Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Saga Sigursveins D. Krist-inssonar er án efa einnmerkasti kaflinn í menning-arsögu Íslendinga, enda var hann ekki bara liðtækur hljóðfæra- leikari og tónskáld, heldur var hann einn af helstu fræðurum landsins þegar tónlist er annars vegar, óþreyt- andi og ódrepandi í áhuga sínum. Þegar við það bætist svo að hann var at- kvæðamikill í verkalýðsbaráttu og baráttu fatl- aðra verður sagan hans enn for- vitnilegri, en öllu eru gerð góð skil í þessari afbragðs- bók sem Árni Björnsson tók saman. Árni rekur vel ættir Sigursveins og uppruna og leggur talsvert rými í að skýra okkur frá ættmennum Sigur- sveins og eins að lýsa staðháttum og aðstæðum og gefur þannig enn betri mynd af lífshlaupi Sigursveins en ella hefði orðið, þótt það lengi söguna eðli- lega nokkuð. Sigursveinn fæddist í Fljótum 24. apríl 1911. Hann átti hefðbundna æsku þeirra sem ólust upp í sveit að mestu á þessum tíma þar til hann veiktist af lömunarveiki þrettán ára og þótt hann hafi náð afli í efri hluta líkamans náði hann aldrei fullum styrk í fæturna og var bundinn við hjólastól þaðan í frá. Þetta eru grimmileg örlög fyrir ungan pilt, en var lán fyrir íslenska menningu að vissu leyti, því Sigursveinn tók að fást við hljóðfæraleik þar sem hann lá veikur. Hann hafði reyndar lært dá- lítið í tónlist og engum duldist að hann hafði hæfileika, en óvíst að tón- list hefði orðið eins snar þáttur í lífi hans og raun bar vitni. Ekki var þó bara að Sigursveinn væri með tónlist- argáfu, heldur var hann hagur á tré og hugvitssamur, kennir sjálfum sér dönsku, norsku, ensku og þýsku og nóga bókfærslu til að halda bókhald fyrir fyrirtæki, aukinheldur sem hann stofnar og stjórnar kór og tekur þátt í verkalýðsbaráttu – er sann- færður sósíalisti og þjóðernissinni í bestu merkingu þess orðs. Þegar Ríkisútvarpið hóf útsend- ingar sínar töldu margir að nú gæfist færi á að uppfræða almenning al- mennilega og kenna að meta æðri tónlist sem sá stað í lagavali og áherslu á æðri tónlist – þegar hlust- endur vildu meiri harmonikkutónlist brugðust menn við með aukinni áherslu á sinfónísk verk. Sigursveinn vildi líka uppfræða almenning og meðal annars auka mjög heimaspila- mennsku fólks, hann taldi að það ætti að vera jafneðlilegt að læra að spila á hljóðfæri og að læra að lesa og í merkilegum drögum að menningar- ályktun sem birt er í bókinni ræðir hann meðal annars um nauðsyn við- spyrnu þegar borgarastéttin „opnar allar gáttir fyrir skrílmenningar áróðri bandaríkjaauðvaldsins með kvikmyndasorpi, úrkynjuðu prent- og myndmáli og sljóvgandi iðnaðar- músík“. Það var hiti í mönnum á þess- um tíma. Það skín í gegn þegar fjallað er um stjórnmálaskoðanir Sigursveins að Árni er ekki langt frá honum í skoð- unum, sem er vel, hann skilur þá bet- ur hitann sem brann innra með þeim sem varð vitni að fátækt og erfið- leikum sem blöstu við alþýðu manna um miðja síðustu öld. Árni dregur líka vel fram að verkalýðsbarátta þess tíma var oft líka friðarbarátta og oftar en ekki barátta gegn veru bandaríska hersins hér á landi. Sigursveinn sótti sér tónlistar- menntun suður í Reykjavík og síðar til Berlínar, en er þá ráðinn til Siglu- fjarðar. Þá birtist enn sú skoðun hans að tónlistarnám eigi að vera jafn- sjálfsagt og að læra að lesa og skrifa og eins og Árni rekur söguna: „Stefna Sigursveins var skýrt andsvar gagn- vart því viðhorfi sem lengstum hafði ríkt að hlutverk tónlistarskóla væri einkum að leita uppi og fullmennta úrvalsnemendur sem þegar höfðu sýnt ótvíræða hæfileika.“ Þessi hugs- un birtist líka í nafni þess skóla sem helst hefur haldið nafni hans á lofti, Tónskóla Sigursveins, eins og hann lýsti því í viðtali við Ingu Huld Há- konardóttur 1968: „[Tónskólinn] er ekki fagskóli þar sem allt miðast fyrst og fremst við að ala upp fagmenn og „virtúósa“, heldur er hér stefnt að því að kenna fólki, bæði börnum og full- orðnum, að umgangast tónlist eðli- lega, án fordóma eða minnimáttar- kenndar, þannig að tónlistin geti orðið raunverulegur þáttur í lífi þess.