Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Veðrið á vefmyndavélum 2. Skýldi óléttri vinkonu á kaffihúsinu 3. Allar leiðir út úr borginni lokaðar 4. „Veðrið er enn að versna“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Brimbrettarokksveitin Brim verður í hátíðarskapi um jólin, leikur á jóla- balli Húrra við Tryggvagötu annan í jólum og mun hita sig upp fyrir ballið með tónleikum á Kex hosteli á laug- ardaginn, 20. desember. Eftir áramót heldur Brim til Iowa í Bandaríkjunum og leikur á beikonhátíð í lok janúar. Brimbrettarokk á jól- um og í Iowa í janúar  Söngkonan Sigríður Thorlacius og söngvarinn Sigurður Guðmundsson halda tvenna tónleika í dag í Eldborg- arsal Hörpu, kl. 18 og 21, ásamt hljómsveit. Jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði verða í forgrunni og einn- ig flutt jólalög úr ólíkum áttum. Jólatónleikatvenna Siggu og Sigga Ljósmynd/Baldur Kristjánsson  Una Sveinbjarn- ardóttir fiðluleik- ari heldur upp á útgáfu hljómplötu sinnar Umleikis með tónleikum í menningarhúsinu Mengi, Óðinsgötu 2, í dag kl. 17. Á plötunni eru tíu lög fyrir einleiksfiðlu og var hún tekin upp í Ísafjarðar- kirkju í júlí árið 2012. Una fagnar útgáfu Umleikis í Mengi Á fimmtudag Norðaustan 8-15 og snjókoma með köflum á Vest- fjörðum, annars hægari breytileg átt og úrkomulítið, en él með suður- og austurströndinni. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi suðvestanátt, 8-13 m/s síðdegis og áfram él sunnan- og vestantil á landinu. Frost 0 til 7 stig, kald- ast norðaustantil. VEÐUR „Ég varði þrjú víti í leik í yngri flokkunum fyrir mörgum ár- um. Ég var í áttunda vítinu. Verst að ná því ekki og jafna metið hans Sebastians,“ sagði Lárus Helgi Ólafsson, mark- vörður HK, sem í fyrrakvöld varði sjö af átta vítaköstum í leik við FH í Olís-deildinni í handknattleik. Sebastian Alex- andersson á metið yfir flest varin vítaköst í kappleik í efstu deild hér á landi. »1 Verst að ná ekki að jafna metið Kobe Bryant hætti við fótboltann og einbeitti sér að körfuboltanum vegna aðdáunar sinnar á Michael Jordan. Nú hefur Kobe farið framúr fyrir- myndinni og goðsögninni og er orðinn þriðji stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi. Spurningin er hinsvegar hversu góð- ur Kobe er, eða var, og hvort hann eigi mögu- leika á að lengja sína afrekaskrá. »4 Kobe Bryant fór fram úr fyrirmyndinni „Það er ný og mjög skemmtileg staða finnst mér. Ég lít þannig á að um sé að ræða seinni hálfleik hjá mér í at- vinnumennskunni. Mér finnst fínt að byrja hann á því að spila með litlu systur því við höfum aldrei spilað saman,“ segir Margrét Lára Viðars- dóttir meðal annars við Morgun- blaðið í dag en hún og Elísa verða samherjar á næsta ári. »1 Systurnar hafa ekki spilað saman ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hún segist ekki kunna neitt annað en að skrifa og segja frá. Kærleikur hefur verið eitt leiðarljósa Jennu Jensdóttur, rithöfundar og kenn- ara, í 96 ár en hún er einna þekktust fyrir barna- og unglingabækur sem hún skrifaði m.a. í samstarfi við Hreiðar Stefánsson, eiginmann sinn, sem er látinn. Um þessar mundir eru 70 ár síðan fyrsta bók þeirra, Skógarævintýri Kalla litla, kom út, en Öddubækurnar eru lík- lega þeirra vinsælustu bækur. Jenna segist ekki hafa átt neitt val um hvort hún varð rithöfundur. Hún segist snemma hafa orðið hrif- næm, grét yfir örlögum blóma og ánamaðka, hlustaði á fuglana og tal- aði við þá. Hún gekk um „full af sögum,“ eins og hún segir sjálf og fengu aðrir fyrst að njóta þeirra þegar hún tók þátt í og vann sögu- samkeppni útvarpsins. „Ég skrifaði sögu sem hét Útvarpskennsla veld- ur misskilningi. Ég var 17 ára, fékk 25 krónur í verðlaun og var með nefið upp í loft lengi vel á eftir. Mér fannst ég hafa sigrað heiminn.