Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Side 3

Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Side 3
Ur snöru fuglarans , Að stúdentsprófi loknu var mér svipað innanbrjósts og fugli hlýtur að vera þegar honum er sleppt útúr búri eftir langa innilokun," segir Jakob Jóhannesson í upphafi þessarar bókar, sem er fimmta og síðasta bindið í uppvaxtarsögu hans. Hvert liggja vegir frelsisins: A Jakob að láta undan hömlulausri löngun til jarðneskrar Sstar eða reyna umfram allt að feta stíg trúarinnar? Vandi Jakobs verður mjög áþreifanlegur á kristilegu stúdentamóti í Danmörku: Hann verður yfir sig ástfanginn af finnskri stúlku, Carmelitu. í bókinni lýsir Sigurður A. Magnússon þessu sérstæða ástarsambandi, með tilheyrandi ferðum hans til Finnlands og hennar til íslands, með sterkum og einlægum hætti. Sambandið við stúlkuna er rauður þráður bókarinnar, en meðan stomnar geisa í sál Jakobs gerast örlagaatburðir í lífi þjóðar sem knýja hann til að endurmeta stöðu sína. Líkt og í fyrri bindum þessa vinsæla bókaflokks, Undir kalstjömu, Möskvum morgundagsins, Jakobsglímunni og Skilningstrénu, fléttar höfundur saman þroskalýsingu ungs manns og myndum úr sögu þjóðar, svo úr verður spennandi heild. Bókin er 296 blaðsíður. Verð: 1690.-. Félagsverð: 1436.-. Mál og menning 3

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.