Tímarit Máls og menningar - 15.12.1986, Blaðsíða 22
Þórbergur Þórðarson:
Stórbók
í þessari veglegu bók er að finna fjögur verk
Þórbergs Þórðarsonar: BréftilLáru, sem fyrst
birtist 1924, Sálminn um blómið, söguna um
Sobegga afa og lillu Heggu sem upphaflega kom
út í tveimur bindum 1954-55, frásögnina um
Viðfjarðarundrin, þar á meðal Viðfjarðar-Skottu,
sem fyrst var gefin út 1943, og fræga ritgerð
Þórbergs um frásagnarlist og stíl, Einum kennt -
öðrum bent, sem fyrst var prentuð 1944.
Stórbók Þórbergs er 664 síður að stærð á mjög
hagstæðu verði, og býður því upp á einstakt
tækifæri til að kynnast höfundarverki hans.
Verð: 1390.-. Félagsverð: 1181.-.
///;//. i s/ó/ KhWiHinm
Matur
°Sdrykkur
Við bjóðum til
bókaveislu
um þessi jól
Pórbcrguí
Pófðargoii
bréf til Oru
SÁLMURINN UM BLÓMIÐ
VIÐFJARÐARUNDRIN
EINUM KENNT
ÓÐRUM BENT
Helga Sigurðardóttir:
Matur
og drykkur
Maturogdrykkurer sígild íslensk matreiðslubók,
sem fyrir löngu er búin að vinna sér sess sem
stærsta og besta bókin sem tekin hefur verið
saman um alla þætti íslenskrar matargerðar. Hún
hefur að geyma leiðbeiningar um öll
grundvaUaratriði í eldamennsku, kemur ungum
sem öldnum á sporið við nýtingu góðs íslensks
hráefnis jafnt í hversdagsmat sem veislumat.
Uppskriftimar í bókinni eru rúmlega 2000 talsins,
skýringarmyndir eru á flestum blaðsíðum og
fjörutíu Utmyndir prýða þessa útgáfu.
Matur og drykkur hefur verið uppseld um margra
ára bil. Þessi fimmta útgáfa bókarinnar er röskar
600 bls. að stærð.
Verð: 1987.-. Félagsverð: 1689.-.
Mál og menning
22