“ Jenna og Hreiðar kynntust í Kennaraskólanum og ráku saman Smábarnaskóla Jennu og Hreiðars fyrir 5 og 6 ára börn á Akureyri frá 1942 til 1963. Þar fengu þau hug- myndir að mörgum bóka sinna. „Við vorum yfirleitt með um 90 börn á ári og mörg barnanna hafa ennþá samband við okkur,“ segir Jenna. Adda endurútgefin enn á ný Þessa dagana gefur Ugla útgáfa út sjöundu og síðustu Öddubókina, Adda trúlofast, en bækurnar komu fyrst út árið 1946 og hafa oft verið gefnar út síðan þá. Þar er fjallað um Öddu frá því hún er fjögurra ára og fram á fullorðinsár. Í upphafi fyrstu bókarinnar er Adda umkomulaus, í umsjá gamallar konu, sem veitir henni litla hlýju. Adda slasast, leggst inn á sjúkrahús og læknirinn sem annast hana tekur hana að sér. Jenna segir sögu Öddu eiga sér stoð í raunveruleikanum. „Ég þekkti barnlaus hjón, þar sem maðurinn var læknir og þau tóku að sér barn sem líklega var barn bandarísks hermanns. Móðirin flutti úr landi og skildi barnið eftir hjá gamalli konu.“ Jenna segist hafa lagt mikla vinnu í persónusköpun í bókunum, ekki síst föður Öddu sem leggi áherslu á að hún geri sér grein fyrir orsökum og afleiðingum gerða sinna. „Hann veit ekki hverra manna hún er og hann er að reyna að átta sig á því hvaða eðlisþáttum hún býr yfir. Ef maður les bækurnar vel þá sést þetta.“ Við erum öll að puða Jenna hefur fengið fjölmargar viðurkenningar fyrir ritstörf sín bæði hér á landi og á alþjóðavísu. Hún segist þakklát fyrir þann sóma, en segist að öðru leyti lítið gefin fyr- ir vegtyllur. „Ég skrifa vegna þess að ég kann ekkert annað. Við erum öll að puða, hvert á sínu sviði. Öll störf eru mikilvæg. Nú er ég 96 ára og sé að það sem aldur og ævi hefur kennt mér er traust, kærleikur og heilindi.“ Ég kann ekkert annað  70 ár frá út- komu fyrstu bókar Jennu og Hreiðars Jenna og Hreiðar Stefánsson. Þessa höfundarmerkingu kann- ast margir við, en á þennan hátt voru 27 barna- og unglingabæk- ur þeirra Jennu og Hreiðars höfundarmerktar. Raunin er þó sú að allur gangur var á því hvort bækurnar voru eftir þau bæði. „Ég skrifaði Öddubæk- urnar ein, en Hreiðar skrifaði t.d. Sumar í sveit einn. Við ákváðum að hafa þetta svona vegna þess að við rákum skól- ann saman.“ Jenna segist ekki hafa lesið mikið af þeim barna- og ung- lingabókum sem hafa komið út undanfarin ár. „En ég get nefnt eina; Ár- mann Jakobs- son, gamall nemandi minn úr unglingadeild Langholtsskóla, kom til mín um daginn ásamt Sverri tvíbura- bróður sínum. Þeir gáfu mér nýju barnabókina hans Ármanns, Síð- asta galdrameistarann. Hann áritaði hana svona: Til Jennu, fyrirmyndar allra í leik og starfi. Það þótti mér vænt um.“ Skrifaði Öddubækurnar ein JENNA OG HREIÐAR SKRIFUÐU 27 BÆKUR Hreiðar Stefánsson Jenna og Adda Jenna segir Öddubækurnar eiga sér stoð í raunveruleikanum. Fyrsta bókin kom út árið 1946, síðan þá hafa bækurnar verið endurútgefnar margoft og nú er verið að gefa út síðustu bókina, Adda trúlofast. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.