Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Stórt framfaraskref hefur verið stig-
ið í raforkumálum Vestfirðinga með
opnun varaaflsstöðvar í Bolung-
arvík, sem framleiðir raforku inn á
Vestfjarðakerfið ef bilun verður í
kerfinu og með uppsetningu snjall-
netskerfis, sem Landsnet hefur sett
upp á Vestfjörðum í samstarfi við
Orkubú Vestfjarða. Það á að tryggja
eins örugga af-
hendingu raf-
magns til notenda
og unnt er við nú-
verandi að-
stæður.
Nýja varaafls-
stöðin og tengi-
virki í Bolung-
arvík eru
lokahnykkurinn í
átaki Landsnets
til að efla afhend-
ingaröryggi raforku á Vestfjörðum.
Prófanir hafa staðið yfir að und-
anförnu og hafa þær gengið vel. Af-
kastageta nýju varaaflstöðvarinnar
samsvarar orkunotkun norð-
anverðra Vestfjarða og því styrkir
hún stórlega allt raforkukerfið á
Vestfjörðum. Snjallnetið og vara-
aflsstöðin hafa þegar verið gangsett
þó að fresta hafi þurft formlegri
opnunarathöfn í gær vegna veðurs.
Sl. mánudag var opið hús í varaafls-
stöðinni og komu yfir 100 gestir og
kynntu sér tækninýjungarnar.
,,Þetta er mikið framfaraskref.
Væntingar okkar standa til þess að
þetta muni breyta miklu,“ segir
Þórður Guðmundsson, forstjóri
Landsnets. Nýja snjallnetskerfið
vakti álag á svæðinu, raforkufram-
leiðsluna innan þess og raforkuflutn-
inginn inn á svæðið. ,,Þegar truflun
verður, fyrst og fremst ef Vest-
urlínan fer út og það vantar skyndi-
lega mikla orkuframleiðslu innan
svæðisins, þá kemur snjallnetið til
skjalanna og það leysir út álag víða á
Vestfjörðum þar sem reynt er að
koma á jafnvægi á milli framleiðslu
og eftirspurnar innan svæðisins.“
Umfangsmiklar álagsprófanir
búnaðarins fóru fram fyrir tæpum
mánuði en þá var straumur tekinn af
á norðanverðum Vestfjörðum og
reyndist hann vel. Einnig reyndi á
stöðina í illviðrinu sem reið yfir
Vestfirði á dögunum og fóru dísilvél-
arnar í varaaflsstöðinni þá í gang.
Fyrir tilkomu stöðvarinnar hefði
rafmagn getað legið niðri í klukku-
stund eða lengur í Bolungarvík en að
þessu sinni leið aðeins tæp mínúta
þar til straumur komst aftur á.
Sex 1,8MW dísilvélar
Tveir 100.000 lítra olíutankar eru
við varaaflsstöðinna og er hægt að
keyra vélarnar á fullu afli í samfleytt
þrjá daga, ef á þarf að halda. Alls
eru sex 1,8 MW dísilvélar í stöðinni
og tengist hver og ein þeirra rafala,
sem umbreytir hreyfiorku í raforku,
og spenni sem breytir 400 kV
spennu rafala í 11 kV spennu dreifi-
kerfisins, skv. upplýsingum Lands-
nets.
Þegar á þarf að halda eru dísilvél-
arnar komnar inn og tengdar við
kerfið á um einni mínútu, að sögn
Þórðar. Fullkominn stjórnbúnaður
sér bæði um sjálfvirka ræsingu vél-
anna og spennusetningu kerfisins og
tryggir að hægt er að ræsa vélarnar
frá stjórnstöð Landsnets.
Þetta verkefni hefur verið í und-
irbúningi og framkvæmd í tæp fjög-
ur ár. Þórður segir að spennistöðvar
sem fyrir voru bæði á Ísafirði og í
Bolungarvík hafi verið staðsettar á
snjóflóðasvæðum og því þurfti að
byggja nýjar stöðvar utan snjóflóða-
hættusvæða. Stöðin á Ísafirði var
tekin í notkun í júlí sl. og núna er
stöðin í Bolungarvík einnig komin í
rekstur. „Við tengdum þessar tvær
stöðvar saman með jarðstreng til
þess að tryggja að dísilvélin myndi
nýtast inn á stærra svæði sem væri
óháð veðri og vindum,“ segir hann.
