Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Gengi rúblunnar lækkaði enn í gær
þótt seðlabanki Rússlands hefði
hækkað vexti sína úr 10,5% í 17% til
að reyna að styrkja gjaldmiðilinn.
Gengi rúblunnar hefur lækkað um
rúm 50% gagnvart dollarnum það
sem af er árinu, fyrst og fremst
vegna lækkandi olíuverðs, en einnig
vegna refsiaðgerða Vesturlanda sem
hafa grafið undan trausti á rúblunni
og orðið til þess að margir Rússar
hafa keypt dollara til að ávaxta
sparifé sitt.
Seðlabankinn tilkynnti vaxta-
hækkunina eftir að rúblan lækkaði
um 9,5% í fyrradag og hún hafði
aldrei áður lækkað svo mikið á ein-
um degi frá fjármálakreppunni í árið
1998. Seðlabankinn varaði einnig við
því að lágt olíuverð gæti orðið til
þess að efnahagur Rússlands dræg-
ist saman um tæp 5% á næsta ári.
Gæti veikt Pútín
Efnahagsvandinn er talinn geta
veikt stöðu Vladímírs Pútíns forseta
sem hefur notið mikillar lýðhylli,
einkum vegna efnahagslegs stöðug-
leika og batnandi lífskjara á valda-
tíma hans.
Verð á hráolíu hefur lækkað um
tæpan helming á hálfu ári og verð-
lækkunin hefur gríðarleg áhrif á
efnahag Rússlands vegna þess að
helmingur af tekjum ríkisins kemur
frá olíu- og gasvinnslu. Um tveir
þriðju af útflutningstekjum Rússa
koma frá sölu á olíu og jarðgasi.
Seðlabankinn sagði að vaxta-
hækkunin væri nauðsynleg til að
stemma stigu við vaxandi verðbólgu í
landinu, auk þess sem hún væri til
þess fallin að fá Rússa til að selja
gjaldeyri og ávaxta féð í rússneskum
bönkum. Verðbólgan hefur mælst
um það bil 9% í ár og talið er að hún
verði 11,5% í byrjun næsta árs.
Seðlabankinn tekur þó einnig
áhættu því háir vextir hamla hag-
vexti og vaxtahækkunin kemur á
mjög slæmum tíma núna þegar
Rússar standa frammi fyrir efna-
hagslægð.
Vextir rússneska seðlabankans
voru 5,5% í byrjun ársins og þrátt
fyrir sjö vaxtahækkanir á árinu
hafði gengi rúblunnar lækkað um
49% gagnvart dollarnum áður en
vaxtahækkunin var tilkynnt í
gær. Rúblan hefur jafnvel
veikst meira en hrinjan,
gjaldmiðill Úkraínu, sem
hefur lækkað um 48%
gagnvart dollarnum
vegna átakanna í aust-
anverðu landinu.
Rúblan veiktist enn þrátt
fyrir mikla vaxtahækkun
Seðlabanki Rússa spáir 5% efnahagssamdrætti á næsta ári vegna lágs olíuverðs
Heimild: Seðlabanki Rússlands
Vaxtahækkun seðlabanka Rússlands
5,50
Bankinn hækkaði vexti sína í gær til að reyna að styrkja rúbluna
Prósent
7,0
3. mars 7,5
28. apríl
8,0
28. júlí 9,5
5. nóv.
10,5
12. des.
17,0
16. des.
3. febr.
„Rúblan er í frjálsu falli vegna
óttaþáttarins,“ segir Chris
Weafer, ráðgjafi í rússneskum
efnahagsmálum. Hann segir að
gengisfall rúblunnar stafi fyrst
og fremst af því að fjárfestar
óttist að gjaldmiðillinn og efna-
hagurinn haldi áfram að veikj-
ast og stjórnvöld í Moskvu verði
að finna leið til að endurheimta
traust þeirra.
Boris Titov, umboðsmaður
rússneskra athafnamanna,
sagði að það væri út í hött að
bjarga rúblunni á kostnað alls
efnahagslífsins. „Í stefnuræðu
sinni talaði Pútín forseti um
þörfina á uppbyggingu í at-
vinnulífinu, nýrri tækni, fjár-
festingum og aukinni fram-
leiðslu til að
draga úr inn-
flutningi, en
með ákvörð-
uninni vinnur
seðlabankinn
gegn þessu öllu.“
Í frjálsu falli
vegna ótta
UMDEILD VAXTAHÆKKUN
Vladímír
Pútín
Aðdáendur Star Trek-þáttanna hafa
ábyggilega oft óskað sér að til væri
allsherjartúlkunarvél sem þýðir tal-
að mál jafnóðum eins og sú sem birt-
ist í þáttunum. Nú hefur Microsoft
gefið út vísi að slíkri vél fyrir Skype-
forritið sem á að túlka á milli ensku
og spænsku um leið og fólk talar.
Forritið var fyrst kynnt í maí en
nú er hægt að nálgast sýnishorn af
því fyrir Windows 8.1-stýrikerfið.
Það nefnist Skype Translator og á
að geta túlkað á milli ensku og
spænsku á mæltu máli og fjörutíu
annarra mála á textaformi.
Microsoft vonast til þess að for-
ritið geti brotið niður tungumála-
múra. Nákvæmni þess sé þó lykil-
atriði ef menn ætli að reiða sig á það
til að tala önnur tungumál. Þá hjálp-
ar að forritið er þeim kosti gætt að
verða nákvæmara eftir því sem það
er notað meira.
„Skype Translator notast við
gervigreind sem þýðir að því meira
sem tæknin er notuð, því snjallari
verður hún. Við byrjum á ensku og
spænsku og eftir því sem fleiri nota
sýnishornið af forritinu með þessum
tungumálum, því betra verður það,“
segir Gurdeep Pall, varaforseti
Skype og Lync hjá Microsoft.
kjartan@mbl.is
SKYPE-FORRITIÐ
AFP
Túlkunarvél Skype Translator á að
geta túlkað milli ensku og spænsku.
Vísir að vél sem
túlkar talað mál
Gaurar sem sjá til þess að ekki
sjóði upp úr. 2 í pakka, hvítur og
rauður aðeins kr. 1.790
Lid Sid
(Vín)andi flöskunnar svífur í reipinu.
Sumo eggjabikar
2 í pakkan Kr. 1.950
Karoto
gulrótaryddar
Til skreytinga - Kr. 1.690
Pönduklukka
me› pendúl
Mörg dýr, kafbátur,
þyrla, robot o.fl. form
Kr. 7.490
Salt og pipar uglur - Kr. 1.230
Söngelska eggi›
Spilar tónlist og tryggir að þú fáir eggið
þitt soðið eins og þú vilt hafa það - Kr. 5.500,-
Mjólkurkanna
Mjólkurkanna með spenum
Kr. 3.400
Kr. 3.900
Lasso flöskustandur
Linsukrús
Kaffikrús sem lítur út eins og linsa
Kr. 2.190
Salatáhöld
Jumpin Jack‘s - 4 litir - Kr. 2.900 skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is
Ugla
og
Kisa
Bókastoðir
Kr. 3.600 settið
(2 stk.)
Hágæða heyrnatól
Tvær gerðir.
margir litir.
Verð frá kr. 9.700,-
Urbanears
Mr. tea tesía
Kr. 1.790
Clip on
Led
Öflugt lesljós fyrir gleraugu
Kr. 1.790