Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
frústrasjón. En það verður að vera
smátogstreita þegar listin er annars
vegar. Ég gríp stundum fram fyrir
hendurnar á stjórnendum Katlanna
á þessum sameiginlegu æfingum,
sennilega af því ég er svo vanur að
ráða, en ég er kórstjóri Bartóna að
eilífu og ég hef alvald, það stendur í
lögum kórsins,“ segir Jón Svavar og
hlær að eigin stjórnsemi sem þær
Lilja Dögg og Hildigunnur eru fljót-
ar að stoppa af, af festu og öryggi.
Berjum frá umsækjendur
Bartónar byrjuðu sem eitt lítið
skemmtiatriði á sumarhátíð Kaffi-
barsins fyrir fimm árum. „Við vorum
bara strákar sem komum þar við til
að fá okkur bjór. Núna er þetta orðið
þrjátíu og fimm manna karlakór.
Þeir sem kunnu minna að syngja
duttu sjálfkrafa út, en nýir og sterk-
ari menn hafa komið inn. Tónninn
hjá okkur hefur alltaf verið að styrkj-
ast. Í byrjun var okkar takmark
fyrst og fremst að vera kúl, en núna
skiptir söngurinn meira máli,“ segir
Jón Svavar.
Kvennakórinn Kötlur er yngri,
aðeins tveggja ára. „Nokkrar flottar
stelpur tóku sig til og stofnuðu kór-
inn á vordögum 2012, til að geta
fengið útrás fyrir sönginn, en kórinn
hefur stækkað hratt, við erum orðn-
ar fjörutíu og fimm,“ segir Lilja
Dögg og bætir við að mikil ásókn sé í
kórinn, þær þurfi að berja frá sér
umsækjendur. Jón Svavar segir
þetta vera eins hjá Bartónum. „Við
erum ekki með prufusöng, því þessi
hópur er viðkvæmt blóm. Við höfum
lent í því að fá menn inn sem passa
ekki inn í hópinn. En við ætlum að
reyna að fjölga um tíu í hverri rödd.
Það er ákveðin tegund af helgun sem
fólk þarf að búa yfir til að vera með,
þetta er mikil skuldbinding. Það er
ekki afsökun að komast ekki á kór-
æfingu af því að amma bauð í mat.
Æfingakvöld eru heilög kvöld, það
verður enginn árangur ef fólk mætir
ekki á æfingar. Hljómurinn hefur
þróast í rétta átt í báðum þessum
kórum, Bartónum og Kötlum.“
Baulaði mikið í bernsku
Jón Svavar kemur að norðan,
hann er alinn upp á Torfufelli í Eyja-
firði. „Sem barn var ég þrjóskt kvik-
indi og grenjaði mikið, reyndar baul-
aði ég meira en grenjaði ef ég fékk
ekki það sem ég vildi. Ég held að
þetta baul hafi verið fínn grunnur að
söngtækni barítónsins. Ég ólst ekki
upp við klassíska tónlist og enginn í
minni fjölskyldu kem-
ur úr söngumhverfi.
Ég var í pönk-
hljómsveitum þegar
ég var unglingur en
þegar ég var 18 ára
slysaðist ég inn í
söngtíma, þá bjó ég
hér fyrir sunnan og átti kærustu sem
var í söngnámi. Hún plataði mig inn
þegar ég sótti hana í tíma hjá Önnu
Júlíönu Sveins og lét mig syngja og í
framhaldinu sótti ég söngtíma hjá
henni. En ég hætti, mér fannst þetta
svo leiðinlegt, ég var ungur og nennti
ekki að syngja klassík. Seinna fór ég
í söngnám hjá Snæbjörgu Snæbjarn-
ardóttur og hún fangaði mig inn í
söngheiminn.“ Og þá varð ekki aftur
snúið, norðlenski barítóninn var
kominn til að vera. Í framhaldinu fór
hann út til Vínar í söngnám. „Þá fékk
ég menningarsjokk, ég hélt ég væri
svo klár en fattaði þar að ég kunni
ekki neitt og að þessi söngbransi
væri risastór og ég kominn afar
skammt á veg,“ segir Jón Svavar og
hlær.
Var alltaf syngjandi
Lilja Dögg grípur þetta á lofti
og segir það vissulega vera mikinn
kost við litla samfélagið á Íslandi að
þar fái margir að njóta sín og flestir
fái stuðning við það sem þeir eru að
gera. „Hér heima er
styðjandi umhverfi,
sem er mjög verð-
mætt því þá þorir
maður að gera það
sem maður vill gera.“
Lilja Dögg er frá
Hellissandi og hún
ólst þar upp við mikla tónlist.
„Mamma, amma og afi voru í kirkju-
kórnum og ég man varla eftir mér
sem krakka öðruvísi en syngjandi.
Ég bara söng og hugsaði ekkert út í
að það væri hægt að læra það. En ég
lærði aftur á móti í mörg ár á píanó.
Ég fór í kór eftir að ég fluttist suður,
ég var svo heppin að vinur minn dró
mig í Hljómeyki, agalega virðulegan
kammerkór í höfuðborginni. Mar-
teinn heitinn Hunger Friðriksson
var stjórnandi og hann krafði mig
um að syngja einsöng og þá var ég
svakalega feimin og átti mjög erfitt
með þetta. En hann hvatti mig til að
fara í söngnám og ég gerði það.“ Síð-
an hefur söngurinn verið stór hluti af
lífi Lilju Daggar og nú starfar hún að
mestu við söng.
Spáð og spekúlerað Að mörgu er að huga og eins gott að ruglast ekki.
Tónleikarnir verða í Austurbæ á
morgun, fimmtudag, kl. 20. Miðar
fást á midi.is og við inngang. Allur
ágóði af tónleikunum rennur til
Hugarafls.
„Stelpurnar verða
stundum pirraðar
af því að þeim
finnst strákarnir
ekki nógu fljótir.“
Þrír stjórar Kórstýrur Katlanna,
Lilja Dögg og Hildigunnur, þurfa
stundum að hemja Jón Svavar af festu
og öryggi þegar hann vill stjórna þeim.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
www.volkswagen.is
Volkswagen atvinnubílar
Einstakt
tækifæri
Nú í desember gefst einstakt tækifæri til að
kaupa sýningar- og reynsluakstursbíla
hjá VW atvinnubílum á góðum kjörum.
Kynntu þér málið hjá
sölufulltrúum okkar
á Laugavegi 174.
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn ÍsafirðiTakmarkað magn