Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 20

Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 7990.- m2 Slípivél BD7500 kr. 21.745 25 mm belti 150 mm skífa Ryksuga ha 200s Verð 22.900 Sýgur og blæs. Frábær í skúrinn eða til að hafa með í smærri verk. Smávélar til jólagjafa Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 Slípivél osm 100, kr. 41.800,- Auðveldar þér verkin, pússar þar sem þú átt erfitt með að ná til. Tenging fyrir ryksugu - heilnæmara loft. 6 mismunandi kefli fylgja með. Tifsög deco-flex, kr. 39.600 Tekur bæði blöð með takka og án. Barki fyrir bora o.þ.h. fylgir. Loftpressa HC 16W kr. 19.600 160 l/mín 8 bör Fræsari hf 50 kr. 61.500 Borð 610x360 mm Stiglaus hraði 8000-24000 sn/mín 1500 W                                     ! " "## !$ # %# "" %!! $!$% &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "$   "$ "$ $! #% % "$! %" $# !   " "# !" $ % "$# %" $!$ "!% Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Olíuverð hélt áfram að lækka í gær og fór verðið á Brent-hráolíu undir 60 Bandaríkjadali á tunnuna. Hefur verðið ekki verið lægra síðan um mitt árið 2009. Í greiningu Íslandsbanka er bent á að margir sérfræðingar telji að verðið muni haldast í kringum 60 dali á tunnuna. Ekki sé þó útilokað að verðið lækki enn frekar, náist ekki samstaða á meðal OPEC-ríkjanna um að draga úr framleiðslu. Verðlækkanir á innfluttri hrávöru hafa sambærileg áhrif á hagkerfið og skattalækkanir sem getur orðið til að auka einkaneyslu. Greinendur bankans segja að erfitt sé spá fyrir um hver áhrifin verði hérlendis. Þeir benda á að lækkað verðlag til neyt- enda verði aldrei jafn mikið í pró- sentutölum og nemur verðlækkun á hráolíu á heimsmarkaði. Þannig sé ávallt krónutöluskattur á eldsneyti og einnig þurfa olíufélögin að standa undir tilteknum föstum kostnaði sem breytist ekki þó olíuverð lækki. Þrátt fyrir það megi leiða líkur að því að enn sé töluvert svigrúm til lækkunar á eldsneytisverði á Íslandi. Fram kemur í greiningu Íslands- banka að lágt olíuverð muni hafa nokkur áhrif á afkomu ferðaþjónust- unnar, sem er mikilvægasta gjald- eyrisskapandi atvinnugrein þjóðar- búsins. „Í fyrsta lagi má búast við því að verð á flugi lækki þar sem dragi úr sérstöku eldsneytisgjaldi. Í annan stað þá getur eldsneytisverð haft áhrif á mat félaga á arðsemi ein- stakra flugleiða. Með öðrum orðum má segja að hugsanlega verði ein- hverjar flugleiðir héðan og hingað arðsamar sem voru það ekki áður með tilheyrandi áhrifum á ferða- mannafjölda.“ Lágt olíuverð mun jafnframt hafa jákvæð áhrif á ýmis afþreyingarfyr- irtæki í ferðaþjónustu, svo sem jeppa- og vélsleðaferðir, þar sem eldsneytiskostnaður er einn helsti kostnaðarliður þeirra. „Töluvert svigrúm“ til lækkunar  Greining Íslandsbanka segir enn svigrúm til lækkunar á eldsneytisverði hérlendis  Jákvæð áhrif á ferðaþjónustu Morgunblaðið/Kristinn Eldsneyti Verð á Brent-hráolíu hélt áfram að lækka á mörkuðum í gær. Fór verðið undir 60 dali á tunnuna og hefur ekki verið lægra síðan árið 2009. Embætti Ríkisskattstjóra hyggst birta leiðbeiningar um meðhöndlun virðisaukaskatts á upplýsingatækni- þjónustu fyrir fjármálafyrirtæki. Al- mar Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins (SI), segir þessi fyrirheit marka kaflaskil í ára- langri baráttu SI og Samtaka upp- lýsingatæknifyrirtækja (SUT) fyrir auknu jafnræði á upplýsingatækni- markaði og að leiðbeiningarnar muni leiða til skýrara samkeppnisum- hverfis upplýsingatæknifyrirtækja. Almar segir leiðbeiningarnar frá Ríkisskattstjóra afar jákvætt skref og tilkoma þeirra feli í sér mikinn sigur fyrir þau fyrirtæki sem starfi á þessu sviði. ,,Við fögnum því að skattayfirvöld ætli að skera úr um þetta með al- mennum hætti. Þá geta allir setið við sama borð hvað varðar skattlagn- ingu á sölu upplýsingatækniþjónustu til fjármálafyrirtækja og þannig keppt á jafnréttisgrundvelli.“ Aðspurður kveðst hann fagna því að skorið sé úr réttaróvissu um skattlagninguna, þó svo að hann hefði viljað að það gerðist fyrr. ,,Við viljum í framhaldinu sjá í auknum mæli útboð banka á þessari þjónustu, eins og raunar er áskilið í sátt Samkeppniseftirlitins og eig- enda Reiknistofu bankanna.“ Vísar hann þar til þeirra skilyrða sem Samkeppniseftirlitið setti bönk- unum árið 2012 í tengslum við kaup Reiknistofu bankanna á upplýsinga- tæknifyrirtækinu Teris. Var þeim gert skylt að framkvæma ávallt út- boð eða verðkönnun og að skilgreina strax í upphafi hvernig meðferð virð- isaukaskatts af þjónustunni skuli háttað, óháð því hver verkseljandinn er. brynja@mbl.is RSK sker úr um skattlagningu  Markar þáttaskil að mati SI SI Almar Guðmundsson vill sjá fleiri útboð á þjónustunni í framhaldinu. ● Heildarafli íslenskra fiskiskipa jókst um 10,8% í nóvember frá sama tíma fyrir ári. Var heildaraflinn 88 þúsund tonn. Yfir tólf mánaða tímabil nemur heildaraflinn um 1.078 þúsund tonnum og hefur dregist saman um 20,6% frá fyrra tímabili. Magnvísitala á föstu verð- lagi hefur lækkað um 3,4% á milli ára. Aflinn jókst um 10,8%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.