Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 39

Morgunblaðið - 17.12.2014, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Söngkonan Kristjana Arngríms- dóttir sendi fyrir skömmu frá sér jólaplötuna Stjarnanna fjöld sem hefur að geyma tíu sígild jólalög og eitt frumsamið, titillag plötunnar sem Kristjana samdi og þá bæði lag og texta. Kristjana heldur tvenna tónleika fyrir jól, þá fyrri í kvöld í Fríkirkjunni í Reykjavík og þá seinni á föstudaginn í Dalvíkurkirkju og hefjast hvor- ir tveggja kl. 20.30. Kristjana fæddist á Dalvík og hefur komið víða við í tónlist hvað stíla og stefn- ur snertir, hefur sungið allt fá þjóðlögum og vísnalögum til tangóa og dægurlaga og haldið fjölda tón- leika. „Ég kom fyrst fram með Tjarnarkvartettinum, var ein af fjórum í þeim kvartett sem starfaði í fjöldamörg ár. Árið 2000 hóf ég sólóferil og gaf út fyrsta diskinn minn, Þvílík er ástin, sem er ball- öðudiskur. Árið 2005 gerði ég líka disk, Í húminu heitir hann og 2011 kom ég svo með tangódisk, Tangó fyrir lífið, og núna er kominn út jóladiskur,“ segir Kristjana, beðin um að rekja í stuttu máli feril sinn. Ætlaði að senda titillagið í jólalagakeppni Rásar 2 – Hvers vegna ákvaðstu að gefa út jóladisk? „Ég held það hafi bara verið pressa frá vinum og kunningjum að fara að gera þetta, kominn tími til. Ég gerði jólalag sem ég ætlaði að senda í jólalagakeppni Rásar 2 en var svolítið sein og ekki alveg tilbú- in með það. Þá hugsaði ég með mér: Ja, ég geri bara disk og þetta verður titillagið,“ segir Kristjana kímin. Spurð hvers konar jóladiskur Stjarnanna fjöld sé segir Kristjana að hann sé hátíðlegur með klass- ískum útsetningum, m.a. leikið á horn og strengja- og ásláttar- hljóðfæri. „Örn Eldjárn, sonur minn og gítarleikari, útsetur öll lögin. Þetta eru klassísk jólalög, ís- lensk og erlend og eitt frumsamið,“ segir Kristjana. „Hann er hátíðleg- ur, ég held að þessi diskur muni lifa,“ segir Kristjana kímin og bæt- ir við að dóttir hennar, Ösp Eld- járn, syngi með henni í nokkrum lögum en Ösp er í hljómsveitinni Brother Grass. „Ég er heppin að eiga þessi börn, ég er rík,“ segir Kristjana um Örn og Ösp. Malt, appelsín og negulnaglar Fyrri tökur á diskinum fóru fram í Dalvíkurkirkju í júlí sl. og segir Kristjana að það hafi verið dálítið erfitt að komast í jólaskap um hásumar. „Við keyptum bara malt og appelsín og negulnagla, tróðum þeim í appelsínurnar og upp gaus þessi jólailmur,“ segir hún og hlær. Þannig hafi allir kom- ist í jólaskap. Seinni tökur á disk- inum fóru svo fram í haust og stýrði Þráinn Óskarsson upptökum en hann er vinur Arnar, sonar Kristjönu. Auk Arnar leika á diskinum Ella Vala Ármannsdóttir á horn, Lára Sóley Jóhannsdóttir á fiðlu, Daníel Þorsteinsson á harmonikku og org- el, Petrea Óskarsdóttir á flautu, Ásdís Arnardóttir á selló, Jón Rafnsson á kontrabassa, Páll Barna Szabo á fagott og slagverks- leikararnir Frank Aarnink og Magnús Trygvason Eliassen. Jólailmur í júlí  Kristjana Arngrímsdóttir söngkona fagnar útgáfu jóla- plötu sinnar, Stjarnanna fjöld, með tvennum tónleikum Jólatónleikar Kristjana Arngrímsdóttir flytur ellefu jólalög á nýútkomnum jóladiski sínum og heldur útgáfutónleika í kvöld og á föstudaginn, 19. des. Samband danskra myndlistarmanna hefur sent íslenskum alþingis- mönnum áskorun þess efnis að hætt verði við frekari niðurskurð á mynd- listarsjóði og framlög ríkisins þess í stað tvöfölduð. „Samkvæmt fyr- irliggjandi fjárlagafrumvarpi er að- eins gert ráð fyrir að myndlist- arsjóður fái 25 milljónir, sem er 20 milljónum lægra framlag en á árinu 2013,“ segir m.s. í yfirlýsingu sam- bandsins sem send hefur verið fjöl- miðlum. Tekið er fram að málsmetandi fólk innan íslenska myndlistargeir- ans hafi bent á að fyrri niðurskurður á framlögum til sjóðsins hafi þegar haft neikvæð áhrif á erfitt starfsum- hverfi sjónlistar hérlendis. Bent er á að þrátt fyrir fögur fyrirheit yf- irvalda um skilning á erfiðri stöðu sjónlistar og ráðamenn viðurkenni að myndlistin hafi farið vert út en aðrar listgreinar úr niðurskurði standi til að skera enn meira niður. „Við skorum því á alþingismenn að breyta stefnunni og hækka fram- lagið til myndlistarsjóðsins. Til að bæta fyrir niðurskurðinn árið 2013 þyrfti framlagið á árinu 2015 að hækka um 25 milljónir og nema alls 50 milljónum.