Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Mikill erill var hjá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu og Reykja- nesinu þegar lægð gekk yfir landið sunnan- og vestanvert í gær. Fólk var beðið um að vera ekki á ferðinni að óþörfu og að sækja börn í skól- ann. Stofnleiðir Strætó bs. héldu sínu striki á meðan flestir vagnar á höfuðborgarsvæðinu hættu að ganga en ástand var slæmt á vegum víða á höfuðborgarsvæðinu og sátu margir bílar fastir í umferð eða snjó. Töluvert var um minniháttar óhöpp og slys en engin alvarleg meiðsli urðu á mönnum. Veðrið heldur áfram að berja á íbúum Suðvestur- og Vesturlands í dag en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má gera ráð fyr- ir vaxandi suðvestanátt, stormi eða roki í morgunsárið. Él eða slydduél verða um allt sunnan- og vestanvert landið en úrkomulítið norðaustantil. Draga mun úr veðrinu eftir því sem líða tekur á daginn en fólk er hvatt til að fylgjast með færð á vegum áð- ur en það heldur af stað í umferðina. Komu hundruðum til hjálpar „Það var erilsamt og hægðist á öllu í ófærðinni,“ segir Sigurbjörn Guðmundsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Hann segir mikið hafa verið um smávægileg slys; bílveltur og bíla sem ekið var út fyrir vegi. Sjúkra- flutningar gengu erfiðlega í ófærð- inni og eru dæmi um að sjúklingar hafi tafist í nokkurn tíma. Björgunarsveitir komu mörg hundruð manns til hjálpar í yfir 200 útköllum og voru björgunarsveitir af Vesturlandi kallaðar út til aðstoðar björgunarsveitum á höfuðborgar- svæðinu og á Reykjanesi en öll tæki björgunarsveitanna á höfuðborgar- svæðinu voru í notkun í gær. Flugsamgöngur til og frá landinu lágu niðri um tíma og var flugi ýmist aflýst eða seinkað. Flugi Icelandair til Kaupmannahafnar var til að mynda seinkað um tvær klukku- stundir en áhöfn og flugfarþegar sátu fastir á Reykjanesbrautinni. Fóru strax og sóttu börnin Lögregla og slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins bað fólk um að vera ekki á ferð að óþörfu í gær en einnig að foreldrar ættu að sækja börnin sín í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Birgir Finnsson, varaslökkvi- liðsstjóri slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins, segir að með fyrstu til- mælunum um að fólk ætti að sækja börnin í skólann hafi markmiðið ver- ið að börnin héldu sig trygg í skól- unum. Þetta hafi hins vegar valdið einhverjum misskilningi og ein- hverjir foreldrar töldu að þeir ættu að fara strax að sækja börnin. Þegar veður tók að versna var því send út önnur tilkynning þar sem fólk var beðið um að sækja ekki börnin fyrr en veður tæki að róast og fólk treysti sér til að sækja þau. Samhliða því voru smáskilaboð send á alla skólastjórnendur á höfuðborg- arsvæðinu þar sem þeim var sagt að halda börnum í skólanum þar til veð- ur tæki að ganga niður eða þau yrðu sótt af foreldrum. Birgir segir slökkviliðið hafa und- irbúið sig til að skutla þeim börnum sem ekki höfðu verið sótt af for- eldrum heim til sín í gær en þess hafi ekki verið þörf þar sem veður gekk niður og öll börnin farin úr skól- unum. Árni Friðleifsson, varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar, segir fólk hafa fylgt tilmælum lögreglu um að vera ekki á ferð að óþörfu og um- ferð hafi verið minni en dags- daglega. Morgunblaðið/Kristinn Strætósamgöngur Stofnleiðum Strætó bs. var haldið opnum í óveðrinu í gær þó að flestir strætisvagnar hættu að ganga á meðan óveðrið lét sem verst. Margir börðust við bylinn. Morgunblaðið/Ómar Umferðaröngþveiti Óveður skall á borgarbúum í gær og festust bílar víða á höfuðborgarsvæðinu. Sumir þeirra voru illa búnir og festust í snjó og hinir í umferðinni af völdum fyrrnefnda hópsins. Morgunblaðið/Golli Sótt í skólann Slökkvilið óskaði eftir því að börn yrðu sótt og voru þessar stúlkur sóttar í Laugarnesskóla. Mikill erill hjá björgunarsveit- armönnum í gær  Snýst í suðvestanátt og búist við stormi eða roki á suðvesturhorninu Öllum aðalleiðum að höfuðborg- arsvæðinu var lokað um tíma í gær: Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi, veginum um Kjalarnes og Mosfellsheiði og eins frá Rauðavatni austur yfir Sand- skeið, Hellisheiði og Þrengsli. Suð- urstrandarvegi var einnig lokað sem og veginum undir Hafn- arfjalli. Eggert Magnússon, verkefna- fulltrúi hjá almannavarnadeild rík- islögreglustjóra, segir vegalok- unina hafa verið vegna veðurs og færðar en ákvarðanir um lokun vega eru í flestum tilfellum teknar af Vegagerðinni. „Það að öllum leiðum til höfuð- borgarinnar hafi verið lokað vegna veðurs og ófærðar er vissu- lega ekki gott ástand en þýðir þó ekki að ekki sé hægt sé að komast á milli ef um brýna neyð eða nauð- syn er að ræða,“ segir Eggert. Hann segir að ef um langvar- andi lokanir vegna veðurs sé að ræða sé til að mynda hægt að senda öflugt snjóruðningstæki á undan vöruflutningabílum eða öðr- um faratækjum sem þyrftu að komast leiðar sinnar. „Það er ann- að ef samgönguæðar lokast til lengri tíma vegna náttúruham- fara,“ segir Eggert. „Þá erum við að tala um ástand sem er viðvarandi í langan tíma og þarf að tryggja virkar samgöngu- æðar eftir aðstæðum hverju sinni.“ Vegum lokað við borgina Morgunblaðið/Kristinn Ófærð Öllum aðalleiðum í kringum höfuðborgarsvæðið var lokað í gær.  Hægt hefði verið að komast í neyð Hellisheiðin var lokuð bróðurpart- inn af deginum í gær og fyrir vikið var Litlu kaffistofunni lokað. Starfsfólk þar er ýmsu vant en Linda Stefánsdóttir, dóttir Stefáns Þormars Guðmundssonar, eiganda Litlu kaffistofunnar, sem unnið hefur þar í 21 ár, man ekki eftir svo mörgum dögum á stuttum tíma þar sem þau hafa neyðst til að loka. Að sögn hennar biðu sex manns hjá þeim megnið af deg- inum. „Þau spiluðu bara áður en Vegagerðarbíll kom hérna framhjá og þá gátu þau fylgt með,“ segir Linda. Sexmenningarnir hafi verið á leið til Hveragerðis. Starfsfólk sat hins vegar enn fast um sex- leytið í gærkvöldi og beið þess að vera bjargað af Vegagerðinni til að komast til Reykjavíkur. „Við sitjum bara hérna og spilum líka,“ segir Linda og hlær. vidar@mbl.is Gripu í spil og biðu björgunar MAN EKKI EFTIR ANNARRI EINS TÍÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.