Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Blaðsíða 8

Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Blaðsíða 8
Böðvar Guðmundsson: ísak Harðarson: Vatnaskil er fjórða ljóðabók Böðvars Guðmundssonar og jafnframt sú fyrsta í 15 ár. Hún er á ýmsan hátt ólík hinum fyni bókum skáldsins, lágmæltari og íhugulli, og form Ijóðanna er ekki fast bundið. Yrkisefnin eru sígild og íslensk, ættjörðin, karlmennskan, heimasveitin, en sjónarhomið er iðulega óvænt. Bókin kom út í sumar og um hana sagði Jóhann Hjálmarsson í Morgunblaðinu: „Böðvar Guðmundsson hefur ræktað vel garðinn sinn. í Vatnaskilum eru mörg dæmi um ánægjulega endurkomu hans til Ijóðlistarinnar. Hér er agað skáld á ferð, en þó ekki um of. Vatnaskil er lifandi bók.“ I bókinni eru 27 ljóð, og hún er 48 blaðsíður að stærð. Verð495.-. Veggfóðraður óendanleiki Ljóð ísaks Harðarsonar eru nýstárleg og fjölbreytileg bæði að inntaki og formi, en stef bókarinnar er öðru fremur afdrif þess óendanleika, sem býr í manninum sjálfum, og birtist ekki síst í Ijóðum á okkar tímum tölvustýringar og „hugtæknivæðingar". Tónn þessarar fjórðu ljóðabókar ísaks er ekki bjartur en þó langt því frá að vera þunglyndislegur, því ísak leikur sér víða skemmtilega að klisjum nútímans. „Um þessa ljóðabók er það í skemmstu máli að segja að hún er án nokkurs efa ein sú byltingarkenndasta og framúrstefnulegasta sem sést hefur hér á markaðnum lengi.“ (Eysteinn Sigurðsson íTímanum). Veggfóðraður óendanleiki er96 bls. að stærð. Verð: 495.-. Mál og menning

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.