Fréttablaðið - 11.04.2015, Side 6
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
EFNAHAGSMÁL Í Seðlabanka Evrópu
og seðlabönkum Norðurlandanna
starfa fleiri en einn seðlabanka-
stjóri, að sögn Þráins Eggertsson-
ar, formanns sérfræðinefndar um
heildarendurskoðun laga um Seðla-
banka Íslands. Þannig svarar hann
gagnrýni hagfræðinganna Guð-
rúnar Johnsen og Þórólfs Matthías-
sonar sem birtist í Fréttablaðinu í
gær.
Í tillögum sérfræðinefndarinnar
er gert ráð fyrir að seðlabankastjór-
um sé fjölgað úr einum í þrjá.
Þau Guðrún og Þórólfur segja
aftur á móti að fátítt sé að fyrir-
tækjum eða stofnunum sé stjórnað
af mörgum forstöðumönnum eða
forstjórum. „Leikjafræðin kennir að
ef þrír eða fleiri aðilar taka ákvörð-
un getur hver og einn skýlt sér á bak
við þá staðreynd að atkvæði þeirra
ráði líklega ekki úrslitum og ábyrgð
þeirra í samræmi við það,“ segja
þau í greininni.
„Þau þurfa ekki að gera neitt
annað þessi tvö en að fara á netið
og skoða hvernig Seðlabanki Evr-
ópu og seðlabankar Norðurlandanna
eru skipulagðir,“ segir Þráinn í sam-
tali við Fréttablaðið. Hann bendir
á að þessu fyrirkomulagi sé lýst í
greinar gerð með frumvarpi sem
sérfræðinefndin vann. Þráinn
bendir til að mynda á að í Noregi sé
sjö manna bankastjórn og banka-
ráð eins og á Íslandi sem fimmtán
manns sitji í.
Þráinn segir að í Seðlabanka
Evrópu starfi bankastjórn sem sé
skipuð nítján seðlabankastjórum
evruríkjanna auk fimm annarra,
þar á meðal aðalseðlabankastjóra.
„Þeir koma saman og taka allar
ákvarðanir tvisvar í mánuði. Svo
er fimm manna ráð sem stjórnar á
milli þessara funda og seðlabanka-
stjórinn kemur fram fyrir hönd
þessara aðila,“ segir Þráinn.
Í grein sinni segja þau Guðrún og
Þórólfur að vegið sé að sjálfstæði
Seðlabankans með fjölgun seðla-
bankastjóra. Velta þau því fyrir
sér hvort þessi breyting tengist
því að skipan þriggja seðlabanka-
stjóra eigi að tryggja það að eignar-
hlutir ríkisins í viðskiptabönkunum
„falli í réttar hendur“ eins og þau
orða það.
Össur Skarphéðinsson þingmað-
ur Samfylkingarinnar, hefur einn-
ig áhyggjur af því að pólitísk ítök
í Seðlabankanum kunni að aukast.
Hann tengir fyrirhugaðar breyt-
ingar á honum við hugmyndir fjár-
málaráðherra um að leggja niður
Bankasýslu ríkisins.
jonhakon@frettabladid.is
Tillögurnar byggðar
á erlendri fyrirmynd
Hagfræðingar við HÍ og stjórnarandstöðuþingmaður tengja fyrirhugaðar breytingar
á Seðlabanka við sölu á eign ríkisins í viðskiptabönkunum. Formaður nefndar um
skipulag Seðlabankans segir algengt erlendis að hafa fleiri en einn bankastjóra.
TIL SKOÐUNAR Tillögur nefndar Þráins Eggertssonar eru til skoðunar í fjármála- og
efnahagsráðuneytinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fyrst þurfa þeir vitaskuld að ná póli-
tískum tökum á Seðlabankanum. Þess vegna
á að fjölga bankastjórunum, síðan skipta þeir
nýju stöðunum á milli sín, þjarma að Má
Guðmundssyni, og ráða síðan öllu um hvernig
bankarnir verða seldir.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
HEILBRIGÐISMÁL Engin ný sjúkra-
húslyf hafa verið samþykkt hjá
lyfjagreiðslunefnd á þessu ári.
Við blasir að engin sjúkrahúslyf,
það er leyfisskyld S-merkt lyf,
verði samþykkt á árinu nema for-
sendur breytist, að sögn Guðrún-
ar I. Gylfadóttur, formanns Lyfja-
greiðslunefndar.
„Við verðum að miða við fjárlög.
Við tökum meðal annars ákvörð-
un um leyfisskyldu lyfin út frá
verði lyfsins og áætluðum fjölda
notenda. Áætlun hjá Sjúkratrygg-
ingum getur hins vegar breyst og
svigrúm skapast. Það getur verið
að möguleikar skapist ef eitt-
hvað dregur úr notkun eldri sam-
þykktra lyfja eða verð lækkar,“
segir Guðrún.
