Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  295. tölublað  102. árgangur  HÖRÐUR AXEL Í MIKILVÆGU HLUTVERKI SÖNGGLEÐI OG SPRELL KRISTJANA MEÐ NÝJAN JÓLADISK BARTÓNAR OG KÖTLUR 10 STJARNANNA FJÖLD 39KÖRFUBOLTI ÍÞRÓTTIR Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Blindbylur gekk yfir höfuðborgarsvæðið í gær og var öllum vegum til og frá borginni lokað. Bif- reiðar sátu fastar í snjó um allan bæ og svöruðu 200 björgunarsveitarmenn kalli mörg hundruð borgara. Svo mikil var þörfin á aðstoð björg- unarsveitarmanna að björgunarsveitir voru kall- aðar út frá Vesturlandi til aðstoðar björgunar- sveitum höfuðborgarsvæðisins og á Reykjanesi. Útkall sunnlensku björgunarsveitanna var ekki síst vegna tækjabúnaðar þeirra en öll tæki björg- beðnir um að tryggja aðgengi að ruslatunnum svo að starfsfólk, sem mun vinna fram eftir næstu daga, nái að vinna upp töfina og tæma ruslatunnurnar fyrir jól. Vindáttin hefur snúist og má gera ráð fyrir stormi eða roki í dag á Suðvestur- og Vest- urlandi. Samkvæmt spám Veðurstofu Íslands verður veðrið verst í morgunsárið og dregur úr veðri eftir því sem líður á daginn. Fólk er hvatt til að fylgjast með færð áður en það heldur af stað í umferðina. unarsveita höfuðborgarsvæðisins voru í notkun í óveðrinu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins biðlaði til for- eldra að sækja börnin sín í grunnskóla. Á sama tíma var almenningur beðinn um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Samgönguæðar lokuðust, hvort sem um var að ræða vegi til og frá höfuðborgarsvæðinu eða flug- samgöngur innanlands og utan en utanlandsflugi var ýmist aflýst eða seinkað þegar veðrið var sem verst í gær. Þá mætti segja að sorphirðuáætlun Reykjavíkurborgar sé í uppnámi eftir að hætta þurfti losun sorpíláta snemma í gær og eru íbúar Blindbylur í borginni Hjálpsemi Víða á höfuðborgarsvæðinu mátti sjá vegfarendur hjálpa ökumönnum í vandræðum að losa bíla sína svo allir kæmust leiðar sinnar.  Almenningur var beðinn um að vera ekki á ferðinni að óþörfu  Öllum vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu var lokað  Grunnskólabörnin voru sótt í skólann MVetur konungur á suðvesturhorninu »4 Morgunblaðið/Ómar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, telur líkur á því að til átaka komi á vinnu- markaði í vor hafa aukist eftir að fjár- lög voru lögð fram í gær. Þar birtist enda viljaleysi stjórnvalda til að styðja uppbyggingu félagslegs hús- næðis fyrir þá efnaminnstu. Gylfi telur tvennt þurfa að koma til ef afstýra eigi verkföllum í vor. Annaðhvort þurfi lægstu laun að hækka mikið eða stjórnvöld að styðja við uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir hina tekjulægstu. Gylfi telur nýja könnun Eflingar um hátt hlutfall lágtekjufólks á leigumarkaði sýna að margir í þeim hópi geti ekki látið enda ná saman. Það sama gildi um nýjar töl- ur umboðsmanns skuldara um um- sóknir tekjulágra um greiðsluaðlögun vegna annarra skulda en fasteigna- skulda. Hann gagnrýnir ríkisstjórn- ina fyrir að hafna þeirri leið að nið- urgreiða vexti til að byggja upp félagslegt húsnæði. „Það þarf sem sagt annaðhvort að hækka grunn- kaupið mjög mikið hjá þeim sem lægst hafa launin eða fara fram með sameiginlega kröfu um að aðildar- félög ASÍ stofni húsnæðisstofnun,“ segir Gylfi sem útilokar ekki að aðild- arfélög ASÍ beini þeirri kröfu að at- vinnurekendum að þessi vandi verði leystur með sameiginlegu átaki. „Það er auðvitað alveg ný nálgun að það verði gerð krafa á atvinnulífið um að leggja fé í húsnæðissjóð á veg- um verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Gylfi Arnbjörnsson. »19 Setja úrslitakosti  Forseti ASÍ krefst aðgerða til að rétta hlut tekjulágra  Boðar verkföll í vor ef ekki verður orðið við kröfum ASÍ Gylfi Arnbjörnsson  141 maður lést þegar uppreisnar- menn talibana réðust inn í skóla í borginni Peshawar í Pakistan í gær, þar af 132 börn. 125 særðust í árás- inni. Þetta er blóðugasta hryðjuverk sem framið hefur verið í landinu. Sjónarvottar lýstu því hvernig talibanarnir fóru úr einni kennslu- stofu í aðra í skólanum og myrtu nemendur. Þeir yngstu voru 12 ára gamlir. Blóðbaðið stóð í átta klukku- stundir. Talibanasamtökin TTP lýstu yfir ábyrgð á verknaðinum og sögðu hann hefnd fyrir sókn hersins á þessum slóðum. Skólinn er á vegum hersins í Pakistan. Stjórn Pakistan kveðst staðráðin í að ráða niður- lögum TTP. Árásin var fordæmd víða um heim. »22 Blóðugasta hryðju- verk í sögu Pakistan Sorg Syrgjendur bera lík nemanda sem var skotinn til bana í Peshawar í gær.  Samhljómur virðist vera í Þingvallanefnd um að reisa veit- ingahús uppi á Hakinu á barmi Almannagjár, að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur, formanns nefnd- arinnar. Sigrún segir að hún hafi ásamt Ólafi Erni Haraldssyni, þjóðgarðs- verði á Þingvöllum, kynnt málið fyrir forseta þings, skrifstofustjóra Alþingis og forsætisráðherra. Hún segir að verkið verði boðið út, en ekki sé ljóst hvenær ráðist verði í framkvæmdir. » 15 Ráðgera veitinga- stað á Þingvöllum FORTE blanda meltingargerla MÚLTIDOPHILUS þarmaflóran hitaþolin www.gulimidinn.is dagar til jóla 7 Hurðaskellir kemur í kvöld www.jolamjolk.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.