Morgunblaðið - 17.12.2014, Side 30

Morgunblaðið - 17.12.2014, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 ✝ Magnús Þór-steinn Sigfús- son fæddist 10. des- ember 1933 í Hvammi í Þist- ilfirði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 7. des- ember 2014. Foreldrar hans voru Margrét Jens- ína Magnúsdóttir, f. 1904, d. 1979, og Sigfús Aðalsteinsson, f. 1902, d. 1971. Magnús var sjötti í röðinni af 14 systkinum. Þau eru: Sig- urbjörg Runólfsdóttir, f. 1921, d. 1995, sammæðra, Aðalsteinn Jón, f. 1926, d. 1936, Jóhanna, f. 1928, Haraldur, f. 1929, Sigríður Þóra, f. 1931, Björn Jóhann, f. 1935, Aðalsteinn Kristbjörn, f. 1937, Aðalbjörg Jóna, f. 1939, Hanna, f. 1940, Nanna, f. 1940, d. 2012, Sigurður, f. 1942, drengur, f. 1942, d. 1942, og Bára, f. 1944. Hinn 6. júní 1964 gekk Magn- ús að eiga eftirlifandi eiginkonu sína, Heiðu Sæbjörnsdóttur, f. 31. desember 1937, foreldrar hennar voru Sæbjörn Þór- arinsson, f. 1886, d. 1973, og Ásta Laufey Guðmundsdóttir, f. býlismaður hennar er Árni Már Kjartansson, f. 1978. Þau eiga þrjár dætur og einn son. c) Jó- hanna Ingigerður, f. 1982. Eig- inmaður hennar er Halldór Theodórsson, f. 1981. Þau eiga tvo syni og tvær dætur. d) Jóna Kristín, f. 1983. Eiginmaður hennar er Þorbjörn Björnsson, f. 1977. Þau eiga eina dóttur. e) Ari Viktor, f. 1989. f) Ásta Lauf- ey, f. 1991. g) Magnús Jens, f. 1994. 3) Rafn, f. 2. febrúar 1959. Sambýliskona Rafns er Hrönn Hilmarsdóttir, f. 29. desember 1964. Rafn á fjögur börn af fyrra hjónabandi. a) Yngvi Jón, f. 1978. Eiginkona hans er Sigrún Sigurðardóttir, f. 1980. Þau eiga eina dóttur. b) Heiða, f. 1980. Sambýlismaður hennar er Bald- ur Fannar Halldórsson, f. 1979. Þau eiga eina dóttur og tvo syni. c) Rafn, f. 1982. Sambýliskona hans er Sigríður Maggý Árna- dóttir, f. 1983. Þau eiga einn dreng og eina stúlku. d) Árni Þór, f. 1986. Hrönn á eina dóttur og tvo syni af fyrra hjónabandi. 4) Unnar Ástbjörn, f. 7. febrúar 1975. Eiginkona hans er Petra Rós Ólafsdóttir, f. 3. apríl 1980. Börn þeirra eru: Ólafur Þór, f. 1998, Una Rós, f. 2002, Rakel Rós, f. 2008, og Birta Rós, f. 2014. Útför Magnúsar verður gerð frá Safnaðarheimilinu í Sand- gerði í dag, 17. desember 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 1905, d. 1973. Magnús og Heiða eiga fjögur börn, 19 barnabörn og 25 barnabarnabörn: 1) Magnús Sigfús, f. 4. janúar 1956. Eig- inkona hans er Kristjana Elísabet Guðmarsdóttir, f. 13. nóvember 1957. Börn þeirra eru a) Laufey Margrét, f. 1975. Sambýlismaður Laufeyjar er Sæmundur Sæmundsson, f. 1973. Eignuðust þau tvær dætur og þrjá syni. b) Magnús Heiðar, f. 1976. Eiginkona hans er Elva Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1981. Þau eiga tvo syni og eina dóttur. c) Helena Dögg, f. 1980. Eig- inmaður hennar er Haukur Þórðarson, f. 1978. Þau eiga tvær dætur og einn son. d) Har- aldur Sigfús, f. 1982. Sambýlis- kona hans er Margrét Ingþórs- dóttir, f. 1989. 2) Margrét Jensína, f. 29. mars 1957. Eig- inmaður hennar er Sigurjón Jónsson, f. 7. febrúar 1957. Börn þeirra eru: a) Heiðar Sig- urjónsson, f. 1976, b) Þórsteina Sigurjónsdóttir, f. 1979. Sam- Elsku pabbi minn, nú ertu far- inn og áttir eftir aðeins þrjá daga í 81 árs afmælið. Ég sit hér við skrifborðið og er að reyna að setja niður hugsanir mínar og rifja upp þær minningar sem ég ólst upp við og upplifði í návist minni við þig. Ávallt leit ég til reynslu þinnar og leiðbeiningar og reyndi að breyta eftir þeim. Það vildi svo til að við áttum svip- uð áhugamál í lífinu og leiðir okk- ar lágu mikið saman bæði í vinnu og leik. Þessar stundir kenndu mér oftar en ekki að líta á þig sem vin en ekki aðeins pabba og upp- alanda. Áhugi þinn á þjóðmálunum og hvernig þú fylgdist með um- ræðunni var alveg einstakt. Það var mér mikilvægt að geta komið til