Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Dýfa?
Dýfðu þér í fjörið
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
Þrjár atrennur hafa verið gerðar til
að koma í veg fyrir mikið heitavatns-
rennsli úr Vaðlaheiðargöngum,
Eyjafjarðarmegin. Úr sprungunni
sem opnaðist snemma á þessu ári
renna nú 60 til 70 lítrar á sekúndu af
46 gráðu heitu vatni. Við bætist svo
að úr berginu annars staðar í göng-
unum og við stafninn innst inni í
göngunum renna um 70 lítrar á sek-
úndu og hitinn á því vatni er allt að
59 gráður. Í upphafi var rennslið úr
sprungunni um 350 lítrar á sekúndu,
þannig að náðst hefur að beisla um-
talsvert magn með því að bergþétta
með sérstakri efnablöndu. Sökum
mikils hita og raka í göngunum var
ákveðið að hætta borun Eyjafjarð-
armegin og hefja í staðinn fram-
kvæmdir í Fnjóskadal. Göngin Eyja-
fjarðarmegin eru um 2.700 metrar
að lengd, en Fnjóskadalsmegin er
lengdin nú um 720 metrar. Alls er
búið að sprengja rúmlega 47% af
göngunum, sem verða 7.206 metra
löng að vegskálum undanskildum.
Byrjað Eyjafjarðarmegin aftur
Valgeir Bergmann, framkvæmda-
stjóri Vaðlaheiðarganga hf., segir
ekki fyrirhugað að þétta heitavatns-
sprunguna frekar.
„Vatninu verður veitt í stokk og er
lagning röra þegar hafin. Hins vegar
er ætlunin að þétta sprungur við
stafninn með efnablöndu, vænt-
anlega verður það gert fljótlega á
nýju ári. Með því að veita vatninu í
rörum út úr göngunum dregur
væntanlega úr raka og lofthita.
Þannig verða aðstæður starfsmanna
til gangagerðar betri og ég geri mér
vonir um að eftir tvo til þrjá mánuði
verði hægt að vinna í göngunum
Eyjafjarðarmegin á nýjan leik. Þótt
ekki verði farið að bora strax, þá
bíða ýmis verkefni, svo sem loka-
styrking bergsins og annar nauðsyn-
legur frágangur.“
Jólafrí
Starfsmenn við gerð Vaðlaheiðar-
ganga eru um fimmtíu, um helm-
ingur frá ýmsum Evrópulöndum.
Valgeir segir að á föstudaginn fari
allir í langþráð jólafrí. „Þetta er
fyrsta langa fríið á þessu ári, þannig
að það er kærkomið. Þetta ár hefur á
margan hátt verið nokkuð erfitt, sér-
staklega vegna heita vatnsins. Mötu-
neyti, svefnskálar og fleira eru í
Eyjafirði og eftir að starfsemin var
flutt yfir í Fnjóskadalinn getur verið
erfitt að fara á milli staða, þar sem
Víkurskarðið getur verið torfært eða
jafnvel ófært. Í óveðrinu um helgina
kom þetta óhagræði reyndar ber-
lega í ljós. Við höfum því sannarlega
glímt við frost og funa á árinu. Í lok
vikunnar halda sem sagt allir starfs-
menn í kærkomið jólafrí og vinna
hefst á nýju ári þann 5. janúar,“ seg-
ir Valgeir Bergmann.
Heita vatnið leitt í stokk
Ekki fyrirhugað að þétta heitavatnssprunguna í Vaðlaheiðargöngum frekar
Gangamenn á leið í langþráð jólafrí Búið að sprengja 47% ganganna
Ljósmynd/Valgeir Bergmann
Hiti og raki Vatn úr heitavatnssprungu í Vaðlaheiðargöngum leitt í stokk. Vonast er til að þannig verði komið í veg fyrir óbærilegan hita í göngunum.
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að skora
á ríkisstjórn Íslands að stækka
griðasvæði hvala í Faxaflóa. Einn
borgarfulltrúi kvaðst ekki styðja
tillöguna og sagðist ekki telja að
hvalaskoðun og hvalveiðar í Faxa-
flóa sköruðust heldur hefðu báðar
atvinnugreinar dafnað hlið við hlið.
Sóley Tómasdóttir, borg-
arfulltrúi Vinstri grænna, mælti
fyrir tillögunni og sagði í ræðu
sinni að talið væri að hvalaskoð-
unarfyrirtæki hefði fengið 1,5-1,7
milljarða króna í miðasölu í fyrra.
Til að tryggja áframhaldandi vöxt
fyrirtækjanna þyrfti að stækka
griðasvæðið í Faxaflóa.
Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sagðist ekki geta stutt tillöguna.
Hann sagði þau gögn sem fylgdu
tillögunni ófullnægjandi og hann
vildi sjá hvaða svæði væri verið að
tala um. Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sagðist ætla að
samþykkja tillöguna enda útilokaði
hún ekki hvalveiðar í Faxaflóa og
mikilvægt væri að báðar atvinnu-
greinar fengju að blómstra.
Halldór Halldórsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tók
undir með Sveinbjörgu og sagði að
með áskoruninni til ríkisstjórn-
arinnar væri ekki verið að útiloka
hvalveiðar og það væri mikilvægt.
Hvalaskoðun væri hins vegar að
aukast og þyrfti aukið rými í Faxa-
flóa. Því styddi hann tillöguna.
Fór svo að tillagan var samþykkt
með fjórtán samhljóða atkvæðum,
en fimmtán borgarfulltrúar sitja í
borgarstjórn.
Vilja stærra
griðasvæði
Morgunblaðið/Ómar
Hvalaskoðun Ferðamenn ganga
um borð í hvalaskoðunarbát.
Nýverið festi fasteignafélagið
Smáragarður ehf. kaup á húsnæðinu
Fiskislóð 3 í Reykjavík. Verslun
Nettó er þar til húsa, en áður var
þar Europris og síðar Iceland. Selj-
andi er einkahlutafélagið F3, sem
samkvæmt fyrirtækjaskrá rík-
isskattstjóra leigir út atvinnu-
húsnæði.
Smáragarður er í eigu Norvik,
sem áður átti m.a. Kaupás, móð-
urfélag matvöruverslanakeðjanna
Krónunnar, Kjarvals og Nóatúns.
Kaupás var selt Festi hf. fyrr á árinu
og er því ekki lengur í eigu sömu að-
ila og Smáragarður. Til stendur að
loka verslun Nóatúns í JL-húsinu,
sem er í grenndinni, fljótlega eftir
áramót, en Jón Björnsson, forstjóri
Kaupáss, segir engin áform um að
Nóatún verði opnað í húsinu við
Fiskislóð 3. „Nei, það stendur ekki
til,“ segir Jón og segir ekki liggja
fyrir á þessari stundu hvort ný Nóa-
túnsverslun verði yfirhöfuð opnuð í
stað þeirrar sem verður lokað.
Sigurður E. Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Smáragarðs, segir
engar breytingar fyrirhugaðar á út-
leigu húsnæðisins á Fiskislóð.
„Nettó er þarna með starfsemi sína
og ég veit ekki til þess að það verði
neinar breytingar þar á á næstunni,“
segir Sigurður.
Morgunblaðið/Júlíus
Fiskislóð 3 Þar er Nettó, en áður voru þar aðrir stór- og matvörumarkaðir.
Keyptu Nettóhúsið
Smáragarður kaupir verslunarhús á
Fiskislóð Engin áform um Nóatún