Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 2
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bambi Guðjónsson, 28 ára gamall
Reykvíkingur, valdi eiginnafnið sitt
sjálfur. Hann hét áður Guðmundur
Andrés. Það kemur enn fyrir að
hans nánustu kalli hann Gumma
en kunningjar hans og vinir í net-
heimum hafa lengi þekkt hann
undir nafninu Bambi.
„Það eru 10-14 ár síðan ég fór
að hugsa um að skipta um nafn.
Ég byrjaði að nota nafnið Bambi á
netinu þegar ég var í kringum 14
ára aldurinn,“ sagði Bambi. „Ég
hét áður svo venjulegu nafni að ef
einhver kallaði nafnið mitt í hópi
þá sneru svona tuttugu hausar sér
við. Það var svolítið pirrandi.“
Bambi er fyrsti Íslendingurinn
og sá eini sem ber eiginnafnið
Bambi. „Ég valdi nafnið aðallega
vegna þess að ég er mikill Disney-
maður og aðdáandi Disneys,“ sagði
Bambi. „Ég kallaði mig Bamba í
tölvuleikjum, á spjallrásum og svo-
leiðis. Svo þegar ég fór að keppa í
LAN-i og maður hitti fólkið vissi
enginn hvað maður hét í alvöru og
allir notuðu bara „nikkið“. Þegar
einhver sagði Bambi var ég sá eini
sem sneri sér við. Mér fannst það
mun þægilegra.“
Guðmundur Andrés fór á skrif-
stofu Þjóðskrár 2004 og lagði inn
umsókn um að taka upp eigin-
nafnið Bambi. Starfsmaður þar
sagði honum að vera ekki of bjart-
sýnn á að umsóknin yrði sam-
þykkt. Mannanafnanefnd ákvað
engu að síður sama ár að beiðnin
um eiginnafnið Bambi skyldi tekin
til greina og var nafnið fært á
mannanafnaskrá. Guðmundur
Andrés fékk bréf um að beiðnin
hefði verið samþykkt.
Starfsmaður Þjóðskrár hafði
Hvernig Gummi
varð Bambi
Bambi Guðjónsson á enga nafna hér
Morgunblaðið/Golli
Nýtt nafn Bambi Guðjónsson ákvað að taka upp nýtt eiginnafn. Hann valdi
nafnið aðallega vegna þess að hann segist vera mikill aðdáandi Disneys.
varað hann við því að það fylgdi
því heilmikill kostnaður og fyrir-
höfn að skipta um nafn. Ekki að-
eins kostaði að leggja inn beiðni til
mannanafnanefndar, það kostar nú
3.000 kr., heldur þyrfti einnig að
útvega ný skilríki, t.d. vegabréf,
ökuskírteini, bankakort og margt
fleira. Þá varaði starfsmaðurinn
hann við því að hann þyrfti að
nafnbreyta bílaláninu sínu.
„Þetta hræddi mig smá og ég
ákvað að bíða með að skipta um
nafn þangað til ég yrði betur stæð-
ur fjárhagslega. Þegar ég skipti
svo um nafn fyrir rúmu ári þá
kostaði það ekkert svo mikið,“
sagði Bambi Guðjónsson.
Hann er enn með sömu kenni-
tölu og áður og segir að nafnbreyt-
ingin hafi gengið greiðlega fyrir
sig þegar hann ákvað að skipta um
nafn.
Þjóðskrá getur leyft breytingu á
eiginnafni, millinafni og/eða kenni-
nafni við aðstæður sem nefndar
eru í sjötta kafla mannanafnalag-
anna. Þannig breytingar skulu þó
aðeins leyfðar einu sinni, nema
sérstaklega standi á.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigrún Magnúsdóttir verður um-
hverfis- og auðlindaráðherra um
áramótin og verður við það tíundi
ráðherra ríkisstjórnarinnar. Hún
verður jafnframt fimmti ráðherra
Framsóknarflokksins.
Skipun hennar verður staðfest á
ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag.
Sigrún hefur verið þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, setið í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og
verið formaður Þingvallanefndar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði að loknum
þingflokksfundi hjá Framsóknar-
flokknum síðdegis í gær, þar sem
valið á Sigrúnu var samþykkt, að
ekkert hefði verið ákveðið um eftir-
menn Sigrúnar í þessum embættum.
Hitt biði þess að þingflokkurinn
kæmi aftur saman eftir jólahlé.
Spurður hvort Vigdís Hauksdóttir
kæmi til greina sem þingflokksfor-
maður kvaðst Sigmundur Davíð
„ekki ætla að vera með neinar
vangaveltur um hvað kæmi til greina
í því efni“. Áður en Sigmundur Davíð
gaf Morgunblaðinu kost á viðtali var
hins vegar haft eftir honum á mbl.is
að hann hefði rætt við Vigdísi í að-
draganda valsins á ráðherra og hún
að fyrra bragði mælt með Sigrúnu.
Reynsla og skipulagshæfni
Sigmundur Davíð segir aðspurður
að Sigrún sé afar reynslumikil.
