í
nokk ur ár. Þær eru einnig hluti
af hljómsveitinni „Við og við“
sem spilar með þeim á þessum
diski auk fleiri hljóðfæraleikara.
Hildur Petra ólst upp á
Svalbarðseyri við Eyjafjörð en
Vigdís er Hafnfirðingur. Hildur
Petra hefur leikið á harmóniku
frá unga aldri en Vigdís fékk sína
fyrstu harmóniku fyrir 9 árum
síðum. Þær stöllur hafa spilað
saman við ýmis tilefni um allt
land en þetta er þeirra fyrsti
geisladiskur.
Hálfur hafnfirskur
harmónikudiskur
Dragspilsdraumar Hildar Petru og Vigdísar
Hildur Petra og Vigdís við upptökur í Tónræktinni á Akureyri.
Líflegt í Bókasafninu
Tónlist, bækur og safnarasýning
Mörgum finnst gaman að
safna allskonar hlutum. Bókasafn
Hafnarfjarðar býður söfnurum
að sýna gripi sína í sýningar
skápnum í anddyri safnsins.
Undanfarið hefur verið uppi
útstilling sem sýnir hollenska
skrautmuni úr keramiki í eigu
Ragnars Sveinssonar (1932
2012) frá Siglufirði. Þar má
finna diska, bjórkrusir, hollenska
klossa og margt fleira. Fallegur
blá hvítur liturinn og vindmyllu
mótífin vekja athygli ekki bara
Íslendinga heldur einnig erlendra
gesta. Hollensk hjón voru yfir sig
hrifin af sýningunni og skildu
eftir lyklakippu með litlum
bláhvítum klossum sem er frægt
einkenni Hollands.
Ef safnarar í Hafnarfirði hafa
áhuga á að sýna hluti sína í and
dyri safnsins má hafa samband
við Bókasafnið.
Þegar nýr forstöðumaður
bókasafnsins hóf störf, þá
var hann látinn byrja frá
grunni enda starfsþjálfun
tekin alvarlega.
Anna Sigríður og Óskar Guðjónsson, nýr forstöðumaður.
Þrátt fyrir að enn sé ekki
komin sátt um innlimun Iðn
skólans í Hafnarfirði við Tækni
skólann ehf. er enginn bilbugur á
menntamálaráðherra sem tekið
hefur þá ákvörðun án þess að
samþykki Alþingis liggi fyrir um
að leggja ríkisstofnunina
Iðnskólann í Hafnarfirði niður.
Aðeins einn bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, Rósa Guðbjartsdótt
ir, mætti við athöfn sl. föstudag
þegar merki Tækni skólans var
afhjúpað og lagðir voru steinar í
vörðu á skólalóðinni sem hefur
fengið útlenska nafnið Hipsterinn
eftir bólu sem margir telja að sé
sprungin. Öllum bæjarfulltrúum
hafði verið boðið að vera við
athöfnina og var fjarvera þeirra
því áberandi en kannski táknræn
fyrir stöðuna í málinu.
„Tækniskólinn vill verða
stærsta sprotafyrirtæki landsins,“
segir Jón B. Stefánsson skóla
meistari en skólinn er eftir sam
eininguna stærsti fram halds skóli
landsins með um 2.200 nem
endur.
Menntamálaráðherra lagði
áherslu á mikilvægi iðnnáms og
sagði að ná þyrfti iðnnáminu upp
úr þeim hjólförum sem það hefur
veri í.
Iðnskólinn orðinn Tækniskólinn
Fjarvera bæjarfulltrúa áberandi við athöfn við skólann
Menntamálaráðherra vill ná
iðnnáminu upp úr hjólförunum.
Skólameistari ávarpar gesti.
Hleðslufólk ásamt aðst.skóla
meistara við „Hipsterinn“.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n