Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Blaðsíða 2
Ami og Lena Bergmann:
Blátt og rautt
- Bemska og unglingsár í tveim heimum.
Pessi endurminningabók er sannarlega
óvenjuleg. Ámi og Lena Bergmann voru
námsmenn í Moskvu á sjötta áratugnum þegar
þau kynntust. Hann hafði alist upp í íslensku
sjávarplássi, hún óx upp í Sovétríkjunum á
tímum heimsstyijaldar og stalínisma. I bókinni
lýsa þau hvort um sig bemsku og unglingsárum
sínum í tveim heimum.
Ámi segir frá uppvexti í Keflavík, lýsir skólavist í
Reykholti og pólitískum og bókmenntalegum
hræringum í Menntaskólanum á Laugarvatni.
Hann bregður upp lifandi myndum af
óvenjulegum mönnum sem hann kynntist á
sínum mótunarárum í köflum um Stjána píanó
og Þórð Sigtryggsson. Hér er líka sagt
skemmtilega frá starfi ungsósíalista,
Æskulýðstylkingarþingi og för í gagnmerkum
J|Við bjóðum til
UXlrrMTOÍClll
bókaveislu
um bessi jól \
félagsskap á heimsmót æskunnar í Búkarest.
Lena, gyðingur í báðar ættir, segir frá allt annars
konar uppvexti og skólavist í borginni Rjazan
skammt frá Moskvu. Líf hennar gerbreytist við
innrás Þjóðverja, þegar konur og böm eru flutt til
Mið-Asíu. Lýsingar hennar á lífinu þar og síðar í
borginni Smolensk, sem er algerlega í rústum
eftir stríðið, eru áhrifaríkar. Loks er Lena komin í
Moskvuháskóla þar sem hún kemst í kynni við
erlenda stúdenta, þar á meðal íslenskan
námsmann á flókainniskóm og þykkri peysu...
Mikill fjöldi mynda er í bókinni, sem er 264 bls.
að stærð.
Verð: 1690.-. Félagsverð: 1436.-.
Mál og menning