„Sigrún hefur mjög mikla kosti
sem munu nýtast í þessu ráðuneyti
og styrkja ríkisstjórnina. Hún er
einn reynslumesti stjórnmálamaður-
inn okkar, var borgarfulltrúi í sextán
ár og sinnti þar mörgum stórum
verkefnum. Þannig að hún er vön að
halda utan um stór verkefni. Ég
nefni sem dæmi einsetningu grunn-
skólans. Hún hefur líka skipulags-
og stjórnunarhæfileika sem munu
nýtast við að halda utan um mál í
ráðuneytinu. Hún er mikill náttúru-
unnandi og náttúrubarn, held ég að
megi segja. Þannig að málaflokkur-
inn er henni kær.“
– Það varð umdeilt þegar Jón
Gunnarsson, formaður atvinnuvega-
nefndar, kom í haust með breytinga-
tillögu varðandi rammaáætlun.
Munu umhverfismál verða átakamál,
að þínu mati, á fyrri hluta nýs árs?
„Umhverfismálin eiga ekki að
þurfa að verða átakamál. Við hér á
Íslandi stöndum mjög vel að vígi í
samanburði við aðrar þjóðir í um-
hverfismálum … Það þýðir að svig-
rúmið til þess að leysa úr málum
hlýtur að vera töluvert. Hvað varðar
hugsanlegar virkjanir ætla ég nú
ekki að fara að kveða upp úr um það í
tengslum við þessar breytingar á
ríkisstjórninni. En ég tel að það eigi
að vera hægt að ná allgóðri samstöðu
um virkjanakosti sem skerða ekki
náttúrugæði verulega.“
Segir valið á Sigrúnu
styrkja ríkisstjórnina
Forsætisráðherra segir nýjan ráðherra hafa mikla reynslu
Morgunblaðið/Eggert
Nýjum áfanga fagnað Sigmundur Davíð Gunnlaugsson óskar Sigrúnu Magnúsdóttur til hamingju eftir þingflokks-
fundinn í gær. Aðstoðarmaður hans, Jóhannes Þór Skúlason, og bílstjóri hans, Sigurður Egilsson, fylgjast með.
Nú í lok ársins
eru 28 Íslend-
ingar á lífi
fæddir árið
1915. Aðeins
einu sinni hafa
verið fleiri 99
ára. Athygli
vekur að karl-
arnir eru tólf,
sem er met. Ár-
gangarnir 1916-1920 eru mjög
sterkir og má því búast við að á
næstu árum fari fjöldi hundrað
ára og eldri yfir fimmtíu í fyrsta
sinn, að sögn Jónasar Ragnars-
sonar, sem er umsjónarmaður
síðunnar Langlífis á Facebook.
Samkvæmt samantekt Jónasar
eru nú 33 Íslendingar hundrað
ára og eldri, 26 konur og 7 karl-
ar. „Þetta er svipaður fjöldi og
fyrir einu ári en fimm árin þar á
undan voru heldur fleiri á lífi.
Flestir voru þeir 46 í árslok 2011.
Guðríður Guðbrandsdóttir í
Reykjavík er elst núlifandi Ís-
lendinga, en hún er 108 ára síðan
í maí. Aðeins þrjár íslenskar kon-
ur hafa orðið eldri. Georg Ólafs-
son í Stykkishólmi er elstur
karla, 105 ára síðan í mars. Tveir
hafa orðið eldri,“ skrifar Jónas.
gudni@mbl.is
Aldrei verið fleiri
99 ára karlar
Jónas Ragnarsson
33 Íslendingar eru 100 ára og eldri
Trausti Jónsson veðurfræðingur hef-
ur tekið saman yfirlit yfir veðrið á
árinu sem er að líða. Kemur þar fram
að árið var óvenjuhlýtt á landinu öllu.
Við norðurströndina og víða aust-
anlands er árið það hlýjasta frá upp-
hafi mælinga, þar á meðal bæði í
Grímsey og á Teigarhorni þar sem
mælt hefur verið samfellt að kalla frá
1874 og 1872. Í flestum öðrum lands-
hlutum var árið það næsthlýjasta eða
þriðja hlýjasta frá upphafi mælinga.
Sumarið var óvenjuhlýtt, sér-
staklega á landinu norðaustanverðu
þar sem það var sums staðar það
hlýjasta frá upphafi mælinga.
Þrátt fyrir hlýindin þótti tíðarfar
nokkuð blendið.
Skiptist á skin og skúrir
Sumarið var hlýtt norðanlands og
austan en lengst af votviðrasamt og
sólarlítið syðra. Árið endaði með um-
hleypingasömum og fremur köldum
desember.
Hæsti hiti ársins mældist 23,3 stig
á Húsavík hinn 23. júlí. Hámarkshiti
ársins á landinu öllu hefur ekki verið
jafnlágur síðan 2001.
Lægsti hiti ársins mældist -28,9
stig í Svartárkoti hinn 19. febrúar. Þá
mældust sólskinsstundir færri en
verið hefur undanfarin ár, bæði í
Reykjavík og á Akureyri. Voru sól-
skinsstundirnar um 100 færri en í
meðallagi og rúmlega 200 færri en að
meðaltali síðustu 10 árin. Í Reykjavík
hafa sólskinsstundirnar ekki mælst
jafnfáar síðan 1993. Á Akureyri var
sólarleysið það mesta í 12 ár eða síðan
2002. benedikt@mbl.is
Úrkomusamt og
hlýtt en sólin lét
lítið sjá sig í ár
Morgunblaðið/Þorkell
Sú gula Árið var óvenjuhlýtt á land-
inu öllu en fáar sólskinsstundir.
Það hlýjasta frá upphafi við norður-
ströndina og víða austanlands