Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
meginsvið og var Erla þá fram-
kvæmdastjóri Fjölskyldusviðs en
undir það heyrðu skólamál, menn-
ingarmál, íþrótta- og æskulýðsmál.
Erla var framkvæmdastjóri Hvala-
safnsins á Húsavík 2008-2010, verk-
efnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands frá ársbyrjun 2010 og er nú
aftur fræðslu- og menningarfulltrúi
Norðurþings frá því í ágúst 2013:
„Það segir kannski alla söguna um
þetta skemmtilega starf, og hvað
mér þykir vænt um það, að ég skuli
hafa snúið aftur.
Starfið er afar fjölbreytilegt en
felst helst í yfirumsjón og eftirliti
með rekstri á sviði fræðslu- og menn-
ingarmála, samhæfingu á þjónustu
stofnana og yfirumsjón við gerð fjár-
hagsáætlunar og annarra áætlana.“
Gengur, syndir og eldar mat
Erla er göngugarpur og hefur
gaman af að synda: „Skemmtilegast
finnst mér að fara í fjárrag með vina-
fólki mínu á Grænavatni í Mývatns-
sveit. Það hleður batteríin fyrir allan
veturinn.
Matur, matargerð og góð vín eru
nánast ástríða hjá mér. Ég er mikil
fjölskyldumanneskja og hef enda-
laust gaman af að taka á móti fólki og
gera vel við það í mat og drykk. Því
fleiri, því betra.
Ég er síprjónandi, mest úr ís-
lenskri ull, nota sjaldan uppskriftir
en fer eftir mínu höfði. Ljóðalær-
dómur, tónlist og söngur eru ómiss-
andi, við hjónin syngjum bæði í
Kirkjukór Húsavíkur. Það er ein-
staklega gefandi og skemmtilegur
félagsskapur.“
Fjölskylda
Eiginmaður Erlu er Óskar Óli
Jónsson, f. 19.11. 1954, aðstoðar-
maður byggingarfulltrúa Norður-
þings. Foreldrar hans: Jón Jónsson,
f. 3.1. 1923, d. 18.12. 2010, bóndi og
smiður í Grundargili í Reykjadal, og
Erla Kristjánsdóttir, f. 8.4. 1928, að-
stoðarmaður í eldhúsi við Fram-
haldsskólann á Laugum, búsett í
Grundargili í Reykjadal.
Börn Erlu og Óskars Óla eru
Hrund Óskarsdóttir, f. 19.5. 1999 og
Bragi Óskarsson, f. 7.8. 2001.
Systkini Erlu eru Jón Sigurðar-
son, f. 12.3. 1952, athafnamaður í
Reykjavík; Regína Sigurðardóttir, f.
2.10. 1953, skrifstofustjóri Heilbrigð-
isstofnunar Norðurlands á Húsavík;
Helga Sigurðardóttir, f. 11.12. 1954,
sérkennari við Brekkuskóla á Akur-
eyri; Bjarni Sigurðarson, f. 7.6. 1959,
d. 20.8. 1978.
Foreldrar Erlu voru Sigurður
Jónsson, f. 23.7. 1924, d. 13.3. 2003,
kennari, bóndi og hreppstjóri á Ysta-
felli í Kinn, og Kolbrún Bjarnadóttir,
f. 28.3. 1928, d. 17.10. 2013 kennari á
Ystafelli.
Úr frændgarði Erlu Sigurðardóttur
Erla
Sigurðardóttir
Hansína Hansdóttir Linnet
húsfr. á Lambastöðum,
af Linnetætt
Regína Þórðardóttir
leikkona í Rvík
Bjarni Bjarnason
læknir í Reykjavík
Kolbrún Bjarnadóttir
kennari á Ystafelli
Sigríður Einarsdóttir
húsfr. á Geitabergi
Bjarni Bjarnason
bóndi, kennari og hreppstj.
á Geitabergi í Svínadal
Árni Jónsson
prófastur og alþm.
á Skútustöðum
Hjálmar Jónsson
b. á Ljótsstöðum
í Laxárdal
Jónas Jónsson
búnaðarmálastj.