“ Danskir myndlistarmenn skora á íslenska þingmenn undurinn sem vill lýsa en ekki endi- lega skilja skín í gegn í þeirri hugmyndaævisögu því hann hefur jafnan meiri áhuga á heimspek- ingnum sjálfum, lífi hans og örlög- um, en því sem hann lagði til fræð- anna. Gott dæmi um þetta er það er röðin kemur að Karli Marx, sem kemur Pétri óneitanlega nokkuð á óvart eftir kaldastríðsuppeldi á Ís- landi: „Ég ætlaði ekki að trúa eigin augum: að Karl Marx gæti komið fyrir í skólabók!“ Hann kann greini- lega vel að meta Marx á þeim tíma og kannski enn, nefnir þau kynni sem eitt af því sem hvað mest áhrif hafi haft á hann; skipar með bíó, hestum, kynhvöt, Halldóri Laxness, Bítlunum og ástinni. Hann hrífst þó ekki bara af greiningu Marx á auð- magni og kenningum um firringu vinnunnar, heldur verður ævi Marx fyrir honum eins konar heilagramannasaga: „Eins og venju- lega var það sagan á bak við sem fangaði mig,“ – saga af manni sem lagður var í lágan stall, en brýst þó áfram á hugsjón sinni og sannfær- ingu og verður einn mesti örlaga- valdur síðustu aldar, þó ekki yrði hann lausnarinn heimsins. Sumarið 1971 ákveða þau Hrafn- hildur að snúa ekki heim til Íslands í sumarfríinu, heldur eyða sumar- fríinu í puttaferðalag með tjald um Suður-Evrópu: „Við ætluðum að finna rólegan reit sunnan við sólu og austan við mána, tjalda og lesa,“ segir Pétur og leiðin lá yfir til Ítalíu og þaðan til Grikklands þar til þau staðnæmast í þorpinu Agios Georgios Nileias í hlíðum Pelion- fjalls og láta þar fyrirberast um hríð. Frásögnin af lífinu þar er skemmtileg lesning, svipmynd frá heimi sem er vísast horfinn, en hún byggist á gömlum bréfum hans til fjölskyldunnar heima á Íslandi sem hann birtir brot úr. Smám saman missir Pétur áhuga á heimspekinni, finnst sem það hafi skollið á svo þykk þoka í fræðunum að stinga hefði mátt í hana staf, eins og hann orðar það. Ég nefndi áðan þá helstu áhrifavalda í lífi Péturs sem hann telur upp í bókinni og þakkar umpólanir sínar, „[þ]essar umpólanir sem marka skil og breyta manni“. Í lokin má bæta við einni slíkri umpólun er hann kemst í þekktustu skáldsögu töfraraunsæis- ins: „Það var eins og að sogast inn í ljóshol. Úr þokum heilaspunans inn í ljós frásagnarinnar.“ Morgunblaðið/Golli Hugmyndaævisaga Í Veraldarsögu sinni segir Pétur Gunnarsson m.a. frá námsárum sínum í Frakklandi. Árin segja sitt1979-2014 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sýnum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. )553 1620 Verið velkominn Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00 Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins! Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Þri 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k. Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k. Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k. Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 27/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Nýjar aukasýningar komnar í sölu! Beint í æð (Stóra sviðið) Fös 19/12 kl. 20:00 aukas. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. ATH janúar sýningar komnar í sölu! Bláskjár (Litla sviðið) Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00 Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi Jesús litli (Litla sviðið) Sun 28/12 kl. 18:00 aukas. Sun 28/12 kl. 20:00 Mán 29/12 kl. 20:00 Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun! Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið) Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 14:00 Lau 20/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00 aukas. Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.