Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
k k fi p k y j g p
C iarpacc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lamb m
hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté maumeð papriku
kBruchetta með t v í r e y
ðlahangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu etBruch
með hráskinku, bal- sam gog
m euðu Miðjarðarhaf- s g r æ n
Krabba-salat k uf e r s
o lkryddjurtum í b r a u ð b
Bruchetta ðameð Mið jar
hafs-tapende Risa- rækja
jómspjóti með peppadew Silunga hrogn með japönsku majónesi sinnepsr
osti á bruchettu Birkireykt-ur lax priá bruchettu með alioli, grillaðri pa
og fetaosti Hörpuskeljar k sú, 3 smáar á spjóti m/kryddjurtaídýfu Fröns
r Súkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum Vanillufylltar vatnsdeigsbollu
ryakulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Te
lamb á spjóti Risahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúpSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl er
ómissandi í ferðalagið. Útá
salatið og við grillið í sumar.
Hollt og gott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður
opnað almenningi á næstu dögum í
fyrsta sinn í vetur. „Við stefnum á
að opna á morgun, föstudag eða
laugardag,“ segir Magnús Árnason,
framkvæmdastjóri Skíðasvæða höf-
uðborgarsvæðisins. Um verður að
ræða hefðbundna opnun en ein-
hverjar lyftur verða þó lokaðar.
„Við byrjum á að opna að-
alsvæðið í kringum Bláfjallaskála
og svo kemur eitt af öðru.“ Skíða-
unnendur geta átt von á að geta
notað lyfturnar í Kónginum, Stóln-
um, Töfrateppinu, Kaðlinum og
byrjendalyftur til þess að renna
sér í þessari fyrstu opnun vetr-
arins. Auk þess verða lyfturnar á
suðurhluta svæðisins margar opn-
ar.
Þótt snjónum hafi kyngt niður
á svæðinu hefur ekki verið hægt að
opna svæðið fyrr. „Það er talsverð
vinna hafin við að ýta og koma
snjónum á rétta staði og vonandi
bætist við snjóinn núna svo hægt
sé að opna brekkurnar.“
Gjald fyrir skíðagöngur
Þeir sem hafa hugsað sér að
nýta sér Bláfjöllin í vetur geta
fjárfest í vetrarkorti skíðasvæð-
anna sem gildir bæði í Bláfjöll og
Skálafell, og á göngusvæðinu.
Gjaldskráin hefur hækkað um 5,4%
frá því í fyrra en vetrarkortin eru
á sérstöku tilboði í desember. Auk
þess hefur verið hafin sérstök
gjaldtaka fyrir skíðagöngumenn.
Magnús segir að gjaldtakan sé tek-
in upp til að mæta kostnaði við
þjónustuna sem veitt er. „Við erum
að troða þarna göngubrautir og
meðlimir skíðagöngufélagsins Ulls
óskuðu í raun eftir því að greiða
gjald fyrir þá þjónustu gegn því að
komast á forgangslista fyrir ýmis
önnur verkefni, líkt og bætta lýs-
ingu eða snjógervinga,“ segir
Magnús.
Stefna að því að opna í
Bláfjöllum um helgina
Morgunblaðið/Kristinn
Bláfjöll Skíðaunnendur geta tekið gleði sína þegar svæðið verður opnað.
Reyna að hafa flestar lyftur opnar 5,4% hækkun
Samvera á aðventu fyrir syrgj-
endur verður í Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 18. desember kl. 20
og eru þau sem syrgja ástvini sína
sérstaklega boðin velkomin.
„Jólin og undirbúningur þeirra
reynist mörgum syrgjendum erf-
iður tími og á samverunni gefst
tækifæri til að staldra við og taka
sér tíma til að minnast þeirra sem
ekki eru lengur meðal okkar og
tendra ljós í minningu þeirra,“
segir í tilkynningu.
Dagskráin er fjölbreytt. Agnes
M. Sigurðardóttir biskup flytur
hugvekju og Hamrahlíðarkórinn
syngur undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Samveruna leiðir
sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir en
organisti er Hákon Leifsson.
Sungnir verða jólasálmar og að
lokum er minningarstund. Öll dag-
skráin er túlkuð á táknmál. Eftir
stundina verður boðið upp á veit-
ingar.
Þau sem standa að þessari sam-
veru eru Hjúkrunarþjónustan Kar-
ítas, Landspítalinn og þjóðkirkjan.
Samvera syrgjenda
í Grafarvogskirkju
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Samkomulag náðist um afgreiðslu
mála og þinglok á Alþingi rétt eftir
klukkan 10 í gærkvöldi. Mest púður
fór í afgreiðslu þriðju umferðar fjár-
laga og settar voru fram 30 breyting-
artillögur á lokametrunum. Voru 20
þeirra voru samþykktar, en tíu felld-
ar. Að því loknu var frumvarpið sam-
þykkt með 36 atkvæðum en 24 þing-
menn sátu hjá.
Þrátt fyrir langa umræðu fengu
sjónarmið stjórnarandstöðunnar lít-
inn hljómgrunn. Gagnrýndi hún m.a.
hækkun virðisaukaskatts á bækur og
mat, auk þess sem þingmennirnir
vöktu máls á skuldaniðurfellingunni
sem þeir töldu betur varið í aðra þætti
svo sem niðurgreiðslu skulda ríkis-
sjóðs. Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra talaði hins veg-
ar um „endurreisnarfjárlög“, sem
hann sagði að myndu renna stoðum
undir hagvöxt.
Eftir afgreiðslu fjárlaga steig Sig-
mundur í pontu og lagði til að þing-
fundi yrði frestað fram í janúar og var
það samþykkt einróma. Um klukkan
hálfellefu sleit Einar K. Guðfinnsson,
forseti Alþingis, svo þingfundi. Þing
hefst að nýju 20. janúar.
Talaði í 12 klukkustundir
Líkt og oft áður var Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður Vinstri
grænna, lengst í pontu á nýafstöðnu
þingi en hann talaði alls í 711 mínútur
eða í tæpar 12 klukkustundir. Næst á
eftir honum kom Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir, þingmaður Bjartrar
framtíðar, sem talaði alls í 541 mínútu
eða rúmar níu klukkustundir. Þar á
eftir var Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra sem talaði í 452 mín-
útur eða rúma 7 og hálfa klukku-
stund.
Samþykktu þinglok
Steingrímur talaði mest Fjárlögin í gegnum þingið
Morgunblaðið/Kristinn
Þinglok Þingmenn komnir í jólafrí.