Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Jón Þór Ólafs-son, þing-maður Pí- rata, hefur lagt fram athyglisverða lagabreytingu og þingsályktunar- tillögu í því skyni að leggja af opinbera birtingu og framlagn- ingu álagningar- og skattskráa landsmanna í þeirri mynd sem nú er. Samkvæmt tillögu Jóns Þórs er engu að síður lagt til að landsmönnum verði tryggður aðgangur að upplýsingum um álagningu og skattgreiðslur, en að þær upplýsingar verði ekki persónugreinanlegar. Í greinargerð þingsályktun- artillögunnar segir að í þessu takist á tvö grunngildi, „annars vegar réttur landsmanna til upplýsinga er varðar sam- félagið og hins vegar réttur hvers og eins landsmanns til friðhelgi einkalífs. Telja verður að birting álagningar- og skatt- skráa samkvæmt ákvæðum gildandi laga brjóti gegn rétti einstaklinga til friðhelgi einka- lífs, enda eru fjárhagsmálefni einstaklinga meðal viðkvæm- ustu persónuupplýsinga í nú- tímasamfélagi sem eðlilegt og sanngjarnt er að fari leynt“. Þá er bent á að frumvarp um að hætta opinberri birtingu úr álagningar- og skattskrá hafi áður verið lagt fram, en það var fyrir um áratug og var fyrsti flutningsmaður þess Sigurður Kári Kristjánsson. Aðrir flutningsmenn voru meðal annarra Birgir Ármanns- son, Guðlaugur Þór Þórðarson og Pétur H. Blöndal, sem enn eiga sæti á þingi. Jón Þór segir að í umræðum þá hafi komið fram áhyggjur af því að með því að hætta opinberri birtingu hefði fólk ekki nægar upplýsingar til að meta ójöfnuð í samfélaginu, launamun kynjanna og fleira. Með því að birta álagninguna en hafa hana ópersónugreinanlega sé komið til móts við þau sjónarmið. Ennfremur er nefnt í grein- argerð að þegar ákvæði um op- inbera birtingu álagning- arskrár hafi fyrst verið sett í lög hafi skattaeftirlit hins op- inbera verið mjög fátæklegt og ekki til stofnanir til að sinna skattaeftirliti og rannsóknum. Þess vegna hafi hinum almenna borgara verið falið að hafa eft- irlit með samborgurum sínum, en það fyrirkomulag sé nú óþarft og stangist að auki á við stjórnarskrárvarin réttindi um að ekki megi takmarka frið- helgi einkalífs nema brýna nauðsyn beri til vegna réttinda annarra. Full ástæða er fyrir þingið að stíga nú það skref sem þarna er lagt til. Tímabært er að hætta þeim ósið að birta upplýsingar úr álagningarskrám} Fjárhagsmálefni ein- staklinga njóti verndar Nokkursstjórnmála- legs titrings gætti í Bandaríkjunum þegar þar var birt skýrsla meirihluta nefndar Öldunga- deildarinnar um pyntingar sem beitt hefði verið við yfir- heyrslur yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Þeir sem vörðu CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, vísuðu til andrúmsloftsins sem ríkti eft- ir árásina á Tvíburaturnana og á Pentagon. En einnig til grimmdar andstæðinganna, sem engar leikreglur virða. Þrátt fyrir slík rök hefur leyniþjónustan í verki viður- kennt að farið hafi verið langt yfir mörk með því að hætta sjálf hinum „hertu yfir- heyrsluaðferðum“ árið 2007 og formlega með ákvörðun Obama forseta 2009. En ólíklegt er að óvinurinn, hvort sem hann birtist í gervi al-Kaída, talibana eða Ríkis íslams, muni breyta sínum baráttuaðferðum. Í gær frömdu talibanar með sterk tengsl við al- Kaída voðaverk í Pakistan. Þeir myrtu 141 óbreyttan borgara og þar af 132 börn. Börnin voru ekki myrt af slysni, þar sem þau voru of nærri meintum skotmörkum. Þau voru skot- mörkin. Grimmdin var tak- markalaus. Réttlætingin var annars vegar sú, að verið væri að hefna árása yfirvalda í Pak- istan á talibana. En hins veg- ar sú, að börnin í skólanum kæmu frá fjölskyldum sem til- heyrðu eða tengdust pakist- anska hernum. Herlið Banda- ríkjanna og bandamanna verður senn allt á burt frá Afganistan, ef frá eru taldir um 10 þúsund hermenn Bandaríkjanna, sem ætlað