þín eftir fundi, þegar ég þurfti að fara yfir málin og ræða í þaula og þá þýddi ekkert að hafa ekki rök fyrir því sem maður var að halda fram. Þessara stunda á ég eftir að sakna mjög mikið. Eftir að þú fótbrotnaðir og fórst á sjúkrahúsið var mjög erf- itt að horfa á þig, þessa sterku persónu, verða svona mikið veik- an og hraka stöðugt. Ég áttaði mig á hvað þú varst staðfastur og sterkur síðustu stundirnar sem þú varst hér með- al okkar þegar baráttunni við veikindin lauk. Ég vil biðja Guð að varðveita þig og vernda, ég þakka mikið fyrir þann tíma sem ég hef átt með þér og ég veit að þú fylgist með okkur öllum áfram. Þinn einlægur sonur og vinur, Magnús Sigfús. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Takk fyrir allt, pabbi minn. Þinn Unnar Ástbjörn. Elsku Maddi minn, komið er að leiðarlokum. Þú hefur fengið hvíldina og orðinn engill eins og Rakel Rós segir. Ég man það svo vel þegar ég hitti ykkur hjónin fyrst á Norðurgötunni, þá sló hjartað svolítið ört í mér 17 ára gamalli stúlkunni. Unnar var bú- inn að vara mig við að ég yrði örugglega spurð út í hverra manna ég væri. Og ekki þótti þér nú leiðinlegt þegar þú komst að því að ég ætti ættir mínar að rekja til Kelduhverfis rétt handan við hornið á Hvammi. Þú opnaðir faðm þinn strax fyrir mér og hef- ur mér þótt mjög gott að eiga þig trausta manninn að. Alltaf hefur þú staðið þétt við bakið á okkur Unnari og krökkunum í öllu sem við höfum tekið okkur fyrir hend- ur. Þótt þér hafi nú stundum of- boðið sumar hugmyndirnar sem við höfum fengið og framkvæmt, þá studdir þú okkur samt. Þú varst mikill barnakarl og er miss- ir barnanna okkar mikill. Ólafur Þór átti mikinn vin í þér og voruð þið félagarnir bundnir órjúfan- legum böndum. Allt frá því að hann fæddist mynduðust einhver tengsl ykkar á milli og voruð þið alltaf eins og jafningjar þótt ald- ursmunurinn væri 61 ár. Oft rifj- um við upp söguna þegar þú tókst þér frí í vinnunni þegar Ólafur Þór var tæplega eins og hálfs árs til að passa hann í þrjá daga á meðan við Unnar fórum utan. Heiða hafði ekki hugmynd um þessi áform þegar Unnar hringdi og spurði hvenær við ættum að koma með dótið hans Óla. Enda kom henni það ekki við að þinni sögn þar sem þú værir að fara að passa, ekki hún. Þetta lýsir svolít- ið ykkar sambandi. Það hryggir okkur mikið að Birta Rós, sem er einungis fimm mánaða, fái ekki að kynnast þér betur. En við ætlum að halda nafninu þínu á lofti fyrir hana. Það lifnaði alltaf yfir þér að fá krakkana í heimsókn til þín á spítalann. Skein í gegn um augun þín hvað þér þótti vænt um að eiga alla þessa stóru fjölskyldu að. Við þökkum fyrir tímann sem við þó fengum með þér, yljum okkur við góðar og fallegar minn- ingar og höfum þá trú að þér líði betur á þeim stað sem þú ert á núna eftir erfiða síðustu mánuði. Takk fyrir tímann sem með þér áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð yfir kveðjuna hér, þinn orðstír mun lifa um ókomna daga, indælar minningar í hjarta okkar ber. (P.Ó.T.) Þín tengdadóttir, Petra Rós Ólafsdóttir. Það er með miklum söknuði, þakklæti og eftirsjá sem ég kveð nú nafna minn og afa, Magnús Sigfússon. Frá unga aldri gat ég alltaf leitað til þín og þú ræddir alltaf við mig sem jafningja. Þú sagðir mér ekki berum orðum hvað mér bæri að gera heldur leiddir mig inn á rétta braut. Þér tókst alltaf að gera það með þeim hætti að þegar ég fór frá þér fannst mér að ég hefði sjálfur komist hjálpar- laust að þessari niðurstöðu. Ég verð þér ávallt þakklátur fyrir að gefa þér tíma fyrir mig þegar ég leitaði eftir því. Ég á eftir að sakna þess að rökræða við þig um landsmálin og mismunandi hug- myndafræði um öll heimsins mál. Það var alltaf gaman, áhugavert og fræðandi að ræða þessi mál við þig. Ég kemst ekki hjá því að fyll- ast eftisjá nú þegar þú ert