Á næstunni stendur til að skoða
frekari styrkingu raforkukerfisins á
sunnanverðum Vestfjörðum en eng-
ar ákvarðanir hafa þó enn verið
teknar um það.
Miklar úrbætur í raforkumálum
Ný varaaflsstöð Landsnets í Bolungarvík framleiðir raforku inn á Vestfjarðakerfið ef bilun verður
Fullkominn stjórnbúnaður sér um sjálfvirka ræsingu vélanna og spennusetningu raforkukerfisins
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í
gærmorgun kröfum verjenda í
Marple-málinu svonefnda. Tvær
kröfur voru gerðar um frávísun
málsins frá dómi og einnig var gerð
krafa um að tiltekin gögn yrðu ekki
lögð fram. Aðeins er hægt að kæra
til Hæstaréttar þann þátt málsins
sem snýr að gögnunum.
Í Marple-málinu eru Hreiðar Már
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings, og Guðný Arna Sveins-
dóttir, fyrrverandi fjármálastjóri
Kaupþings, ákærð fyrir fjárdrátt og
umboðssvik, Magnús Guðmundsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings í
Lúxemborg, er ákærður fyrir hlut-
deild í fjárdrætti og umboðssvikum
Hreiðars Más og Guðnýjar Örnu og
Skúli Þorvaldsson er ákærður fyrir
hylmingu.
Auk þess er krafist upptöku fjár
hjá félögunum Marple Hold-ing S.A.
SPF, BM Trust S.A. SPF, Holt
Hold-ing S.A., SKLux S.A. og Leg-
atum Ltd. Öll eru félögin með lög-
heimili í Lúxemborg fyrir utan Leg-
atum sem er með lögheimili á Möltu.
Verjendur Skúla og fjögurra af
fimm félögum kröfðust þess að mál-
inu yrði vísað frá, meðal annars af
þeirri ástæðu að íslenskir dómstólar
hafi ekki lögsögu í málinu. Félögin
séu erlend og hafi engin tengsl á
grundvelli lögsögureglna við Ísland
og þau séu ekki sökuð um að hafa
brotið af sér.
Þá hafi Skúli ekki átt í neinum við-
skiptum við Kaupþing á Íslandi. Það
sem gerst hafi eftir að fjármunir
komu til Kaupþings í Lúxemborg –
ef þeir tengdust Skúla – gerðust að-
eins þar og þurfi að byggja á því að
hann hafi framið brot gegn lögum
þess lands þar sem meint brot eru
sögð hafa verið framin.
Sem áður segir hafnaði héraðs-
dómur öllum kröfum. Ekki er hægt
að kæra úrskurðinn er varðar frávís-
unarkröfurnar og tók verjandi sér
lögmæltan kærufrest er varðar
rannsóknargögnin. andrikarl@mbl.is
Frávísunarkröf-
um var hafnað
Marple-málið fyrir héraðsdómi
Morgunblaðið/Þorkell
Þó að miklar úrbætur verði á raf-
orkuöryggi Vestfirðinga með til-
komu varaaflsstöðvarinnar er
engan veginn búið að leysa allan
vanda Vestfirðinga í raforku-
málum. Þórður Guðmundsson,
forstjóri Landsnets, segir snjall-
netskerfið og dísilvélarnar sem
nú hafa verið teknar í notkun
fyrsta áfangann en annað og
meira þurfi til að koma raforku-
málunum í varanlegan búning.
Auka þurfi sjálfa orkuframleiðsl-
una innan svæðisins. „Þó að það
væri ekki nema um nokkur
megavött þá myndi það hafa
mikil áhrif á allt raforkuöryggi á
svæðinu.“ Orkubú Vestfjarða sé
með einhver verkefni í gangi sem
eigi vonandi eftir að skila Vest-
firðingum því rafmagnsöryggi
sem þeir eigi skilið.
Auka þarf
framleiðslu
BÚI VIÐ RAFORKUÖRYGGI
Bolungarvík Varaaflsstöð Landsnets er fullbúin og hefur verið gangsett.
Kynning Opið hús var i varaaflsstöðinni sl. mánudag og mættu um 100 manns til að kynna sér tækninýjungarnar. Á
myndinni má sjá Víði Má Atlason, verkefnisstjóra hjá Landsneti, og Nils Gústavsson, deildarstjóra framkvæmda hjá
Landsneti, fræða Elías Jónatansson, bæjarstjóra í Bolungarvík, og fleiri um varaaflsstöðina og snjallnetskerfið.
Þórður
Guðmundsson