“ Þótt Sigursveinn sé helst þekktur sem frömuður á sviði tónmenntar þjóðarinnar og eins sem tónskáld og lagasmiður, þá er einna forvitnileg- asti hluti bókarinnar sá sem segir frá því er hann stofnaði Sjálfsbjörg – fé- lag fatlaðra á Siglufirði, sem varð síð- an að landsfélagi. Í því birtist líka sterkt hve Sigursveinn var sjálf- stæður í hugsun og ákveðinn, hann lét fötlun sína ekki hamla sér í þeim verkum sem hann vildi vinna, þótt hún hafi eðlilega gert honum erfitt fyrir. Stofnun Sjálfsbjargar var við- leitni fatlaðra „til að berjast fyrir eig- in réttindum í stað þess að þurfa ein- ungis að reiða sig á hjálpsemi annarra“, eins og Árni orðar það í bókinni. Þetta er býsna mikil saga, enda frá miklu að segja. Árni er nákvæmur söguritari og vandaður, en textinn er þurr á köflum þegar koma þarf að miklu af staðreyndum og nöfnum. Viðaukar í bókinni auka mjög nota- gildi hennar, þótt sumt sem þar birt- ist sé kannski óþarfi. Óþreytandi og ódrepandi fræðari Ævisaga Sigursveinn – Baráttuglaður braut- ryðjandi – bbbbm Ævisaga Sigursveins D. Kristinssonar eftir Árna Björnsson. Hið íslenska bókmenntafélag, 2014. 176 bls. með nafnaskrá og viðaukum. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Morgunblaðið/Einar Falur Baráttumaðurinn Sigursveinn syngur baráttuljóð í jafnréttisgöngu fatl- aðra árið 1978. Hrafn Sæmundsson ekur frænda sínum. Höfundurinn „Saga Sigursveins D. Kristjánssonar er án efa einn merkasti kaflinn í menningarsögu Íslendinga,“ segir rýnir. Eru henni „gerð góð skil í þessari afbragðsbók sem Árni Björnsson tók saman“. Veraldarsaga mín, minn-ingabók Péturs Gunn-arssonar, ber undirtitilinnÆvisaga hugmynda, enda segir hann frá mótunarskeiði í lífi sínu, árunum frá því hann lýkur stúdentsprófi og til þess að fyrsta bók hans kemur út og hann breytist í smáborgara – eignast barn, kaupir stereógræjur, þvottavél og Volkswagen-bjöllu. Frásögnin hefst þar sem Pétur veltir því fyrir sér að fara til Tékkó- slóvakíu til náms, en fyrir ýmsar sakir, aðallega þó innrás Sovét- manna og Varsjárbandalags þeirra inn í Tékkóslóvakíu, ákveður Pétur að fara til Frakklands, hóf nám í París 1968. Tilgangurinn með dvölinni ytra var ekki beinlínis að stunda nám, heldur vildi Pétur fá útrás fyrir rit- höfundarköllunina. Hann ætlaði að skrifa skáld- sögu en „í pennann leit- uðu ljóð“ og hluti af verald- arsögunni er frásögn af hans fyrstu bók, ljóðabók sem hét fyrst Und- an miðjum himni, þá Möguleikar og veruleikar og loks Splunkunýr dagur sem kom út hjá Máli og menningu 1973 fyrir tilstilli Sigfúsar Daðasonar. Nokkur ljóð úr bókinni birtir Pétur í verald- arsögunni á þeim slóðum í tíma og rúmi sem viðkomandi ljóð urðu til. Pétur var ekki lengi í París, því leiðin lá til Aix-en-Provence og þar dvöldu þau Hrafnhildur Ragnars- dóttir unnusta hans og síðan eigin- kona næstu árin. Til að geta dvalist þar ytra og skrifað skráði Pétur sig í heim- spekinám. Undirtitill bókarinnar er Ævisaga hugmynda og hún er ein- mitt ævisaga hugmynda Péturs um heiminn eftir því sem hann kynnir sér hugmyndir annarra, hrífst af þeim eða hafnar. Meðal skemmtileg- ustu hluta frásagnarinnar er einmitt þegar hann rekur fyrir okkur glím- una við heimspekisöguna. Rithöf- Inn í ljós frásagnarinnar Hugmyndaævisaga Veraldarsaga mín bbbbn Eftir Pétur Gunnarsson. JPV gefur út. 166 bls., innb. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Hvaleyrarbraut 33 • 220 Hafnarfirði • Sími 564 1925 • skorehf.is • Skor ehf - Heildverslun SkorEHF HEILDVERSLUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.