farinn. Eftirsjá að hafa ekki forgangs- raðað á annan hátt og nýtt betur tímann með þér eftir að þú veikt- ist. Ég veit að þú vildir aldrei láta hafa mikið fyrir þér og myndir ef- laust segja mér að hætta að hugsa svona, svo ég ætla að reyna það. Ég vona að að þú finnir tíma til að hafa auga með okkur, þó ekki væri nema til að tryggja að ég fari ekki að kjósa íhaldið. Magnús H. Magnússon. Þegar ég hugsa til baka um minningar okkar afa saman þá eru kærustu minningarnar þegar hann sagði ekki neitt. Heldur fékk hann mig sjálfan til að hugsa og leysa málin sjálfur. Afi var ekki málglaður en þeg- ar hann talaði þá hlustaði fólk. Málflutningur hans var yfirveg- aður og sannfærandi sem varð til þess að fólk treysti og tók mark á því sem hann sagði. Við sátum stundum saman tveir án þess að segja orð sem ég átti virkilega erfitt með að gera. Eitt sinn þegar ég var æstur í pólitískum umræðum tekur hann um höndina á mér og segir með sinni rólegu yfirveguðu röddu: „Halli, maður innbyrðir miklu meira af upplýsingum ef maður hlustar en þegar maður talar“ og það þurfti ekki að ræða það frek- ar. Þegar ég hugsa til baka um all- ar þær stundir sem við áttum saman þá voru þær flestar í hópi fólks. Þess vegna voru þær stundir sem við eyddum tveir saman enn dýrmætari. Það var mikil sam- keppni um athygli hjá afa en ég hafði þó alltaf tenginguna hans við Hvamm. Við afi keyrðum ófá- ar ferðirnar norður í Hvamm þar sem ég eyddi öllum mínum sumr- um frá því að ég var fimm ára þangað til 13 ára og í flestum ferðum var lítið sem ekkert talað en kóngamolinn var aldrei langt undan. Samband okkar og sú tenging sem við höfðum í gegnum nafna minn í Hvammi, bróður hans afa, er það verðmætasta sem ég á. Á eldri árum hefur afi reynst mér mjög vel og eina setningu, sem hann sagði við mig, þarf ég reglulega að segja við sjálfan mig þegar ég er að rökræða við fólk. „Halli, þú þarft ekki alltaf að segja fólki að það sé vitlaust, það er oft nóg bara að vita það og vara sig á því.“ Ef það er eitthvað sem hann hefur fært mér þá er það að læra að meta mikilvægi þagnarinnar. Man ég munað slíkan, er morgunn rann með daglegt stress, að ljúfur drengur lagði á sig lítið ferðalag til þess að koma í holu hlýja, höfgum pabba sínum hjá. Kúra sig í kotið hálsa kærleiksorðin þurfti fá. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Elsku afi Maddi, ég mun sakna þín mikið en þetta erindi úr lagi Vilhjálms lýsir okkar sambandi best. Haraldur Sigfús Magnússon. Elsku afi. Það er skrítið að vera að skrifa minningarorð eða huga að jarðarför á þessum tíma þar sem við erum vön að vera í jóla/afmælisboðinu þínu. Í huga okkar varstu alltaf flott- asti afinn í heiminum. Við gátum alltaf leitað til þín ef eitthvað var að og hjálpsemina vantaði ekki. Þú varst alltaf tilbúinn til þess að mæta með hamarinn ef eitthvað þurfti að smíða, laga eða bæta. Þú komst ávallt fram við okkur sem jafningja og það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu. Margar minningar eigum við um þig og við gætum eflaust skrifað endalaust en ofarlega í huga okk- ar er þegar þú ætlaðir að gefa nafna þínum súkkulaði, þá ekki nema þriggja mánaða gömlum. Mamma hans brást illa við og svarið sem þú gafst var: „Á hverju á blessað barnið að lifa, ef það má ekki fá súkkulaði?