Kristbjörg Einarsdóttir
húsfr. á Þóroddsstað
Friðgeir T. Kristjánsson
b. á Þóroddsstað í Kinn
Sigfríður Helga
Friðgeirsdóttir
húsfr. á Ystafelli
Jón Sigurðsson
b. og rithöfundur á Ystafelli
Sigurður Jónsson
kennari og b. á Ystafelli
Kristbjörg Marteinsdóttir
húsfr. á Ystafelli (áður á
Mælifelli í Skagafirði) af
Reykjahlíðarætt og
Hraunkotsætt
Gunnar Árnason
sóknarpr. Í Kópavogi
Ingileif Oddný Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Þór Vilhjálmsson
fyrrv. dómari við
Mannréttindadómstól
Evrópu
Auður Eir Vilhjálmsdóttir
fyrrv. sóknarprestur
Ragnar H. Ragnars
söngstj. og skólastj. á Ísafirði
Torfi Hjálmarsson
b. á Halldórsstöðum í Laxárdal
Magnús Þ. Torfason
hæstaréttardómari
Hjálmar Ragnarsson
tónskáld
Sigurður Jónsson
b., alþm. og ráðherra á Ystafelli, af Skútustaðaætt
Böðvar
Bjarnason
prófastur á
Hrafnseyri
viðArnarfjörð
Þórður Bjarnason
kaupm. og endurskoðandi á Lambastöðum á Seltjarnarnesi
Ragnheiður Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
Jón Leifs
tónskáld
Bjarni Böðvarsson
hljómsveitarstjóri í Rvík
Ágúst Böðvarsson
forstöðum. Landmælinga Íslands
og textahöfundur dægurlaga
Gunnar Hrafn Ágústsson
byggingarverkfræðingur
Ragnar Bjarnason
dægurlagasöngvari
Lolli í Val, eins og hann var oft-ast kallaður, fæddist áReyðarfirði 17.12. 1917. For-
eldrar hans voru Sölvi Jónsson frá
Stóra-Grindli í Fljótum í Skagafirði,
síðast bóksali í Reykjavík, og Jónína
Gunnlaugsdóttir frá Kirkjubóli, hús-
freyja.
Lolli var ókvæntur og barnlaus og
yngstur átta systkina en þau voru í
aldursröð: Ragnheiður, Sóley, Elín,
Karl, Guðmundur, Jónmundur og
Kristín,
Þegar Lolli var á þriðja ári fluttu
foreldrar hans til Reykjavíkur og
bjuggu þar á Óðinsgötunni.
Lolli hóf íþróttaferil sinn í fim-
leikum í ÍR. Hann hóf að æfa knatt-
spyrnu með Val árið 1929 og sneri
sér svo fljótlega eingöngu að knatt-
pyrnunni. Þar átti hann glæsilegan
feril að baki þegar hann lagði skóna
á hilluna. Hann lék m.a. með svoköll-
uðu gullaldarliði Vals, varð sjö sinn-
um Íslandsmeistari með félaginu á
árunum 1930-54 og lék alls um 200
leiki með félaginu í meistaraflokki.
Þá lék hann 21 leik með Reykjavík-
urúrvalinu, sex fyrstu landsleiki Ís-
lands í knattspyrnu, var einn allra
skæðasti útherji hér á landi um ára-
bil og í hópi albestu knattspyrnu-
manna landsins á sinni keppnistíð.
Þó að Lolli héti Ellert var hann
lengst af kallaður Lolli í Val og lík-
lega eini knattspyrnumaðurinn sem
kenndur var við lið sitt. En meðan
hann var upp á sitt besta í boltanum
var hann oft kallaður „kötturinn“
sökum boltatækni og þess hve lið-
ugur hann var. Þar naut hann ekki
síst fimleikaiðkunarinnar hjá ÍR.
Eftir að Lolli hætti að leika með
meistaraflokki sinnti hann knatt-
spyrnuþjálfun víða um land við góð-
an orðstír. Hann þjálfaði m.a. í
Hafnarfirði, á Ísafirði, á Sauðár-
króki, í Neskaupstað, á Egils-
stöðum, í Vestmannaeyjum og á
fæðingarstað sínum, Reyðarfirði.
Lolli var alla tíð eindreginn stuðn-
ingsmaður Vals, fór á alla heimaleiki
liðsins í meistaraflokki karla en var
ekki síður mikill stuðningsmaður
kvennaliðsins og var vanur að
hringja í stelpurnar og stappa í þær
stálinu fyrir leiki.
Lolli lést 8.3. 2002.
Merkir Íslendingar
Ellert D.
Sölvason
95 ára
Inga Guðmundsdóttir
Unnur Ólafsdóttir
85 ára
Helga Pétursdóttir
Jónína S. Bergmann
Sigríður Hallb.
