Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum farsældar
á nýju ári. Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk Eignamiðlunar
S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Innvegin mjólk eykst um nærri 12
milljónir lítra í ár, miðað við síðasta
ár. Útlit er fyrir að heildar-
framleiðslan verði 134-135 milljónir
lítra, samkvæmt upplýsingum Sam-
taka afurðastöðva í mjólkuriðnaði
(SAM), og er meiri en verið hefur
síðustu áratugi.
„Bændur hafa brugðist vel við
ákalli um að auka framleiðsluna og
við höfum haft úr talsvert meiri
mjólk að moða en áður,“ segir Krist-
ín Halldórsdóttir, mjólkurbússtjóri
MS á Akureyri, um mjólkurfram-
leiðsluárið.
Söluaukning heldur áfram
Grundvöllurinn fyrir aukinni
mjólkurframleiðslu er mikil sölu-
aukning mjólkurafurða, ekki síst
þeirra feitari, á árinu 2013. Aukn-
ingin hefur haldið áfram í ár þó hún
sé ekki jafn mikil. Afurðastöðvar
hafa hvatt bændur til að auka fram-
leiðsluna til að anna eftirspurn á
markaðnum og til að byggja aftur
upp birgðir.
Bændur setja nánast allar kvígur
á í þeim tilgangi að fjölga mjólkur-
kúm. Hins vegar tekur langan tíma
að ala upp mjólkurkýr en bændur
hafa aukið framleiðsluna með bættri
fóðrun og með því að draga að slátra
kúm sem farnar eru að gefa eftir.
Metið fallið
Mjólkurframleiðslan náði hámarki
á árinu 2008, miðað við tölur frá
1980, en þá tóku mjólkursamlögin
við 126,1 milljón lítra. Síðan hefur
framleiðslan sveiflast nokkuð, eins
og sést á meðfylgjandi súluriti. Þó
tekið sé við mjólk fram eftir degi í
dag og nokkra daga vanti inn í töl-
urnar er ljóst orðið að framleiðslan í
ár slær öll met og eykst um 9,5% frá
síðasta ári.
Kristín telur líklegt að mjólkur-
framleiðslan aukist áfram á nýju ári.
Kýrnar mjólka tólf
milljónum lítra meira
Bændur svöruðu vel ákalli mjólkuriðnaðarins
Innvegin mjólk*
*milljónir lítra
**áætlun Heimild: SAM
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
12
6.
1
12
5.
6
12
3.
2
12
4.
8
12
5.
1
12
2.
9
13
4.
5*
*
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Íslendingar halda áfram að láta að
sér kveða í kvikmyndagerð vestan-
hafs en hópur Íslendinga kemur að
gerð Hollywood-kvikmyndarinnar Z
for Zachariah sem kostaði níu millj-
ónir bandaríkjadala í framleiðslu eða
1,1 milljarð ís-
lenskra króna.
Myndin hefur
verið valin á
Sundance-
kvikmyndahátíð-
ina, þar sem hún
keppir í flokknum
„U.S. Dramatic
Competition“
sem er eins konar
flaggskip hátíð-
arinnar, og verður myndin jafnframt
frumsýnd á hátíðinni sem fer fram
hinn 24. janúar næstkomandi. Allir
leikarar kvikmyndarinnar verða við-
staddir frumsýningu myndarinnar
ásamt íslenskum aðstandendum
hennar, Páli Grímssyni kvikmynda-
gerðarmanni sem keypti kvik-
myndaréttinn að skáldsögunni og
skrifaði handritið að myndinni
ásamt Nissar Modi, breskum hand-
ritshöfundi, og framleiðendunum
Þóri Snæ Sigurjónssyni og Skúla Fr.
Malmquist, hjá Zik Zak-kvikmynd-
um, og Sigurjóni Sighvatssyni, hjá
Sighvatsson Films. Páll er einnig
meðframleiðandi myndarinnar.
Íslendingarnir koma að fram-
leiðslu myndarinnar ásamt erlend-
um aðilum, m.a. Tobey Maguire sem
þekktastur er fyrir leik sinn sem
kóngulóarmaðurinn í samnefndri
kvikmynd.
Þrír stórleikarar í myndinni
Leikarar Z for Zachariah eru þrír
talsins og allir mjög kunnugir kvik-
myndaáhugamönnum. Það eru þau
Margot Robbie, sem lék ofurskvís-
una Naomi Lapaglia í The Wolf of
Wall Street, Chris Pine, sem lék
Kirk kaptein í Star Trek-myndunum
og Chiwetel Ejiofor, sem tilnefndur
var til Óskarsverðlauna fyrir leik
sinn í átakanlegu kvikmyndinni 12
Years a Slave. Tökurnar fóru fram á
Nýja-Sjálandi í janúar sl.
Aðdragandinn að kvikmyndinni
var langur en ferlið hófst árið 2004
þegar þeir Páll og Nissar keyptu
réttinn að skáldsögunni. Tveimur
árum eftir að þeir hófu að vinna að
verkefninu komu Zik Zak-
kvikmyndir inn í ferlið en það stóð
lengi til að myndin yrði íslensk. „Ég
skrifaði meðal annars íslenska út-
gáfu af handritinu og fékk til þess
styrk frá Kvikmyndasjóði ásamt Zik
Zak-kvikmyndum,“ segir Páll.
