Fjarðarpósturinn - 10.09.2015, Síða 12
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
„Við hjónin keyptum Þvotta
húsið Hraunbrún fyrir átta árum.
Um það leiti hringdi vinur minn
í mig og spurði hvort ég væri
Haukur. ,,Já” svaraði ég. Bætti
hann þá við með stríðnistón og
púka í röddinni; ,,Haukur
pressari?“ Þetta segir Haukur
Sveins son sem nú hefur látið
gera styttu af Hauki pressara
fyrir framan þvottahúsið á
Hraun brún 40.
Styttan er í fullri stærð og er
eftir tælenska listamanninn
Adisorn Wongpho. Hann hefur
fengist við leikmyndagerð fyrir
kvikmyndir í Tælandi og einnig
gert nokkrar styttur fyrir
Jóhannes Viðar kenndan við
Fjöru krána. Þær standa við
veitinga og gistiheimilið að
Hliði á Álftanesi.
Hver var Haukur pressari?
Haukur Guðmundsson press
ari fæddist 6. janúar 1916 og lést
11. desember 1969, aðeins 53 ára
að aldri. Var hann þá staddur hjá
góðvini sínum, Ragnari í
Þórskaffi. Sat þar við borð og
fékk sér morgunkaffi, þegar
hann féll fram á borðið örendur.
Af öðrum vinum hans og vel
unnurum má nefna Alfreð
Elíasson forstjóra Loftleiða,
Pétu r Pétursson þul hjá Útvarp
inu og Lása kokk.
Af þekktum systkinum Hauks
má nefna Sigurð ljósmyndara og
Clementsíu sem gerðist nunna á
Landakotsspítala og keyrði sem
bílstjóri þeirra á Volkswagen
rúgbrauði þeirra.
Haukur gekk ekki heill til
skógar. Hann lífnærði sig á því,
að ganga milli fyrirtækja og
heldri borgara, gera þá fína í
tauinu með því að pressa jakka
fötin þeirra. Hélt hann á
straubolta í annarri hendinni en
straupúlti undir hinum hand
leggnum. Leit hann á sjálfan sig
sem jafningja heldri borgaranna.
Fjórir 25eyringar í krónunni
Fræg er heimsókn hans til
Bjarna Benediktssonar sem veitti
Hauki pressara viðtal, enda
Haukur frægur maður. Tilefnið
var áhyggjur Hauks af
verðbólgunni og að krónan væri
að hverfa. Hann vildi að Bjarni
gæfi sér loforð um að það gengi
ekki eftir. Haukur kom hæst
ánægður af þeim fundi. Bjarni
Ben hafði lofað honum því að
alltaf skyldu vera fjórir
tuttuguog fimmeyringar í krón
unni! Margir eldri viðskiptavina
minna muna eftir Hauki pressara.
Í minningu kynlegs kvists
Haukur pressari var frægur
maður í sinni samtíð eins og
Gísli á Uppsölum og Samúel
listamaður, Óli blaðasali, Púlli í
Vestmannaeyjum, Lási kokkur,
Hemmi túkall svo nokkrir séu
nefndir.
Listamaðurinn Adisorn Wongpho t.v. við afhjúpun styttunnar.
Stytta af Hauki pressara á Hraunbrún
Gerð í virðingu fyrir kynlegum kvistum
„Mér þykir vel við hæfi að
halda minningu þessara litlu
bræðra okkar til haga og er
styttan úti í garði hjá mér til að
heiðra og minnast Hauks Guð
mundssonar pressara,“ segir
Haukur í fatahreinsuninni Hauk
pressara við Hraunbrúnina.
Styttan af Hauki var afhjúpuð
að viðstöddum listamanninum
og systurdætrum Hauks pressara
sl. föstudag og var viðstöddum
boðið upp á tælenska fiskisúpu
við strauborðin á eftir.
Nafnarnir Haukur pressari og
Haukur Sveinsson.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eitt mark skyldi að
Haukar ekki meistarar meistaranna
ÍBV sigraði Hauka öðru sinni
á stuttum tíma og nú um titilinn
meistari meistaranna þar sem
mættust bikarmeistarar ÍBV og
Íslandsmeistarar Hauka í hand
bolta karla. Leikurinn endaði
2524 fyrir ÍBV eftir að hafa leitt
128 í hálfleik. Jafnt var í lokin
og skoraði ÍBV sigurmarkið á
loka sekúndunum. Leonhard Þor
geir Harðarson var marka hæstur
Hauka með 8 mörk og Theódór
Sigurbjörnsson var markahæstur
hjá ÍBV með 10 mörk.
Það var oft vel tekið á mönnum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
www.slippfelagid.is
KAFFI OG FÁÐU
OG FAGLEGA
RÁÐGJÖF
GÓÐA ÞJÓNUSTU
KOMDU Í
Virka daga 08.00 – 18.00
Laugardaga 10.00 – 14.00
*Laugardaga 10.00 – 15.00
Borgartúni 22 Rvk. Dugguvogi 4 Rvk. Gleráreyrum 2 Ak. Dalshrauni 11 Hafnarfirði
Opnunar
-tími
Kveðja úr Dalshrauninu
Skúli og Gaui
Gæði Reynsla Þjónusta
*