Í fréttatilkynningu Frumtaka,
samtaka framleiðenda frumlyfja,
segir að það sé alvarlegt mál að
ekki skuli hafa verið gert ráð
fyrir meira svigrúmi til upptöku
nýrra leyfisskyldra lyfja við gerð
gildandi fjárlaga. Tímabært sé að
sjúklingar hér njóti sömu réttinda
og meðferðarúrræða og almenn-
ingur í nágrannalöndunum.
„Ég held að allir hafi lagt
áherslu á að innleiðing nýrra lyfja
verði með sambærilegum hætti og
í viðmiðunarlöndunum. Við vorum
í fararbroddi við að innleiða ný
lyf en þótt hægt hafi á innleiðingu
eftir hrun viljum við og stjórn-
völd meina að við þolum saman-
burð við þau lönd sem við vilj-
um bera okkur saman við,“ segir
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands.
Hann segir ekki verið að skera
niður fjárveitingar til S-merktra
lyfja, heldur sé verið að hemja
kostnaðaraukningu milli ára. „Það
er mikilvægt að fyrir liggi upplýs-
ingar um viðbótargagnsemi nýrra
lyfja og hvort menn séu búnir að
þurrausa alla möguleika til að ná
kostnaði niður vegna þeirra lyfja
sem þegar eru í notkun.“ - ibs
Lyfjagreiðslunefnd miðar við fjárlög og hafnar umsóknum um S-merkt lyf:
Engin ný sjúkrahúslyf afgreidd
Við tökum
meðal annars
ákvörðun um
leyfisskyldu
lyfin út frá
verði lyfsins og
áætluðum
fjölda notenda.
Guðrún I. Gylfadóttir,
formaður Lyfjagreiðslunefndar.
KRÍT & SANTORINI
Hvíldarferð á vit mínóskrar menningar
Fararstórinn, Friðrik G. Friðriksson er sérfróður um
sögu staðanna og þekkir vel til allra staðhátta.
Skoðunarferðir eru fjölbreyttar, en samt nægur
frítími, ekkert stress, ekki erfið ferð.
KRÍT & SANTORINI - Hvíldarferð á vit mínóskrar menningar
24. SEPT. - 5. OKT. 2015
Á eyjunum Krít og Santóríní myndaðist hin svonefnda
mínóska menning, sem var fyrsta menning Evrópu, á undan
grískri og rómverskri menningu, en á eftir t.d. egypskri
menningu. Fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson
Verð frá 294.500 kr.
VITA | SKÓGARHLÍÐ 12 | Sími 570 4472 | VITA.IS
Myndir úr ferðum Friðriks á vita.is
Viðskiptatækifæri
Áhugasamir aðilar hafi samband við Guðna Halldórsson
sími 414 1200, gudni@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Íbúðahótel
Til sölu 30 herbergja vel búið íbúðahótel
á góðum stað í Reykjavík.
Herbergin eru rúmgóð og snyrtileg með eldunaraðstöðu
og öðru sem fylgja ber.
Reksturinn hefur gengið mjög vel og skilað góðum hagnaði.
Bókunarhlutfall er mjög hátt yfir sumarmánuðina en íbúðirnar
hafa verið leigðar í langtímaleigu yfir vetrarmánuðina.
Bókanir næsta sumars líta mjög vel út og eru nú þegar tvöfalt
fleiri en á sama tíma í fyrra.
Hótelið er rekið í leiguhúsnæði með góðum leigusamningi
en ekki er um að ræða kaup á húsnæði heldur rekstri og
innanstokksmunum.
Mjög gott viðskiptatækifæri fyrir fólk sem vill taka við góðum
og þægilegum rekstri sem á mikið inni.
H
a
u
ku
r
0
1
.1
5
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Austur-
lands hefur dæmt tvítugan karl-
mann í fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að áreita
stúlku kynferðislega í gegn um
samskiptaforritið Skype.
Samkvæmt ákæru átti maðurinn
ítrekað í samskiptum við stúlkuna
í apríl árið 2013, þegar hún var ell-
efu ára gömul. Hann viðhafði kyn-
ferðislegt tal og reyndi að fá að
hitta stúlkuna í kynferðislegum
tilgangi. Einnig óskaði hann eftir
að fá að káfa á afturenda stúlkunn-
ar og bað hana um að sýna honum
afturenda sinn og sýndi henni
kynfæri sín þegar hann fróaði
sér, hvort tveggja í gegnum vef-
myndavél.
Maðurinn játaði brot sín ský-
laust fyrir dómi og viðurkenndi
bótaskyldu sína.
Auk fjögurra mánaða skilorðs-
bundins dóms er manninum gert
að greiða stúlkunni 400 þúsund
krónur í miskabætur. Þá þarf
hann að greiða 861 þúsund krón-
ur í sakarkostnað. - bo
Á EGILSSTÖÐUM Dómurinn var kveð-
inn upp í Héraðsdómi Austurlands á
Egilsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tvítugur maður fékk fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm:
Áreitti stúlku í gegn um Skype
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
1
-1
B
B
C
1
6
4
1
-1
A
8
0
1
6
4
1
-1
9
4
4
1
6
4
1
-1
8
0
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K