Kristjánsdóttir
Sveinn Georgsson
80 ára
Gerður Petra
Kristjánsdóttir
75 ára
Henryk Wasielewski
Össur Torfason
70 ára
Friðberg Emanúelsson
Ingibjörg Ágústsdóttir
Lilja Guðbjörnsdóttir
Ólafur Ólafsson
Vilhjálmur Eyþórsson
Þorsteinn Skaftason
60 ára
Ágúst Björn Ágústsson
Árni Þórðarson
Dóra Magnheiður
Valdimarsdóttir
Friðgeir Jónsson
Gréta Þorbjörg Jónsdóttir
Guðmundur Ragnar
Ragnarsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Hafdís Arnkelsdóttir
Kristín Jóna Vigfúsdóttir
Kristjana Einarsdóttir
Soffía Þorsteinsdóttir
50 ára
Anna Bára Gunnarsdóttir
Davíð Gestsson
Einar E. Jóhannesson
Guðbjörg Ólafsdóttir
Gunnar Þór Gunnarsson
Harpa Rúnarsdóttir
Ingibjörg Margrét
Víðisdóttir
Ingibjörg R. Gretarsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Jóhanna Katrín
Eggertsdóttir
Júlíus Björn Jóhannsson
Kristín Óskarsdóttir
Petrea Olsen
Richardsdóttir
Rúnar Þór Friðbjörnsson
Sigurður Kristinsson
Sigþóra Oddný
Baldursdóttir
Svandís Ásgeirsdóttir
Vilhjálmur Wiium
Þorgeir Adamsson
Þór Halldórsson
40 ára
Anna Margrét
Sigurðardóttir
Guðrún Ósk
Gunnarsdóttir
Gylfi Freyr Albertsson
Hrafnhildur
Sigurbjörnsdóttir
Ívar Bjarklind
Jón Magnús Guðjónsson
Lóa Birna Tryggvadóttir
Magnús Pétursson
Sigurbjörg Garðarsdóttir
Stefán Páll Ágústsson
Stefán Sveinn Jónsson
Þuríður Ágústa
Sigurðardóttir
30 ára
Bjarni Már Gauksson
Eggert Sólberg Jónsson
Elíná Anna Konráðsdóttir
Finna Pálmadóttir
Hermann Óli Ólafsson
Manh Dung Duong
Þórey H. Þorbergsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sonja ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett,
hefur lokið BA-prófi í inn-
anhússarkitektúr, MA-
prófi í vöruhönnun og MA-
prófi í innanhússhönnun.
Maki: Jökull Jóhannsson,
f. 1984, nemi í stærðfræði
við HÍ.
Foreldrar: Þóra Björk
Sigurþórsdóttir, f. 1962,
bókari, og Ragnar Kum-
mer, f. 1960, pípulagn-
ingamaður. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Sonja Björk
Ragnarsdóttir
30 ára Erna ólst upp á
Raufarhöfn, býr á Reyðar-
firði, stundar fjarnám í
sjúkraliðanámi og starfar
á leikskólanum Lyngholti
á Reyðarfirði.
Maki: Björgvin Jónsson,
f. 1979, starfsmaður hjá
Alcoa Fjarðaáli.
Foreldrar: Sigurveig
Björnsdóttir, f. 1950, hús-
freyja á Akureyri, og
Ragnar Tómasson, f.
1949, stýrimaður á Akur-
eyri.
Erna
Ragnarsdóttir
30 ára Gerður lauk MSc-
prófi í talmeinafræði,
starfaði á Reykjalundi og
opnar talmeinastofu
næsta haust.
Maki: Hrannar Sigurðs-
son, f. 1979, flugvirki og
spilmaður.
Börn: Frosti, f. 2011, og
Mýrún, f. 2014.
Foreldrar: Brynja Mar-
geirsdóttir, f. 1960, kenn-
ari, og Guðjón D. Jóns-
son, f. 1956, grafískur
hönnuður.
Gerður
Guðjónsdóttir
Þú hringir ekki
í miðil þegar
tölvukerfið hrynur
Hádegismóum 4, 110 Reykjavík | Sími 547 0000 | premis.is
• Traustur rekstur
tölvukerfa
• Örugg hýsing gagna
•Vandað
verkbókhaldskerfi
• Sérsniðnar
forritunarlausnir