Morgunblaðið - 17.12.2014, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Veðrið á vefmyndavélum
2. Skýldi óléttri vinkonu á kaffihúsinu
3. Allar leiðir út úr borginni lokaðar
4. „Veðrið er enn að versna“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Brimbrettarokksveitin Brim verður
í hátíðarskapi um jólin, leikur á jóla-
balli Húrra við Tryggvagötu annan í
jólum og mun hita sig upp fyrir ballið
með tónleikum á Kex hosteli á laug-
ardaginn, 20. desember. Eftir áramót
heldur Brim til Iowa í Bandaríkjunum
og leikur á beikonhátíð í lok janúar.
Brimbrettarokk á jól-
um og í Iowa í janúar
Söngkonan Sigríður Thorlacius og
söngvarinn Sigurður Guðmundsson
halda tvenna tónleika í dag í Eldborg-
arsal Hörpu, kl. 18 og 21, ásamt
hljómsveit. Jólaplöturnar Nú stendur
mikið til með Sigurði og Jólakveðja
með Sigríði verða í forgrunni og einn-
ig flutt jólalög úr ólíkum áttum.
Jólatónleikatvenna
Siggu og Sigga
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Una Sveinbjarn-
ardóttir fiðluleik-
ari heldur upp á
útgáfu hljómplötu
sinnar Umleikis
með tónleikum í
menningarhúsinu
Mengi, Óðinsgötu
2, í dag kl. 17. Á
plötunni eru tíu lög fyrir einleiksfiðlu
og var hún tekin upp í Ísafjarðar-
kirkju í júlí árið 2012.
Una fagnar útgáfu
Umleikis í Mengi
Á fimmtudag Norðaustan 8-15 og snjókoma með köflum á Vest-
fjörðum, annars hægari breytileg átt og úrkomulítið, en él með
suður- og austurströndinni. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi suðvestanátt, 8-13 m/s síðdegis
og áfram él sunnan- og vestantil á landinu. Frost 0 til 7 stig, kald-
ast norðaustantil.
VEÐUR
„Ég varði þrjú víti í leik í yngri
flokkunum fyrir mörgum ár-
um. Ég var í áttunda vítinu.
Verst að ná því ekki og jafna
metið hans Sebastians,“ sagði
Lárus Helgi Ólafsson, mark-
vörður HK, sem í fyrrakvöld
varði sjö af átta vítaköstum í
leik við FH í Olís-deildinni í
handknattleik. Sebastian Alex-
andersson á metið yfir
flest varin vítaköst í
kappleik í efstu deild
hér á landi. »1
Verst að ná ekki að
jafna metið
Kobe Bryant hætti við fótboltann og
einbeitti sér að körfuboltanum vegna
aðdáunar sinnar á Michael Jordan.
Nú hefur Kobe farið framúr fyrir-
myndinni og goðsögninni
og er orðinn þriðji
stigahæsti leikmaður
NBA-deildarinnar
frá upphafi.
Spurningin er
hinsvegar
hversu góð-
ur Kobe er,
eða var, og
hvort hann
eigi mögu-
leika á að
lengja sína
afrekaskrá.
»4
Kobe Bryant fór fram
úr fyrirmyndinni
„Það er ný og mjög skemmtileg staða
finnst mér. Ég lít þannig á að um sé
að ræða seinni hálfleik hjá mér í at-
vinnumennskunni. Mér finnst fínt að
byrja hann á því að spila með litlu
systur því við höfum aldrei spilað
saman,“ segir Margrét Lára Viðars-
dóttir meðal annars við Morgun-
blaðið í dag en hún og Elísa verða
samherjar á næsta ári. »1
Systurnar hafa ekki
spilað saman
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hún segist ekki kunna neitt annað
en að skrifa og segja frá. Kærleikur
hefur verið eitt leiðarljósa Jennu
Jensdóttur, rithöfundar og kenn-
ara, í 96 ár en hún er einna þekktust
fyrir barna- og unglingabækur sem
hún skrifaði m.a. í samstarfi við
Hreiðar Stefánsson, eiginmann
sinn, sem er látinn. Um þessar
mundir eru 70 ár síðan fyrsta bók
þeirra, Skógarævintýri Kalla litla,
kom út, en Öddubækurnar eru lík-
lega þeirra vinsælustu bækur.
Jenna segist ekki hafa átt neitt
val um hvort hún varð rithöfundur.
