Fjarðarpósturinn - 27.08.2015, Side 14
14 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
íbúð óskast
Reglusamt par á þrítugsaldri
óskar eftir að leigja stúdío eða
litla íbúð í Hafnarfirði.
Sími 699 4320.
þjónusta
Í einum grænum garðsláttur og
önnur garðverk. fyrir smærri sem
stærri garða. Einyrki. Hagstætt verð.
Geri tilboð. Uppl. í s. 845 2100.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn
fyrir vorið. Úrvals efni. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Hrein húsgögn án ryks, lyktar og
bletta! Djúphreinsun á borðstofu-
stólum, hægindastólum, sófasett um,
rúmdýnum og teppum. Kem á
staðinn og hreinsa, s. 780 8319.
Byrjendanámskeið í jóga
hefst 7. sept. Hádegi mán-mið-fös í
Bjarkarhúsinu. Verð 17.200,- 7 vikur,
21 skipti. Upplýs. og skráning:
astajoga@gmail.com
Ásta Ólafs 899 2239.
Píanónám
Tek að mér einkatíma fyrir börn og
fullorðna. Kenni nótnalestur og leik
eftir eyra eða samkvæmt óskum.
Bý í miðbæ Hafnarfjarðar. Þórunn
Sigurðardóttir sími 868 9198.
tapað - fundið
Hefur þú séð svartan, loðinn þrí
fættan kött? Zorró týndist 28. júlí
sl. Þeir sem hafa einhverjar upp-
lýs ing ar eða hafa séð til hans vins.
hafið samband í síma 773 878.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
www.facebook.com/
fjardarposturinn
LÍKAR VIÐ
Ratleikur Hafnarfjarðar
Ratleikur Hafnarfjarðar stendur yfir til
21. september. Frábær fjölskylduleikur
en einnig fyrir einstaklinga eða hópa.
Fáðu frítt ratleikskort í Bókasafninu,
Ráðhúsinu, á sundstöðum, í Fjarðar-
kaupum, bensín stöðvum, Altís, Fjall-
kofanum, Músik og sport, Þöll,
Lemon og víðar.
Menningarganga um slóðir
uglingamenningar
Í kvöld, fimmtudag kl. 20 leiðir Árni
Guðmundsson félagsuppeldis fræð-
ingur og fv. æskulýðsfulltrúi í
Hafnarfirði göngu um slóðir unglinga-
menningar í Hafnarfirði, gamla Æskó,
Vitann og fl. Gengið er frá Hafnarborg.
Hafnarborg
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er
sýningin Heimurinn án okkar. Verður
sýningin opnuð á morgun, föstudag kl.
20. Á sýningunni eru verk eftir
myndlistarmennina Björgu Þor-
steinsdóttur, Brynhildi Þorgeirs dóttur,
Finn Jónsson, Gerði Helga dóttur,
Mörtu Maríu Jóns dóttur, Ragnar Má
Nikulásson, Steinu og Vilhjálm Þorberg
Bergsson sem öll eiga sér ólíkan
bakgrunn í íslensku myndlistar lífi.
Íbúafundur
Íbúafundur um Heilsueflandi Hafnar-
fjörð verður í Víðistaðaskóla mánu
daginn 31. ágúst kl. 19.30. Hafnar-
fjarðarbær og Embætti landlæknis
standa fyrir verkefninu Heilsueflandi
samfélag til eflingar lýðheilsu í
bæjarfélaginu. Umræðan fer fram á
umræðuborðum og gert er ráð fyrir
að fundurinn standi í tvær klukku-
stundir.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Tilkynning frá HS Veitum
Straumlaust
3. september kl. 01-01.30
Vegna vinnu í aðveitustöð verður straumlaust í
stutta stund í Hafnarfirði, sunnan lækjar og vestan
Kaldárselsvegar aðfararnótt fimmtudags 3. september
á tímabilinu frá kl. 01 til 01.30.
Beðist er velvirðingar á þessu straumleysi sem er vegna
endurnýjunar á rafbúnaði í aðveitustöðinni.
www.hsveitur.is
Heimurinn án okkar
Haustsýning Hafnarborgar hefst á morgun
Haustsýning Hafnarborgar
2015 er sýningin Heimurinn án
okkar. Verður sýningin opnuð á
morgun, föstudag kl. 20 og eru
allir velkomnir.
Á sýningunni eru verk eftir
myndlistarmennina Björgu Þor
steinsdóttur, Brynhildi Þorgeirs
dóttur, Finn Jónsson, Gerði
Helga dóttur, Mörtu Maríu Jóns
dóttur, Ragnar Má Nikulásson,
Steinu og Vilhjálm Þorberg
Bergsson sem öll eiga sér ólíkan
bakgrunn í íslensku myndlistar
lífi.
Á sýningunni er teflt saman
verkum íslenskra listamanna af
ólíkum kynslóðum sem vinna
með hugmyndir um alheiminn í
verkunum á sýningunni. Í þeim
er varpað ljósi á ákveðna þætti
alheimsins hvort sem um er að
ræða nærumhverfi eða víðara
samhengi.
Steina ræðir um list sína
Á sunnudaginn kl. 15 mun
listakonan Steina Vasulka ræða
við gesti Hafnarborgar um list
sína og fjölbreyttan feril. Steina,
Steinunn Briem Bjarnadóttir er
fædd í Reykjavík 1940 en býr og
starfar í Santa Fe í Banda ríkjun
um. Hún stundaði nám í tónfræði
og fiðluleik. Ráðuneyti menn
ingar mála í Tékkóslóvakíu
styrkti hana til framhaldsnáms í
fiðluleik við Tónlistarháskólann
í Prag á árunum 19591964, þar
sem hún kynntist eiginmanni
sínum Woody Vasulka. Saman
hafa þau tekið virkan þátt í
gerjun og frumkvöðlastarfi
vídeó listar á heimsvísu. Árið
1965 fluttu þau til New York og
stofnuðu The Kitchen í SoHo á
Manhattan, sem var tilrauna
listamiðstöð á sviði raflistar og
nýmiðla.
F.v.: Óskasteinn I frá 1986 eftir Björgu Þorsteindóttur, Festing frá 1956
eftir Gerði Helgadóttur og nýtt verk eftir Mörtu Maríu Jónsdóttur.
Steina (Steinunn Briem).
Dósir í
körfuna
Meistaraflokkur Hauka í
körfubolta er með flöskusöfnun
á sunnudaginn, sem fjáröflun
fyrir keppnisferð til Danmerkur.
Haukarnir verða við kl. 1316 á
sunnudaginn og getur fólk haf
samband í síma 778 6822 eða á
Facebook til að bjóða þeim að
sækja til sín flöskur og dósir.
Einnig taka þeir á móti flöskum
og dósum á Ásvöllum.