Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 34

Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Anna Birna Jensdóttir er hjúkrunarforstjóri í Sóltúni og það hef-ur verið nóg um að vera þar á aðventunni. „Það er mikið aðgera á stórum bæjum. Það hefur verið mikil aðventudagskrá á hjúkrunarheimilinu, við héldum jólahlaðborð fyrir heimilisfólkið en 92 manns búa hér. Gestirnir voru 72 auk starfsfólksins svo hér var mikið umleikis. Við héldum þrjú hlaðborð á þremur dögum svo þetta raðaðist þægilega niður. Hlaðborðið tókst vel til og var mjög hátíð- legt, fluttar voru jólahugvekjur og söngatriði og fólk naut hlaðborðs- ins. Svona hlutir gera mikið fyrir fólk sem er lasburða, háð öðrum og kemst ekki mikið á veitingastaðina. Á aðventunni koma kórar í heim- sókn til okkar í Sóltúni og jólabasar er haldinn, svo er horft á jóla- myndir sem dreifa huganum og fólk finnur vel fyrir aðventutilfinn- ingunni hérna. Svo les starfsfólkið upp úr jólabókunum.“ Eiginmaður Önnu Birnu er Stefán Svanberg Gunnarsson, tækni- fræðingur hjá O. Johnson & Kaaber. Synir þeirra eru Gunnar Páll, Samúel Orri og Stefán Birnir. „Það verður gestkvæmt hjá okkur um jólin, Stefán Birnir, sem býr erlendis, verður hjá okkur og bróðir mannsins míns kemur frá Finnlandi með sinni konu. Maður er alltaf að gera eitthvert smotterí til að undirbúa jólin, ég var að skella í mar- engstoppa, en þess utan er ég dugleg að fara á skíði, það er vetrar- sportið. Við hjónin vorum á gönguskíðum á sunnudaginn í Heiðmörk og en það er alltaf gott að koma þangað og stutt að fara.“ Anna Birna Jensdóttir er 56 ára í dag Frá Hjúkrunarþingi 2014 Anna Birna að halda ræðu en yfirskrift þingsins var: „Er pláss fyrir tengdó heima hjá þér?“. Mikið að gera á stórum bæjum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Komdu við og kynntu þér samskiptatæki sem hjálpar þér að heyra betur á mannamótum. Betri samskipti með bættri heyrn Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Einfalt samskiptatæki með 15% afslætti til áramóta Verð með afslætti 49.980 kr. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Kópavogi Arnar Páll Aðalsteinsson fæddist 20. janúar 2014 kl. 17.26. Hann vó 3.500 g og var 51,5 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Sandra Andra- dóttir og Aðalsteinn Guðmundsson. Nýir borgarar Garði Heimir Aron Ragnarsson fædd- ist 29. janúar 2014 kl. 00.45. Hann vó 3.420 g og var 51,5 cm langur. For- eldrar hans eru Ragnar Þór og Erla Ósk. E rla Sigurðardóttir fæddist á Húsavík 17.12. 1964, hún ólst upp á Ystafelli. Hún var fyrst í skóla í Ljós- vetningabúð þar sem foreldrar henn- ar voru einu kennararnir, síðan í heimavist í Stórutjarnaskóla, lauk stúdentsprófi frá MA 1984, BSc-prófi í hótel- og veitingarekstri og ferða- málafræði við University of Wiscons- in, STOUT, í Bandaríkjunum 1990, prófi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1992 og lauk diplomaprófi í op- inberri stjórnsýslu í fjarnámi við HÍ 2005. Starfsferillinn Erla kenndi við Oddeyrarskóla á Akureyri veturinn 1984-85, vann við rannsóknir á Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins á Akureyri næsta ár, sinnti sumarstörfum við Hótel Reynihlíð á árunum 1983-88 og við Hótel KEA sumrin 1989, 1990 og 1992 og var auk þess sölustjóri á Hótel Sögu 1990-91, hafði umsjón með námskeiði í svæðisleiðsögn á Norðurlandi eystra 1990-92, var deildarstjóri ferðamáladeildar Framhaldsskólans á Laugum 1992- 96 og aðstoðarskólameistari þar frá 1993, aðstoðarhótelstjóri Hótels Húsavíkur 1996-98 og var menning- ar- og fræðslufulltrúi Húsavíkur- bæjar (síðar Norðurþings) 1998- 2008. Á árunum 2005-2007 var starf- semi sveitarfélagsins skipt í þrjú Erla Sigurðardóttir, fræðslu- og menningarfulltrúi – 50 ára Í eldhúskróknum Hér er fjölskyldan samankomin í eldhúsinu: Óskar Óli, Bragi, Hrund og afmælisbarnið, Erla. Með þingeyskan þrótt Erla á fyrsta ári Afmælisbarnið ásamt foreldrum, systkinum, afa og ömmu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.