Fjarðarpósturinn - 10.09.2015, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Rauði krossinn sinnir réttindagæslu fyrir hælisleitendur
Mikilvægt starf með fólki
í leit að alþjóðlegri vernd
Rauði krossinn tók að sér
réttindagæslu fyrir fólk í leit að
alþjóðlegri vernd í lok ágúst
2014. Á þeim tíma hafa yfir 200
manns leitað alþjóð
legr ar vernd ar á Íslandi.
Fólk ið kemur víða að
og úr erfiðum aðstæð
um. Meðan mál fólks
eru tekin fyrir er oft
lítið við að vera og fólk
getur ekki tekið þátt í
samfélaginu á sama
hátt og aðrir. Allir þurfa
öðru hvoru að hlægja,
gleyma sér og njóta
augnabliksins og það getur verið
erfitt þegar lífið er í óvissu. Þess
vegna er félagsstarf Rauða kross
ins í Hafnarfirði og Garðabæ
mikilvægur hluti af því sem
Rauði krossinn gerir fyrir fólk
sem leitar alþjóðlegrar verndar.
Félagsstarfið gefur
fasta punkta í tilverunni
á þessum óvissutíma. Í
starfinu er hægt að
dreifa huganum, hitta
fólk og gera skemmti
lega, og oft nýja, hluti.
Starfið er fjölbreytt,
inniheldur fræðslu,
menningu, íþróttir og
skemmtun í bland.
Áhersla er lögð á að
læra inn á íslenskt samfélag,
bæði almennt og það nærsam
félag sem fólkið býr í en hælis
leitendur búa í þremur sveitar
félögum þar með talið Hafnar
firði. Með góðri tengingu við
samfélagið og samskiptum við
fólk er minni hætta á félags legri
einangrun og þeim afleiðingum
sem hún getur haft. Sjálf boða
liðar halda uppi starfinu og
skipu leggja það í samráði við
hælisleitendurna sjálfa en hópur
inn er fjöl breytt ur, börn og full
orðnir á öllum aldri, og starfið
því fjölbreytt í samræmi við það.
Sjálfboðaliðar heimsækja
Auk félagsstarfsins bíður
Rauði krossinn í Hafnarfirði og
Garðabæ fólki sem leitar að
alþjóðlegri vernd upp á heim
sókn ir. Sumir þeirra treysta sér
ekki í félagsstarf í stærri hópi og
þiggja því frekar samskipti í
smærri hópum. Fólkið er heim
sótt af sjálfboðaliðum og spjalla
þeir saman um það sem er þeim
efst í huga hverju sinni. Einnig
veita sjálfboðaliðar ýmsar upp
lýs ingar um samfélagið, þjón
ustu sem Rauði krossinn veitir
og tækifæri til þátttöku í sam
félaginu.
Margir vilja leggja lið
Viðburðir í félagsstarfi og
heimsóknir eru að meðaltali um
15 í mánuði og hafa aukist jafnt
og þétt síðustu mánuði með
auknum fjölda fólks sem hingað
kemur. Viðburðirnir fara fram í
Reykjavík, Reykjanesbæ og í
Hafnarfirði. Hópur sjálfboðaliða
sem vinna í verkefninu fer einnig
stækkandi með auknum fjölda
fólks en alls starfa nú um 30
sjálfboðaliðar í verkefnunum og
er eitt af stærri verkefnum Rauða
kross deildarinnar í Hafnarfirði
og Garðabæ. Gríðarlegur fjöldi
hefur á síðustu vikum sýnt verk
efninu áhuga og viljað leggja
félaginu lið og er unnið að því
hörðum höndum að hafa sam
band við alla áhugasama.
Höfundur er framkvæmda
stjóri Rauða krossins í
Hafnarfirði og Garðabæ.
Hildur Tryggva-
dóttir Flóvenz
Norðurlandameistaramót ung
menna 19 ára og yngri fór fram
helgina 2930 ágúst í Espoo
Finn landi. Fjórir FHingar
kepptu á mótinu en alls voru
íslensku keppendurnir níu.
Bestum árangri allra íslensku
keppendanna náði Hilmar Örn
Jónsson FH í sleggjukasti, 6 kg,
þegar hann varði Norðurlanda
meistaratitil sinn frá því í fyrra
með 77,60 metra kasti.
Af stúlk unum náði Þórdís Eva
Stein sdóttir FH bestum árangri
þegar hún hljóp 400 m á 55,26 s
og varð fjórða. Hún hljóp 200 m
á 24,91 sek. sem er undir gildandi
aldursflokkameti en vindur var
því miður og mikill.
Árangur FHinga á mótinu var
eftirfarandi:
Hilmar Örn Jónsson: Norður
landameistari í sleggjukast 6 kg
með 77,60 m. Hilmar keppti
einnig í kringlukasti þar sem
hann kastaði 49,07 m
Þórdís Eva steinsdóttir: 400 m
á 55,26 sek. í 4. sæti og 200 m á
24,91 sek. í 7. sæti.
Vigdís Jónsdóttir: Sleggjukast
með 56,38 m í 7. sæti.
Kormákur Ari Hafliðason: 400
m á 49,49 sek. í 7. sæti.
Þórdís Eva og Kormákur Ari
kepptu svo í 4x400 m boðhlaupi
stúlkna og drengja en sveitin var
blönduð keppendum frá Íslandi
og Danmörku, þar sem þau áttu
bæði mjög góðan sprett en
Kormákur Ari hljóp sína 400 m á
49,2 sek. og Þórdís Eva á 55,4
sek.
Þjálfarar í ferðinni voru
FHingarnir Elísabet Ólafsdóttir
og Eggert Bogason.
Norðurlandameistari
í sleggjukasti í annað sinn
Hilmar Örn Jónsson kastaði 77,6 m
Hilmar Örn Jónsson gekk til liðs við FH á síðasta ári.
Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is
Hagstætt verð
í heimabyggð
Sími 555 6650