er að vera áfram í nokkur miss- eri og þjálfa innlendar her- sveitir. Þær munu ekki tefja sem neinu nemur að talibanar leggi landið undir sig á ný, með öllum þeim hryllingi sem því mun fylgja. Morðárásirnar á skólabörnin eru forleikur þess sem koma skal} Hrikalegar horfur Þ eir sem gerast heitfengir mjög þeg- ar rætt er um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda hafa lengi reynt að þræta fyrir að jörðin sé að hlýna. Eftir því sem frekari rannsóknir hrúgast inn hafa þeir þó (flestir) horfið frá þeirri iðju. Þess í stað hafa þeir beint efasemdum sínum að því að hversu miklu leyti megi rekja hlýnunina til meira magns gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpnum. Sumir mismálsmetandi aðilar, jafnvel hér á þessum sömu síðum, reyna meðal annars að sá fræjum efans með því að stilla málum þannig upp að tveir andstæðir en jafngildir pólar (sem bráðna þá líklega ekki) séu á því hvort að kenn- ingin um loftslagsbreytingar af völdum losunar manna á gróðurhúsalofttegundum eigi við rök að styðjast. Engu að síður er það þó svo að 97% vísindamanna telja þá kenningu trausta. Við og við reyna menn svo að grugga vatnið með hálf- kveðnum vísum og endurtekningum á gömlum bábiljum. Þannig fá efasemdamenn hugarfró í að tala um „hlé“ á hlýnun jarðar þótt meðalhiti rísi og höfin hlýni sífellt. For- sætisráðherra tók þátt í þessu tali í haust þegar hann skaut inn í ræðu á norðurslóðafundi að hafísinn á Norð- urskautinu væri raunar að vaxa aftur eftir mikla bráðnun. Hann hefur líklega gleymt að taka fram að sá vöxtur mið- ast við nær fordæmalaust hrunár í hafísnum. Þegar sérstaklega vel liggur á efasemdamönnum vísa þeir kankvísir til kaldviðris eins og nú er yfir landinu sem sönnun þess hve mikil vitleysa meint hlýnun jarðar sé. Á svipaðan hátt gætu þeir fært rök fyrir því að hungri hafi verið útrýmt úr heiminum því þeir hafi verið að borða. Vísindin eru ekki óbrigðul og kenningar vís- indamanna eru yfirleitt einhverri óvissu háð- ar. Eftir því sem menn rannsaka hlutina nán- ar taka þær því breytingum en alltaf í samræmi við bestu upplýsingar sem fáanlegar eru hverju sinni. Þetta er einmitt helsti styrk- ur vísindanna, að kenningarnar taka mið af raunveruleikanum en ekki öfugt. Efasemdamenn vilja hins vegar taka þess- ari vísindalegu óvissu sem svo að þeirra eigin brjóstvit sé jafngott til að draga ályktanir um flókið kerfi eins og loftslag heillar reikistjörnu og rannsóknir fjölda vísindamanna með ólík sérsvið. Það væri næstum því aðdáunarverð trú á eigin hyggjuviti ef ekki væri fyrir mögu- legar afleiðingar þeirra áhrifa sem sumir þessara efa- semdamanna geta haft í krafti stöðu sinnar. Ekki dugar að beita viðkvæði Galíleó á þá, yppa öxlum og segja „hún hlýnar nú samt“. Miðað við bestu upplýs- ingar sem liggja fyrir þarf að grípa skjótt til aðgerða í loftslagsmálum til að ekki fari illa. Hvers kyns aðgerðir til að draga úr losun eru hins vegar þyrnir í augum þessara manna. Þeir fyllast þórðargleði yfir fréttum af því að lofts- lagsþing Sameinuðu þjóðanna í Perú hafi ekki skilað þeim árangri sem vísindamenn segja að verði að nást til að forða verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Það minnir á fleyg orð úr kvikmyndunum um Leðurblökumanninn: „Sumir menn vilja bara horfa á heiminn brenna.