Hún segist snemma hafa orðið hrif-
næm, grét yfir örlögum blóma og
ánamaðka, hlustaði á fuglana og tal-
aði við þá. Hún gekk um „full af
sögum,“ eins og hún segir sjálf og
fengu aðrir fyrst að njóta þeirra
þegar hún tók þátt í og vann sögu-
samkeppni útvarpsins. „Ég skrifaði
sögu sem hét Útvarpskennsla veld-
ur misskilningi. Ég var 17 ára, fékk
25 krónur í verðlaun og var með
nefið upp í loft lengi vel á eftir. Mér
fannst ég hafa sigrað heiminn.“
Jenna og Hreiðar kynntust í
Kennaraskólanum og ráku saman
Smábarnaskóla Jennu og Hreiðars
fyrir 5 og 6 ára börn á Akureyri frá
1942 til 1963. Þar fengu þau hug-
myndir að mörgum bóka sinna.
„Við vorum yfirleitt með um 90
börn á ári og mörg barnanna hafa
ennþá samband við okkur,“ segir
Jenna.
Adda endurútgefin enn á ný
Þessa dagana gefur Ugla útgáfa
út sjöundu og síðustu Öddubókina,
Adda trúlofast, en bækurnar komu
fyrst út árið 1946 og hafa oft verið
gefnar út síðan þá. Þar er fjallað um
Öddu frá því hún er fjögurra ára og
fram á fullorðinsár. Í upphafi fyrstu
bókarinnar er Adda umkomulaus, í
umsjá gamallar konu, sem veitir
henni litla hlýju. Adda slasast,
leggst inn á sjúkrahús og læknirinn
sem annast hana tekur hana að sér.
Jenna segir sögu Öddu eiga sér stoð
í raunveruleikanum. „Ég þekkti
barnlaus hjón, þar sem maðurinn
var læknir og þau tóku að sér barn
sem líklega var barn bandarísks
hermanns. Móðirin flutti úr landi og
skildi barnið eftir hjá gamalli konu.“
Jenna segist hafa lagt mikla vinnu
í persónusköpun í bókunum, ekki
síst föður Öddu sem leggi áherslu á
að hún geri sér grein fyrir orsökum
og afleiðingum gerða sinna. „Hann
veit ekki hverra manna hún er og
hann er að reyna að átta sig á því
hvaða eðlisþáttum hún býr yfir. Ef
maður les bækurnar vel þá sést
þetta.“
Við erum öll að puða
Jenna hefur fengið fjölmargar
viðurkenningar fyrir ritstörf sín
bæði hér á landi og á alþjóðavísu.
Hún segist þakklát fyrir þann sóma,
en segist að öðru leyti lítið gefin fyr-
ir vegtyllur. „Ég skrifa vegna þess
að ég kann ekkert annað. Við erum
öll að puða, hvert á sínu sviði. Öll
störf eru mikilvæg. Nú er ég 96 ára
og sé að það sem aldur og ævi hefur
kennt mér er traust, kærleikur og
heilindi.“
Ég kann ekkert annað
70 ár frá út-
komu fyrstu bókar
Jennu og Hreiðars
Jenna og Hreiðar Stefánsson.
Þessa höfundarmerkingu kann-
ast margir við, en á þennan hátt
voru 27 barna- og unglingabæk-
ur þeirra Jennu og Hreiðars
höfundarmerktar. Raunin er þó
sú að allur gangur var á því
hvort bækurnar voru eftir þau
bæði. „Ég skrifaði Öddubæk-
urnar ein, en Hreiðar skrifaði
t.d. Sumar í sveit einn. Við
ákváðum að hafa þetta svona
vegna þess að við rákum skól-
ann saman.“
Jenna segist ekki hafa lesið
mikið af þeim barna- og ung-
lingabókum sem hafa komið út
undanfarin ár.
„En ég get
nefnt eina; Ár-
mann Jakobs-
son, gamall
nemandi minn
úr unglingadeild
Langholtsskóla,
kom til mín um
daginn ásamt
Sverri tvíbura-
bróður sínum. Þeir gáfu mér nýju
barnabókina hans Ármanns, Síð-
asta galdrameistarann. Hann
áritaði hana svona: Til Jennu,
fyrirmyndar allra í leik og starfi.
Það þótti mér vænt um.“
Skrifaði Öddubækurnar ein
JENNA OG HREIÐAR SKRIFUÐU 27 BÆKUR
Hreiðar
Stefánsson
Jenna og Adda Jenna segir Öddubækurnar eiga sér stoð í raunveruleikanum. Fyrsta bókin kom út árið 1946, síðan
þá hafa bækurnar verið endurútgefnar margoft og nú er verið að gefa út síðustu bókina, Adda trúlofast.
Morgunblaðið/Ómar