Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Icelandair leitar að framkvæmdastjóra til að stýra framleiðslusviði félagsins
(Senior Vice President Operations).
Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs er ábyrgur gagnvart framkvæmdastjóra Icelandair
(CEO) og situr í framkvæmdastjórn félagsins. Framleiðslusvið er fjölmennasta svið
Icelandair með um 1.100 starfsmenn.
Starfssvið framleiðslusviðs er í megindráttum þríþætt:
Flugrekstur Icelandair (flight operations)
Viðhald flugvéla Icelandair (maintenance)
Ábyrgð á starfsemi flugafgreiðslu vegna flugrekstrar Icelandair
(ground operations)
Framkvæmdastjóri þarf að uppfylla öll skilyrði sem ábyrgðaraðili flugrekstrar
(accountable manager).
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Icelandair á undanförnum árum og
verða 23 flugvélar í leiðakerfi Icelandair sumarið 2015.
STARFSSVIÐ:
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á stjórnun, framþróun og daglegum rekstri
framleiðslusviðs.
Framkvæmdastjóri er ábyrgðaraðili flugrekstrar Icelandair
gagnvart flugmálayfirvöldum.
Stefnumótun Icelandair ásamt öðrum stjórnendum félagsins.
HÆFNISKRÖFUR:
Háskólapróf í verkfræði / viðskiptafræði eða sambærileg menntun
Framhaldsmenntun er æskileg
Öflug rekstrar- og fjármálaþekking
Mikil reynsla af stjórnun er nauðsynleg
Reynsla af flugrekstri er mikilvæg
Frumkvæði, forystuhæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum
Þekking á reglugerðum sem snúa að tæknistjórn og rekstri flugvéla er kostur
Reynsla af stefnumótun og gæðastjórnun
Góð tungumálakunnátta
Við leitum að kraftmiklum einstaklingi í mjög krefjandi starf í góðu starfsumhverfi sem
býr yfir framúrskarandi samskiptahæfileikum og vill vinna sem hluti af öflugri liðsheild
í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi.
Lögð er áhersla á vönduð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Fyrirspurnum svarar:
Svali H. Björgvinsson I sími 5050 300 I svali@icelandair.is
+ Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 30. desember 2014.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
FRAMLEIÐSLUSVIÐS ICELANDAIR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
72
11
4
12
/1
4
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það virðist vera samhljómur um
að koma upp veitingahúsi uppi á
Hakinu á barmi Almannagjár,“
segir Sigrún Magnúsdóttir, for-
maður Þingvallanefndar og þing-
flokks-
formaður
Framsókn-
arflokksins.
Mikil hug-
myndavinna
hefur átt sér
stað að und-
anförnu vegna
hugsanlegs
veitingahúss á
Þingvöllum.
„Það er búið
að finna þarna ágætis stað. Öll
nánari útfærsla er þó eftir og
þetta er bara á umræðustigi,“ seg-
ir hún ennfremur.
Hestagjáin nýtt betur
Sigrún segir Þingvallanefndina
hafa fundað með forsætisnefnd Al-
þingis á Þingvöllum í vor og málið
rætt þar.
„Á grundvelli þeirrar hugmynda-
vinnu var unnið að tillögum. Það er
margt sem þarf að huga að, við vilj-
um til að mynda ekki að þetta
skyggi á útsýnið neðan af þinghelg-
inni og svo framvegis, maður vill
náttúrlega fara vel með þennan
helga stað okkar,“ segir Sigrún.
Nefndin fékk aðstoð arkitekta-
stofunnar Gláma/Kím við hug-
myndavinnu verkefnisins.
„Verkið verður engu að síður boð-
ið út, það er engin spurning. Einnig
höfum við Ólafur Örn Haraldsson,
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum,
kynnt málið fyrir forseta þings,
skrifstofustjóra Alþingis sem og
forsætisráðherra. Það er sam-
hljómur á milli þessara aðila en auð-
vitað er það Þingvallanefndar að
vinna áfram að málinu,“ segir hún.
„Þarna munu ef til vill koma til
nýjar gönguleiðir, ný hringtenging
og mögulega útsýnispallur út frá
veitingahúsinu. Síðan verður hugs-
anlega unnið að því að gera það
kleift að ganga þaðan niður í Hesta-
gjána. Með því móti myndi álagið
eflaust dreifast eilítið um svæðið.
Síðan verður kannski unnið að úti-
svæði á Valhallarreitnum, þar yrði
hægt að hafa ýmsar skemmtanir,
fundi og annað,“ segir Sigrún en
bætir því við að lokum að ekki sé
ljóst hvenær verði mögulegt að ráð-
ast í framkvæmdir.
Veitingahús á barmi Almannagjár
Þingvallanefnd vinnur hugmyndavinnu að byggingu nýs veitingahúss á Hakinu á Þingvöllum
Nýjar gönguleiðir eru hugsanlegar auk þess sem Valhallarreiturinn verður mögulega nýttur
Morgunblaðið/Ómar
Eldsvoði Valhöll á Þingvöllum brann 10. júlí árið 2009 og hefur nýtt veitingahús oft borið á góma síðan þá.
Sigrún
Magnúsdóttir
Hótel Valhöll var gistihús á
Þingvöllum sem upphaflega var
reist árið 1898 en við það var
byggt í áranna rás allt þar til
það brann til kaldra kola 10. júlí
árið 2009. Engan sakaði í brun-
anum en með húsinu brann
fjöldi listaverka og annarra
muna.
Sigfús Eymundsson teiknaði
hið upphaflega Hótel Valhöll og
var það reist við Kastala. Í upp-
hafi þriðja áratugar 20. aldar
var byrjað að ræða um að færa
hótelið. Árið 1930 var hótelið
svo endurreist gegnt Þingvalla-
kirkju og Þingvallabæ.
Brunarústir Valhallar voru
rifnar eftir eldsvoðann árið
2009 og hefur staðurinn legið
undir grænni torfu allar götur
síðan. Frá því bruninn varð hef-
ur mönnum orðið tíðrætt um að
reisa annað veitingahús, og
jafnvel gistihús, á Þingvöllum
og ýmsar hugmyndir skotið upp
kollinum. Samhljómur virðist nú
vera í Þingvallanefnd um hvað
skuli reisa og hvar það skuli
rísa.
Stórbruni
árið 2009
UPPHAFLEGA BYGGT 1898