“ Öll barnabörnin vissu hvar gotteríið var að finna þegar komið var í heimsókn til ykkar á Norðurgöt- una. Þetta er búið að vera erfiður tími að horfa á þig fara í gegnum þessi veikindi og þú ert núna orð- inn engill sem mun vaka yfir okk- ur og halda áfram að passa okkur öll. Við biðjum Guð að hjálpa fjöl- skyldunni í gegnum þessa erfiðu tíma og þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með þér kæri afi. Þín afabörn Laufey Margrét, Magnús Heiðar, Helena Dögg og Haraldur Sigfús. Magnús Þórsteinn Sigfússon HINSTA KVEÐJA Afi, þú varst yndisleg manneskja. Þú varst besti afi í alla staði. Þú varst allt- af til staðar fyrir mig. Það var alltaf gaman að hitta þig. Minning þín lifir enda- laust í hjarta mínu. Það ættu allir að eiga svona afa eins og þig. Þinn Ólafur Þór. ✝ Guðlaug BáraÞráinsdóttir fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1945. Hún lést 7. desem- ber 2014. Foreldrar hennar voru Guð- rún Bárðardóttir húsmóðir, f. 13. jan- úar 1924 á Hellis- sandi, d. 22. febr- úar 2010, og Þráinn Agnarsson bif- reiðastjóri, f. 10. apríl 1922 á Blönduósi, d. 12. nóvember 2013. Bróðir Guðlaugar Báru er Óskar Þór Þráinsson bifreiða- smiður, f. 17. október 1947, kona hans er Anna Guðmunds- dóttir. Guðlaug Bára giftist 1968 Árna V. Sigurðssyni múrara, f. 8. október 1945. Þau byrjuðu búskap í Hafnarfirði, fluttu til Ólafsvíkur og þaðan á Selfoss. Guðlaug Bára og Árni slitu sam- vistir. Dóttir þeirra er Guðrún Árný Árnadóttir, f. 7. febrúar 1969, versl- unarmaður, gift Jens Jóhannssyni, börn þeirra eru Ásthildur Bára, f. 18. desember 1993, Árni Björn, f. 23. apríl 2012, og Gunnar Alex, f. 16. september 2008. Guðlaug Bára flutti árið 1985 til Reykjavíkur ásamt Guð- rúnu Árnýju dóttur sinni og starfaði við verslunar- og fram- reiðslustörf meðan heilsan leyfði. Síðustu æviárin bjó Guð- laug Bára á Sjálfsbjargarheim- ilinu, Hátúni 12 í Reykjavík. Útför Guðlaugar Báru fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 17. desember 2014, kl. 13. Í dag kveðjum við hana Báru frænku mína. Margar minningar leita á hugann, enda mikill sam- gangur alla tíð. Bára og Árný fluttu frá Selfossi í bæinn þegar ég var á unglingsaldri, skömmu seinna fluttu þær í Leiru- bakkann, í næstu blokk við okk- ur. Þá sótti ég mikið í að fara í heimsókn til þeirra enda alltaf vel tekið á móti manni. Um tíma taldi nágranni þeirra að ég væri dóttir Báru. Það var líka mikið sam- neyti milli hennar og mömmu og pabba. Þau fóru í margar utan- landsferðirnar saman sem Bára hafði sérstaklega gaman af, fjöl- skylduferðir til Þýskalands, Hol- lands og borgarferðir til Skot- lands og Írlands svo eitthvað sé nefnt. Bára hafði gaman af því að kíkja aðeins út fyrir bæinn og sérstaklega hafði hún gaman af því að komast í berjamó. Bára aðstoðaði mig við að fá vinnu á Pizza Hut og þar unnum við saman í nokkur ár. Það var gott að vinna með henni Báru, hún var dugnaðarforkur og vildi hafa allt í góðu skipulagi í kring- um sig. Bára var alltaf ljúf og góð við okkur systkinin, og þær Árný voru alltaf sem viðbót við okkar fjölskyldu enda sagðist Árný eiga systur í Reykjavík þegar hún bjó úti á landi. Það var stutt í húm- orinn hjá henni Báru og hún sá oft spaugilegar hliðar á mannlíf- inu. Fjölskyldan skipti hana miklu máli og síðustu ár, þegar heilsunni hrakaði, naut hún góðs af því hversu vel Árný hugsaði um hana. Minningin um góða og hlýja konu lifir. Guðrún Óskarsdóttir. Guðlaug Bára Þráinsdóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR frá Reykjum í Fnjóskadal, lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 4. desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 18. desember kl. 13.30. Guðmundur Hafsteinsson, Karítas Erla Jóhannesdóttir, Sólrún Hafsteinsdóttir, Sigurður B. Jónsson, Lára Hafsteinsdóttir, Fjölnir Sigurjónsson, Gunnar M. Guðmundsson, Erna H. Gunnarsdóttir, Þóra K. Guðmundsdóttir, Magnús Hallur Sævarsson, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN LEÓ JÓNSSON, Látraseli 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Sigríður Guðmunda Jónsdóttir, Jóhanna Eysteinsdóttir, Pétur Steinn Sigurðsson, Jón Björn Eysteinsson, Margrét Káradóttir, Sigrún Eysteinsdóttir, Hlynur Geir Guðmundsson, Sigríður Eysteinsdóttir, Sigurður Gunnar Markússon, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.