Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 36

Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur þörf fyrir að kafa til botns í hlutunum. Listamenn þráast endalaust við list sína, líka þegar það er eins og að kreista blóð úr gulrót. 20. apríl - 20. maí  Naut Vertu á varðbergi gagnvart öllum til- raunum til þess að draga úr áhrifum þínum. Mundu að ekki er allt gull sem glóir. Láttu undan því þá munt þú koma meiru í verk. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Tískan hefur áhrif á framkou þína. Sumir munu hlýða á visku þína en aðrir eru bara að spyrja af gömlum vana og nenna varla að hlusta á svarið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu ekki fagurgala annarra villa þér sýn. Hjálpsemi er mikilvæg en gleymdu því ekki að þú ert það einnig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fullkomnunarárátta er streituvaldur. Settu markið hátt og farðu eftir því. Og þú kannt söguna á bak við söguna, sem reynist happadrjúgt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki láta hlutina koma þér úr jafn- vægi í vinnunni í dag. Hlýddu á ráð góðs vinar. Hver er sinnar gæfu smiður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú lætur um of reka á reiðanum í vinnunni. Mikil spenna er á heimilinu. Og þú þarfnast sífellt meiri þæginda en ættir að endurskoða þær þarfir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fylgdu hugboði þínu og komdu skipulagi á atvinnu- og einkalíf þitt. Best er að hafa allan fyrirvara á hlutunum og leyfa þeim að sanna sig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefðir gott af því að breyta til á einhvern hátt hvort sem er heima fyrir eða í vinnunni. Kannski verður þessi hrifning skammvinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Kannski þarftu að takast á við erfiða manneskju, kannski erfitt verkefni. Stattu fast á þínu, rökstyddu þitt mál og hlustaðu á það sem andstæðingurinn hefur fram að færa. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það þýðir lítið að stinga við fót- um þegar allt er á fleygiferð í kringum þig. Ef þú hefur það í huga mun þér ganga allt í haginn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vinnan þín krefst meiri hæfni og getu en þú telur þig búa yfir í dag. Gakktu þó ekki of langt. Rómantíkin gæti tengst einstaklingi frá öðru landi eða menning- arsvæði. Framsóknarmenn leggja nú áráðin um stórfelldan flutning ríkisfyrirtækja inn á skagfirska efnahagssvæðið,“ skrifaði Ágúst Marinósson á Leirinn, en raunar byrjaði þessi vísnalota með stöku Ólafs Stefánssonar: Mjög er víða matarþörfin, mátti landsbyggð þola grand, en Framsókn núna flytur störfin á færibandi út á land. Ágúst bætti síðan um betur með nafngiftinni „Nafli alheimsins“: Vel er mjög af Guði gjörður glæstur nafli landsins hér. „Skín við sólu Skagafjörður“ skást er fólki að búa hér. Hérna vantar varla mikið vel er fyrir okkur séð. KS leggur línustrikið lýður allur dansar með. Varla myndi nokkur neita og nöldra hátt með semingi. Ef lögum framsókn fengi að breyta og flytja norður Alþingi. Ármann Þorgrímsson sagði „Guð blessi Framsókn“ og síðan: Bráðum norður fyrir fjöll færa munum Austurvöll svo starfsemin sem er þar öll ekki sé í hættu í því styrkja okkur fleiri mættu. Sauðárkrókur sýnist mér sveita best á landi hér kaupfélagið kröftugt er sem krónur hefur nægar og þar stjórna öllu hetjur frægar. Ólafur Stefánsson hafði ekki sagt sitt síðasta orð: Jafnsléttuhugsjón bræðrabands bætir margskonar vanda, og Framsókn sýnir nú sveitum lands sannkristinn jólaanda. Hermann Jóhannesson blandaði sér í málið: Til framfara horfir víst flest sem hann vann foringinn okkar, hann Simbi. Mér gekk samt hálfilla að yrkja um hann því aldrei neitt heppilegt rímorð ég fann – Það eina sem passar er imbi! Það kvað við annan tón hjá Magnúsi Ólafssyni: Yrkja skulum hól um hann heldur í verk með trú og von. Sómadrengur, sitthvað kann Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Nafli landsins og skag- firska efnahagssvæðið Í klípu „EKKI TRUFLA HANN. HANN ER Í HRINGNUM SÍNUM – ÞÆGINDAHRINGNUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VEIÐIVÖRUVERSLUNIN HRINGDI. ÞÚ SKILDIR HATTINN ÞINN EFTIR VIÐ KASSANN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... hinn einstaki sársauki sem fylgir brostnu hjarta. FYRSTA SNJÓKORNIÐ! JESSSSS! ÞAÐ ER KOMINN TÍMI Á HEITT KAKÓ! ÉG VEIT AÐ SOÐINN FISKUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR... EN ÞÚ VERÐUR AÐ BÍÐA EFTIR MATNUM EINS OG ALLIR AÐRIR!! Bandarískar hópíþróttir eru meðtalsvert öðru sniði en víðast hvar annars staðar í heiminum. Þegar komið er í atvinnumennsku ríkir þar í raun sósíalismi. Liðin geta ekki fallið um deild, sama hvað þau eru léleg, og í þokkabót fá lélegustu liðin að velja bestu nýliðana í sérstöku nýliðavali. x x x Víkverja kom því skemmtilega áóvart þegar hann las grein í The New York Times á dögunum um að forkólfar í bandarískum íþróttum mættu taka sér fyrirkomulagið ann- ars staðar í heiminum til fyrir- myndar. Þar væru íþróttalið látin gjalda þess að vera léleg og þau lé- legustu féllu niður um deild. Blaðamaður benti á að um þessar mundir væru nokkur lið svo léleg í bandaríska körfuboltanum, NBA, að þau myndu ekki einu sinni spjara sig í háskólaboltanum þar í landi. x x x Nefndi hann sérstaklega hið sögu-fræga lið Fíladelfíu, sem marði sinn fyrsta sigur þegar blasti við að liðið myndi setja met fyrir flest töp í upphafi keppnistímabils í sögu deild- arinnar. Hann tíndi þó fleiri til. Þar má nefna New York Knicks, Boston Celtics og Los Angeles Lakers. Gall- inn er sá að þegar líður á tímabilið og ljóst er að liðin í neðri hluta deild- anna eru ekki líkleg til afreka fer að verða hagkvæmara fyrir þau að tapa heldur en vinna. Athygli vakti þegar Magic Johnson, sem á sínum tíma gerði garðinn frægan með Lakers, sagði að nú væri best að liðið sitt tap- aði sem flestum leikjum til að það hefði eitthvað upp úr krafsinu í næsta nýliðavali. x x x Blaðamaður The New York Timessagði að gætu liðin fallið kæmi þessi hugsunarháttur ekki til greina. Liðin yrðu að spila til sigurs. Fyrir vikið yrði ekkert minni spenna á toppinum heldur en botninum og mun skemmtilegra yrði að fylgjast með deildinni. Hann taldi hins vegar ólíklegt að eigendur liðanna tækju slíkt í mál því fjárfesting þeirra myndi hrapa í verði féllu liðin. víkverji@mbl.is Víkverji Guð gjörði tvö stóru ljósin: hið stærra ljósið til að ráða degi og hið minna ljósið til að ráða nóttu, svo og stjörn- urnar. (Fyrsta Mósebók 1:16)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.