“ kjartan@mbl.is Kjartan Kjartansson Pistill Sumir vilja sjá heiminn brenna STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Sameinuðu þjóðirnar hafa núhaldið alls 20 ráðstefnur umráðstafanir gegn loftslags-breytingum, þeirri síðustu lauk á sunnudagsmorgun í Líma í Perú. Árangurinn var að mati flestra afar takmarkaður. Aðrir segja á hinn bóginn að miklu skipti að menn hafi ekki rokið burt í fússi. Enn sé von um að á næstu ráðstefnu sem verður í lok 2015 í París takist loks að semja um bindandi loforð allra ríkja heims um að draga úr losun lofttegunda sem taldar eru valda hlýnun andrúmsloftsins. Að þessu sinni tókst að fá þró- unarríkin til að samþykkja að þau bæru að hluta til ábyrgð á hlýnun andrúmsloftsins vegna vaxandi mengunar frá þessum löndum sem eru óðum að iðnvæðast. „Eldvegg- urinn“ milli auðugra ríkja og fá- tækra er því fallinn. Þá er búið að auka líkur á samkomulagi, versn- andi efnahagur og mikil skuldasöfn- un margra ríkra þjóða hefur minnk- að áhuga ráðamanna þeirra á að standa fyrir auknum útgjöldum sem aðeins hluti ríkja heims tæki þátt í. Tvennt hefur einkum valdið ágreiningi í Líma, að sögn breska blaðsins Guardian. Annars vegar er það þessi deila um það hvernig skipta skuli fjárhagslegu byrðunum af umdeildum ráðstöfunum gegn loftslagsbreytingum. Þá er aðallega átt við kröfurnar um að menn noti minna af jarðefnaeldsneyti, kolum og olíu. Þróunarríkin segja að þau ríku hafi um langt skeið dælt út koldíox- íði og öðrum gróðurhúsaloftteg- undum. Þær eigi því að borga meira en aðrar. Og Kínverjar hafa lengi heimtað að magnið sem losað er verði metið í tengslum við íbúafjölda hvers lands, nokkuð sem myndi að sjálfsögðu gera þeirra hlut betri en ella. En þeir féllu nýlega frá þessari stefnu á fundi með Bandaríkjamönn- um og jók það væntingar um árang- ur á fundinum í Perú. Annar þröskuldur er að illa gengur að ná samkomulagi um sam- ræmdar mæliaðferðir þegar metið er hve mikið er losað í hverju landi. Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í um- hverfisráðuneytinu, sem sat ráð- stefnuna í Perú, segir að menn vilji tryggja að ekki sé verið að bera sam- an „epli og appelsínur“, að tölur séu sambærilegar. Hann hefur nú alls setið 10 loftslagsráðstefnur og segir að í viðræðunum sé tekist hart á um mikla hagsmuni og þeir séu flóknir, hvert ríki hafi sína sérstöðu. Geta lagt fram upplýsingar „Í þetta sinn var farin sú leið að setja ekki fram kröfur um bindandi kröfur um samdrátt í losun en ríkin geta lagt fram upplýsingar á næsta ári um það hvað þau hyggist gera,“ segir Hugi. Þegar hafi náðst sam- komulag um að lagðir verði 10 millj- arðar dollara í svonefndan Grænan loftslagssjóð til að aðstoða þróun- arríki í baráttunni gegn hlýnun og laga sig að breyttum aðstæðum. Rætt hafi verið um að bæði ríki og einkafyrirtæki myndu koma að fjár- mögnun aðgerðanna. Einnig sé ljóst að fjölmargt geti talist vera liður í þeim, m.a. hvers kyns ráðstafanir til að hjálpa þjóðum að laga sig að þurrk- um sem geti stafað af losun koldíoxíðs en einnig af nátt- úrulegum orsökum. Ís- lensk stjórnvöld hafa heit- ið að leggja fram skerf í sjóðinn en eiga þó eftir að ákveða hann nánar, segir Hugi Ólafs- son. Snúið að samræma koldíoxíðmælingar Morgunblaðið/RAX Endurheimt Draga má úr losun gróðurhúsalofttegunda með ýmsum hætti, t.d. endurheimta votlendi, fylla upp í skurði sem grafnir voru á síðustu öld. Fulltrúar Kína og annarra þró- unarríkja (sumra eins og Singa- púr mjög efnaðra) komu í veg fyrir að samþykktar yrðu í Líma skýrar og strangar reglur um að hvert ríki sendi frá sér áreiðan- legar upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda og að- gerðir gegn henni. Í staðinn verður því í reynd um að ræða reglur sem ríkin ákveða sjálf, reglur sem hægt verður að sneiða hjá. Oft er beitt þeirri aðferð í al- þjóðasamskiptum að hafa orða- lag yfirlýsinga mjög loðið til að hægt sé að ná fram málamiðlun sem hver túlkar eftir eigin höfði. Reifaðar hafa verið til- lögur um að ríku löndin leggi fram 100 milljarða dollara árlega fyrir 2020 til aðstoðar þróunarríkjum vegna hlýnunar. En tillög- urnar eru þoku- kenndar og óljóst hvað úr verður. Hver á að borga? DÝRAR RÁÐSTAFANIR Hugi Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.