Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Snjallnetslausnir eru í dag ein helsta tækninýjungin í raforkukerfum. Landsnet setti snjallnetskerfið upp á Vestfjörðum í samstarfi við Orkubú Vestfjarða. Kostur þess er sá að ef afhending raforku bregst ræsir snjallnetskerfið vélarnar í Bolungar- vík og kemur rafmagni á að nýju inn- an 100 sekúndna á Ísafirði og í Bol- ungarvík, samkvæmt upplýsingum Landsnets. Nýja varaaflsstöðin í Bolungarvík er að stórum hluta hefðbundið tengi- virki, sem tengir dreifiveitu Orkubús Vestfjarða við flutningskerfi Lands- nets. Stöðin er sögð hafa sérstöðu á heimsvísu þar sem með tilkomu hennar hefur verið sett upp varaafl fyrir heilan landshluta en til þessa hafa varaaflsstöðvar hér á landi ein- göngu verið tengdar einum notanda eða einu bæjafélagi. Varaaflsstöðin tengist flutnings- kerfinu þegar á þarf að halda. Ef straumleysi verður á svæðinu nemur varnarbúnaður (snjallnetið) stöðuna og sendir boð í tengivirki í Bolung- arvík um stöðu kerfisins. Boð eru send út um að setja rofa kerfisins í ákveðna stöðu. Dísilvélar fá boð um að fara í gang og flutningskerfið er spennusett, eins og það er kallað, frá varaaflsstöðinni og dreifiveitan setur spennu áfram til notenda og raf- magn kemst á að nýju. Styrkja fjarskiptakerfið Samkvæmt upplýsingum Lands- nets er snjallnetið sem tekið hefur verið í notkun, lykilatriði í hraðri spennusetningu kerfisins eftir að straumlaust verður og lykillinn að virkni snjallnetsins eru bætt fjar- skipti. Til að tryggja þá virkni hefur verið ráðist í miklar styrkingar á fjarskiptakerfnu á Vestfjörðum. „Þessi snjallnetstækni er að ryðja sér til rúms mjög víða,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets. ,,Við höfum tekið þetta nokkuð langt og erum kannski á meðal þeirra sem eru hvað lengst komnir við að innleiða þetta,“ segir Þórður. Að sögn hans hefur Landsnet ver- ið með snjallnetslausnir af ýmsu tagi í notkun í meginflutningskerfi Landsnets. Þar sem ekki hefur verið hægt að reisa flutningslínur hefur Landsnet gripið til ýmissa tækni- lausna til að verja kerfið og þróað búnað með innlendum og erlendum aðilum, sem hefur gert fyrirtækinu fært að reka kerfið án meiriháttar áfalla, að sögn Þórðar. „Margir horfa til þess sem við erum að gera og hafa margir komið í heimsókn til okkar til að kynna sér hvað við erum að gera og hvernig við höfum gengið til verks. Það er víða tekið eftir því er- lendis.“ Heimild: Landsnet Allir almennir notendur á Ísafirði og Bolungarvík komnir með rafmagn Lína í flutningskerfi Landsnets fer út og útleysing verður hjá notendum á Vestfjörðum Straumlaust hjá notendum á norðanverðum Vestfjörðum. snjallnetskerfið tekur út alla rofa að notendum, auk lína frá Mjólkávirkjun í flutningskerfið á norðanverðum Vestfjörðum Fyrstu notendur á Ísafirði og í Bolungarvík fá rafmagn Vélar í Bolungarvík komnar í gang ogbyrja fljótlega að keyra upp spennu á flutningskerfinuVélar í Bolungarvík fá merki frá snjallnetskerfinu um að ræsa Snjallnetskerfið setur inn notendur einn af öðrum 0 sek. 0,5 - 1 sek. Tími (sek) 12 sek. 18 sek. 36 sek. 90 sek. Tímalína fyrir virkni snjallnetsins í straumleysi Ræsir vélar á innan við 100 sek.  Varaaflsstöð með sérstöðu á heimsvísu Snjallnetskerfið » Sjálfvirk ræsing varaafls í Bolungarvík hefst strax og straumlaust verður hjá al- mennum notendum og í kjöl- farið fá notendur á Ísafirði og í Bolungarvík aftur rafmagn. » Verði rafmagnslaust á norð- anverðum Vestfjörðum und- irbýr snjallnetið flutningskerfið þar sjálfvirkt fyrir spennusetn- ingu frá vélunum í Bolungarvík. Þegar spenna er komin á að nýju fá almennir notendur raf- magn einn af öðrum. Fjórar konur á aldrinum 20-22 ára voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdar í skilorðsbundið fang- elsi fyrir að ráðast á átján ára stúlku. Þrjár þeirra fengu þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og sú fjórða 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Saman greiða þær, samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms, fórn- arlambi sínu 500 þúsund krónur og málsvarnarlaun verjenda, 1,3 millj- ónir hver. Neituðu sök Konurnar réðust á fórnarlamb sitt inni á salerni skemmtistað- arins Úrillu górillunnar við Gull- inbrú í mars í fyrra. Var tveimur þeirra gefið að sök að hafa rifið í hár stúlkunnar og síðan hafi þær allar ráðist á hana utan við skemmtistaðinn, rifið í hár hennar og slegið og sparkað í líkama henn- ar. Við þingfestingu málsins neituðu allar konurnar sök utan einnar sem játaði að hafa rifið í hár kon- unnar og að hafa sparkað einu sinni í fótlegg hennar. Saksóknari sagði að fórn- arlambið í málinu hefði komið á lögreglustöð nokkrum dögum eftir árásina og kært fimm ungar konur fyrir hana. Þær voru allar ákærðar en eftir að tveimur vitnaskýrslum var bætt við eftir þingfestingu málsins var ákveðið að fella niður málið á hendur einni þeirra. Dæmdar fyrir árás á stúlku  Dæmdar í skilorðsbundið fangelsi og til að greiða bætur Hátúni 6a • 105 Reykjavík • Sími 552 4420 • www.fonix.is Heimilistækjadagar20% afslá ttur www.gjofsemgefur.is P IP A R \T B W A • S ÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.