Handritið á lista yfir bestu
handritin í Hollywood 2009
Þá kynnti Zik Zak verkefnið lengi
sem íslenskt kvikmyndaverkefni en
ekki tókst að fjármagna gerð mynd-
arinnar hérlendis þar sem aðstæður
voru erfiðar í kjölfar efnahagshruns-
ins árið 2008. Á hverju ári er gefinn
út listi yfir bestu handritin í Holly-
wood að mati ýmissa aðila sem eru í
kvikmyndabransanum í Hollywood,
svokallaður „Blacklist“. Árið 2009
komst handrit myndarinnar í 26.
sæti listans og segir Páll áhugann á
verkefninu hafa aukist eftir það.
Sama ár var handrit kvikmyndar
Baltasars Kormáks, 2 Guns, á listan-
um og hafnaði það í 51. sæti listans.
Þá voru handrit kvikmyndanna The
Social Network og Prisoners ofar-
lega á listanum en báðar myndirnar
náðu miklum vinsældum. Skúli segir
aðstæður hafa breyst mikið eftir að
handritið birtist á listanum. „Þá fóru
menn að hringja í okkur,“ segir
hann.
Leikstjóri The Hunger Games
átti að leikstýra kvikmyndinni
„Eftir að handritið okkar lenti á
þessum lista fóru fleiri að taka eftir
því. Gary Ross, sem leikstýrði m.a.
The Hunger Games, var að leita að
einhverjum til að skrifa svipað hand-
rit á þeim tíma. Hann las handritið,
varð mjög hrifinn og stóð það lengi
vel til að hann myndi leikstýra þess-
ari mynd,“ segir Páll.
Skúli minnist þessa einnig og rifj-
ar upp þegar hann heyrði af því að
Ross kæmi til greina sem leikstjóri
kvikmyndar sem gera átti eftir ung-
lingabók. „Við hugsuðum með okkur
að það væri nú aldrei jafn merkileg
mynd og okkar. Það kom svo í ljós að
það væri The Hunger Games,“ segir
Skúli og hlær. Finna þurfti því nýjan
leikstjóra.
„Bæði þurfti leikstjóra sem var
heitur og leikara sem gætu forselt
myndina fyrir mikið fé. Það var mik-
ill darraðardans að koma því öllu
saman. Þetta þurfti allt að smella á
sama tímapunkti en endaði allt mjög
vel,“ segir Skúli en málinu lyktaði
með því að Craig Zobel var fenginn
til að leikstýra kvikmyndinni eftir að
hafa slegið í gegn á Sundance-
kvikmyndahátíðinni árið 2012.
Settu pakkann saman
Hlutverk Íslendinganna við fram-
leiðslu myndarinnar var að „setja
saman pakkann“ að sögn Skúla og
segir hann Sigurjón Sighvatsson þar
hafa komið mjög sterkan inn með
alla sína reynslu úr Hollywood. Ís-
lendingarnir „settu pakkann saman“
ásamt framleiðslufyrirtæki Tobey
Maguire, Material Pictures og í
framhaldi af því tókst Zik Zak-
kvikmyndum að fá þróunarfjármagn
fyrir frá fyrirtækinu Lucky Hat.
Íslendingar með Hollywood-mynd
Hópur Íslendinga kemur að kvikmyndinni Z for Zachariah Um tíma stóð til að myndin yrði ís-
lensk en ekki tókst að fjármagna hana hérlendis Frumsýnd á Sundance í janúar árið 2015
Bókin Z for Zachariah eftir rit-
höfundinn Robert C. O’Brien
kom fyrst út árið 1974 og vann
bókin til verðlaunanna Jane
Addams Children’s Book Award
og The Edgar Award. Páll, hand-
ritshöfundur myndarinnar, segir
marga Bandaríkjamenn þekkja
söguna vel þar sem hún er
kennd í skólum þarlendis.
Myndin er vísindatryllir sem
gerist eftir að „það“ gerist.
Fjallar hún um stúlku og eldri
vísindamann sem lifa saman
hamingjusöm þangað til að
þriðji aðilinn kemur inn í mynd-
ina. Í skáldsögunni eru persón-
urnar tvær en þær eru þrjár í
kvikmyndinni sem að sögn Páls
er það sem greinir handritið
helst frá skáldsögunni.
Fjallar um
unga stelpu
AÐALPERSÓNU BÆTT VIÐ
Ljósmynd/Skúli Fr. Malmquist
Framleiðendur Skúli Fr. Malmquist, Sigurjón Sighvatsson, Steve Banna-
tyne, eigandi Lucky Hat og Þórir Snær Sigurjónsson á Nýja-Sjálandi.
Stórleikarar Þau Margot Robbie, sem lék í The Wolf of Wall Street, Chris Pine, sem lék Kirk kaptein í Star Trek-
myndunum og Chiwetel Ejiofor, sem lék í myndinni 12 Years a Slave, fara með hlutverk í myndinni Z for Zachariah.
Páll Grímsson