Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 305. tölublað 102. árgangur
REYNUM AÐ
VERA JAFNVOND-
AR VIÐ ALLA
AÐ MÖRGU ER
AÐ HUGA Á
TÍMAMÓTUM
FYRSTI ÍSLEND-
INGURINN SEM
HEITIR BAMBI
80 SÍÐNA AUKABLAÐ MIKILL DISNEY-MAÐUR 2ÁRAMÓTASKAUPIÐ 62
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt nýtt ár
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, kveðst
búast við því að innan fimm til tíu
ára verði komið
á markað lyf við
Alzheimer-sjúk-
dómnum. Í við-
tali í blaðinu
Tímamót, sem
fylgir Morgun-
blaðinu í dag,
kveðst hann eiga
von á því að slíkt
lyf muni ekki að-
eins nýtast gegn
Alzheimer-sjúkdómnum, heldur
gæti það dregið úr eðlilegri hrörn-
un heilans vegna aldurs og því orð-
ið „lykillinn að því að breyta lífi
mjög stórs hundraðshluta fólks á
næstu 20 til 30 árum“.
Í rannsóknum Íslenskrar erfða-
greiningar fannst stökkbreyting,
sem kemur í veg fyrir það ferli,
sem leiðir til Alzheimer-sjúkdóms-
ins. Segir Kári að þetta hafi gefið
tilraunum lyfjaiðnaðarins til að
hemja efnahvatann, sem leiðir til
sjúkdómsins, nýjan vind í seglin.
„Þetta er ágætis dæmi um það
hvernig hægt er að nota erfða-
fræðina til að hjálpa til við
lyfjaþróun og ein af ástæðunum
fyrir því að við erum nú í eigu Am-
gen, sem er stórt lyfjafyrirtæki í
Bandaríkjunum,“ segir hann.
Að vera maður sjálfur lengur
Kári bætir því við að takist að
búa til hemil á efnahvatann, sem
veldur Alzheimer-sjúkdómnum, sé
ekki ólíklegt að hann verði settur
út í vatn gamals fólks: „Ég er þó
ekki að tala um tilraun til að gera
okkur eilíf, heldur tilraun til þess
að gefa fólki tækifæri til að lifa
eins og það er, því maðurinn er
ekkert annað en heilinn,“ segir
hann. „Þetta er spurning um að
setja saman lyf, sem gerir einstak-
lingnum kleift að vera hann sjálfur
mun lengur.“
Lyf gegn Alzheim-
er innan áratugar
Kári Stefánsson segir lyf sem hamli hrörnun heilans innan
seilingar Rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar gáfu
lyfjaiðnaði byr í seglin Ein ástæðan fyrir kaupum Amgen
Morgunblaðið/Kristinn
Íslensk erfðagreining Stökkbreyt-
ingin fannst í rannsóknum ÍE.
Kári
Stefánsson
„Við höfum verið
að skoða hug-
myndir beggja að-
ila og okkur hefur
miðað töluvert í
viðræðunum í
dag. Það eru þó
enn nokkur atriði
óleyst,“ sagði
Magnús Péturs-
son ríkissátta-
semjari um stöð-
una í samningaviðræðum Lækna-
félags Íslands og ríkisins í gærkvöldi.
Samningafundinum lauk klukkan
hálf ellefu í gærkvöldi og hafði hann
þá staðið yfir í 12 klukkustundir með
hléum. Nýr fundur hefur verið ákveð-
inn 2. janúar klukkan eitt.
Fundur samninganefndar Skurð-
læknafélags Íslands og ríkisins stóð
enn yfir þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Sagði Magnús að þeim við-
ræðum miðaði líka vel. Læknar hafa
boðað til verkfalls mánudaginn 5. jan-
úar og verða þær verkfallsaðgerðir ef
til þeirra kemur umfangsmeiri en
þær þrjár lotur aðgerða þegar
læknar lögðu niður störf í haust.
„Okkur
miðar
töluvert“
Gangur í viðræðum
í læknadeilunni.
Nokkur atriði óleyst
Útlit er fyrir
að heildarfram-
leiðsla á innveg-
inni mjólk verði
134-135 milljónir
lítra í ár, skv.
upplýsingum
Samtaka afurða-
stöðva í mjólkur-
iðnaði (SAM), og
eykst hún um
nærri 12 millj-
ónir lítra milli ára.
Framleiðslan er meiri en verið
hefur síðustu áratugi.
Grundvöllurinn fyrir aukinni
mjólkurframleiðslu er mikil sölu-
aukning mjólkurafurða, ekki síst
þeirra feitari, á árinu 2013. »6
Metframleiðsla á
mjólk á þessu ári
Sala mjólkurafurða
er á uppleið.
Hópur ís-
lenskra kvik-
myndagerð-
armanna stendur
að Hollywood-
myndinni Z for
Zachariah ásamt
erlendum að-
ilum. Koma þeir
bæði að fram-
leiðslu myndar-
innar sem og handritsgerð. Fram-
leiðslukostnaður við myndina var
um 1,1 milljarður íslenskra króna.
»6
Íslendingar standa
að Hollywood-mynd
Frá tökustað.